Studia Islandica - 01.06.1958, Blaðsíða 20
18
Þeim er lýst í mörgum heimildum, sem eru mismun-
andi að aldri, og því er erfitt að fá glögga mynd af þeim.
Við, sem ekki erum lærðir í austrænum bókmenntum,
verðum að treysta niðurstöðum sérfræðinga.
Eins og ég hefi þegar sagt, eru æðstu guðirnir í eldri
indverskum goðsögnum tveir, Mitra og Varuna, og
menn hafa oft ávarpað þá sem Mitra-Varuna, eins og
þeir væru eitt og hið sama. Sagt er, að þeir eigi að
tákna tvær hliðar hins æðsta valds. 1 goðheimi eins
og á jörðu fara tveir með æðsta valdið, konungurinn
og presturinn.
Þessir tveir guðir, Varuna og Mitra, lifa í samlyndi,
þó að þeir séu gjörólíkir að skaplyndi.1 Varuna er hinn
hræðilegi guð í skýjunum. Af eigin rammleik, eða
fyrir tilstilli njósnara sinna, sér hann allt og veit allt.
Hann er ósigrandi, en hann fer aldrei í orustu; hann
er galdrameistari og merkilegur að útliti; hann er gul-
eygður, sköllóttur og haldinn líkþrá; hann er haltur og
styðst við staf;2 auðvitað er hann fjarska gamall.
Þessi mynd, sem Dumézil dregur af Varuna, er reynd-
ar sambræðsla, tekin úr mörgum heimildum, sem eru
mismunandi að aldri. En ekki er um það að villast, að
Varuna líkist Óðni í mörgu. Óðinn er blindur eða ein-
eygður, en samt sér hann um alla heima úr hásæti sínu
Hliðskjálf. Af skyggni sjálfs sín eða fyrir tilstilli njósn-
ara sinna, hrafnanna tveggja, veit hann allt. Hann er
ósigrandi, en fer aldrei í orustu fyrr en í ragnarökum.
Hann er margbrotinn að skaplyndi, en að flestu er hann
illur. Hann er guð hinnar leyndu speki og dauðans,
leiðtogi Einherja, hinna framliðnu hetja. Með öðrum
orðum líkist hann Varuna í því, að hann er ekki guð
þessa heims, heldur annars heims.
1) Sjá G. Dumézil, Mitra-Varuna.
2) Sjá G. Dumézil, Mythes et dieux des Germains, bls. 28. A.
Hillebrandt lýsir Varuna ýtarlegar í Vedische Mythologie III, 1902,
bls. 3 og áfram.