Börn og menning - 01.04.2006, Side 41
Norrænu barnabókaverðlaun 2006
41
hlotið viðurkenningar fyrir
fræðistörf og skrif fræðibóka
fyrir börn. f þessu verki veltir
hann fyrir sér tilraunum mannsins til að
skilja dauðann með hjálp trúarbragða og
heimspeki, en einnig rekur hann vitneskju
manna um dauðann, hvernig og hvers vegna
við deyjum.
Svfar tilnefna Stefan Casta fyrir
unglingabókina Náktergalens sáng. Casta
hefur sl. tuttugu ár helgað sig aðaláhugamáli
sínu, náttúrunni. Hann hefur gert fjölmargar
fræðslumyndir fyrir börn og fullorðna og
hlotið margvíslegar viðurkenningar fyrir verk
sín. í bókinni sem tilnefnd er fjallar hann
um samspil manns og náttúru, en
lýsir einnig afdrifaríkum vetri í lífi
tveggja ungmenna, sveitapiltsins
Victors og stórborgarstúlku sem allt
í einu birtist í Södra Visunda. Hún
segist heita Esmeralda - eða Alice - og
allt breytíst í friðsælli veröld Victors við
komu hennar.
Enginn er tilnefndur frá Færeyjum í ár.
Norrænu barnabókaverðlaunin eru
heiðursverðlaun sem samtök norrænna
skólasafnakennara standa að. Þau hafa verið
veitt um árabil og þrisvar fallið fslandi í
skaut:
1992 hlaut Guðrún Helgadóttir þau fyrir
bókina Undan illgresinu, 2003 komu þau
í hlut Kristínar Steinsdóttur fyrir
bókina Engill I Vesturbænum og 2005
hlaut Ragnheiður Gestsdóttir þau fyrir
höfundarferil sinn með sérstakri áherslu á
Sverðberann.
Dómnefnd fundar í byrjun maí og verðlaunin
verða afhentá bókamessunni í Gautaborg nk.
haust. Fulltrúi íslands í dómnefndinni er Þóra
Sjöfn Guðmundsdóttir, skólasafnskennari í
Langholtsskóla.