Börn og menning - 01.04.2006, Side 40
40
Börn og menning
Áslaug Jónsdóttir tilnefnd til IMorrænu
barnabókaverðlaunanna 2006
í ár tilnefnir Félag skólasafnakennara
Áslaugu Jónsdóttur til Norrænu
barnabókaverðlaunanna 2006 af
íslands hálfu.
Áslaug er tilnefnd sem höfundur og
myndlistarmaður fyrir bókina Gott kvöld
sem kom út fyrir síðustu jól. l' bókinni er
I sögð saga af ungum dreng sem bíður
\ einn og óttalaus heima stutta stund en
I bangsi hræðist allar þær furðuverur
sem berja að dyrum. Áslaug sýnir
enn á ný hve góður höfundur
og myndlistarmaður hún er, en
myndir og texti haldast í hendur
og skapa í senn fallega og
skemmtilega heild. Edda -
útgáfa hf. gefur bókina út og
unnið er að þýðingu hennar á
tvö erlend tungumál.
Áslaug Jónsdóttir hefur skrifað og
myndskreytt fjölmargar bækur fyrir börn
og hlotið margvíslegar viðurkenningar
á þeim vettvangi, m.a. viðurkenningu
Fræðsluráðs Reykjavíkur 2000 fyrir framlag
til myndskreytinga í barnabókum og einnig
er hún á heiðurslista IBBY-samtakanna. Fyrir
Goff kvöld hlaut hún Dimmalimmverðlaunin,
íslensku myndskreytiverðlaunin, í lok síðasta
árs.
Hér á eftir verður fjallað stuttlega um aðra
höfunda og verk sem tilnefnd eru.
Danir tefla fram
Josefine Ottesen,
eins og sl. ár,
fyrir bókaflokk um
Krigeren, þriggja
binda flokk sem gerist
á víkingatímum. Odd
er í upphafi sögunnar
þræll á eyju gyðjunnar
Berkana, en elur með
sér draum um að verða
stríðsmaður konungs.
Josefine Ottesen heldur
úti vef um bókaflokkinn,
www.krigeren.com,
og hefur að auki
skrifað fjölmargar
barnabækur.
Finnar tilnefna Annika Luther
fyrir bókina Ivoria. Ivoria er leikur sem Sidiki-
fjölskyldan finnur upp til að stytta sér stundir
á meðan hún bíður eftir dvalarleyfi í Finnlandi
eftir hrakninga um Evrópu. Alphonse, elsti
sonurinn, nær að flýja þegar lögreglan kemur
og handtekur aðra fjölskyldumeðlimi. Hann á
í fá hús að venda, þar til hann hittir stúlkuna
Unu Alexöndru Mikkonen, og vinátta þeirra
veldur straumhvörfum í lífi þeirra beggja.
Af hálfu Noregs er Eirik Newth tilnefndur
fyrir bókina Hvorfor dar vi?. Newth
er stjörnufræðingur að mennt og hefur