Studia Islandica - 01.06.1960, Side 15
13
ur Benónísdóttir, Vopnafirði (II 347—53, ekki þó alltaf),
hdr. úr Skaft. (I 70), Páll í Árkvörn (III 70).
Brottfall samhljóða
Samhljóð milli tveggja annarra samhljóða falla brott
meðal annars hjá Magnúsi Bjarnasyni á Hnappavöllum,
öræfum, (gvmrar fyrir „gimbrar" III 436) og Tómasi á
Gróustöðum (sama, IV173). 1 hdr. af Vestfjörðum frá sr.
Guðmundi Gísla Sigurðssyni (ekki þó með hendi hans)
er ritað guðs krisni fyrir „guðs kristni“ (III468), en það
er ritað „eftir bók Gísla Gíslasonar á Fitjum“. Jón Árna-
son þjóðsagnaritari (af Skagaströnd) ritar sjálfur svar-
bláum fyrir „svartbláum“ (I 58) og Þórður Magnússon
gullsmíðanemi frá Hvammi, Dal., bwrveru fyrir „burt-
veru“ í hdr. frá árinu 1726 (í sögunni af Finnu forvitru,
II 369). Jón á Gautlöndum skrifar vankvæði fyrir „vand-
kvæði“ (I 501), Magnús Einarsson á Klyppsstað í Loð-
mundarfirði Surlu fyrir „Surtlu“ í Grýluþulu (III 285),
Páll í Árkvörn gilna fyrir „gildna“ (nh., III 354), og í
hdr. Jóns á Akurhúsum í Garði stendur hardfilni fyrir
„harðfylgni“ (III 148). Sigmundur Long ritar hörslandi
fyrir „Hörgslandi“, bæjarnafn í V.-Skaft. (III 376—7),
Páll í Árkvörn sjálsagt fyrir „sjálfsagt" (III 393), einnig
hálhoraðir fyrir „hálfhoraðir“ (III 278) og norlingar
fyrir „Norðlingar“ (III 277). Hjalti á Ósi ritar kvert
fyrir „hverft“ (III 603) og Hróbergi fyrir „Hrófbergi“
(III 587). Flest er þetta í samræmi við framburð manna
enn í dag.
Nefhljóð hefur fallið brott í Hálsá [svo!], sem Magnús
Grímsson skrifar fyrir „Hólmsá“, en raunar er sagan
skrifuð „eftir hdr. séra Jóns Þórðarsonar“. Átt er hér
við Hólmsá í Skaftártungu sem nú gengur venjulega und-
ir nafninu Hólsá meðal Skaftfellinga og Rangvellinga, en
áin kemur upp á afréttamótum þeirra og Skaftártungu-