Studia Islandica - 01.06.1958, Blaðsíða 16

Studia Islandica - 01.06.1958, Blaðsíða 16
14 Mynd Óðins er margbrotin, en meðal annars er hann guð skáldskapar. Ljóðskáld eitt, sem orti í kristnum sið, á elleftu öld, kallar enn þá kveðskapinn hið „helga full Hrafnásar“. Þegar Ólafur Tryggvason neyddi Hall- freð vandræðaskáld til að hafna heiðnum goðum, sakn- aði hann Óðins mest. Sigurður Nordal hefir lýst hugarferli Egils Skalla- Grímssonar, eins og hann kemur fram í kvæðum hans sjálfs.1 Sem sonur íslenzks bónda hafði Egill ekki verið alinn upp við Óðinsdýrkun, en hefir líklega dýrkað Þór, Frey og Njörð. En undir áhrifum stórhöfðingja í Nor- egi, sem stóðu í nánu sambandi við konungana Harald og Eirík blóðöx, hefir Egill farið að dýrka Óðin; hann lærði allt, sem Óðinsdýrkun hafði í sér fólgið. Hvergi kemur hin brennandi ást á Óðni skýrar í ljós en í kvæðinu Sonatorreki, þar sem Egill ávítar fvlltrúa sinn, sem hefir yfirgefið hann og tekið syni hans frá honum. Við getum ekki sagt, að önnur íslenzk skáld hafi dýrkað Óðin með eins mikilli ástríðu og Eg- ill, en auðséð er, að hann hefir skipað virðulegt sæti í hugmyndum þeirra um goðheiminn. Nóg er að minn- ast hinna fjölmörgu kenninga, þar sem nafn Óðins er fólgið, t. d. Yggjar bál, ViÖris veðr, Óðins haugr. Þeg- ar skáldin notuðu orðatiltæki af þessu tagi, hafa þau sjálfsagt hugsað um þennan dularfulla, hræðilega guð. Það gæti verið freistandi að álykta, að íslenzku skáld- in hafi haft aðrar trúarhugmyndir en alþýðan. Sú skýr- ing myndi vera ófullkomin, að ekki sé meira sagt. Nú er kominn tími til að snúa sér frá Islandi og leita að rökum annars staðar, en erfitt er að vita, hversu langt skal leita. 1 ritgerð, sem hinn hollenzki fræði- maður J. de Vries birti fyrir nokkru, hélt hann því fram, að ekki væri hægt að skilja trúarbrögð germ- i) Islenzk menning 1,1942, bls. 170 og áfram; sbr. ritgerð Sig- urðar Nordals „Átrúnaður Egils Skalla-Grímssonar“ í Skírni XCVIII, 1924, bls. 145 og áfram.

x

Studia Islandica

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Studia Islandica
https://timarit.is/publication/1542

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.