Fréttablaðið - 10.03.2021, Blaðsíða 12
Áætlanir sýna að
þetta sé að spara
okkur um 50 prósent í
útgjöldum við að halda uppi
slíku starfi fyrir okkar
fremsta íþróttafólk.
Dagbjartur Hall-
dórsson, afreks-
stjóri Skíðasam-
bands Íslands
1 0 . M A R S 2 0 2 1 M I Ð V I K U D A G U R12 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
SKÍÐI „Þetta er fyrsta ár okkar í
þessu verkefni og reynsla okkar af
þessu hingað til hefur verið afar
góð. Við sjáum fyrir okkur að hægt
sé að stækka þetta verkefni og
höfum meðal annars rætt að bæta
snjóbrettum við þetta og jafn-
vel skíðagöngu,“ segir Dagbjartur
Halldórsson, afreksstjóri Skíða-
sambands Íslands, aðspurður út í
Lowlanders, verkefni sem snýr að
alþjóðlegu skíðaliði sem Skíðasam-
bandið tekur þátt í. Ísland kemur
að verkefninu ásamt Belgíu, Dan-
mörku, Hollandi, Írlandi og Lúxem-
borg og keppir liðið víðs vegar um
Evrópu. Í dag eru fjórir Íslendingar
í liði Lowlanders, þau Fríða Kristín
Jónsdóttir, Gauti Guðmundsson,
Georg Fannar Þórðarson og Katla
Björg Dagbjartsdóttir.
„Undanfarin ár hafa einhverjir
Íslendingar fundið sér lið á erlendri
grundu sem eru í eigu einkaaðila.
Það kostar peninga að taka þátt
í því, en þetta er á allt öðrum for-
sendum. Þetta er samkomulag milli
sex þjóða sem eru í þessu verkefni
og eru með þjálfara í föstu starfi
við að vinna með okkar fulltrúum,“
segir Dagbjartur og nefnir sem
dæmi að Sturla Snær Snorrason er
hluti af liði sem er í eigu bandarísks
manns og Hólmfríður Dóra Frið-
geirsdóttir er hluti af sænsku liði.
Þjóðirnar deila kostnaðinum
sem fylgir rekstri slíks liðs sín á
milli eftir fjölda fulltrúa og er það
því undir Skíðasambandinu komið
hversu margir taka þátt hverju
sinni.
„Samkomulagið er að hvert sam-
band greiðir hlutfallslega eftir því
hversu marga fulltrúa þeir eiga í
liðinu hverju sinni. Það eru þrír
möguleikar sem standa til boða.
Það er hægt að vera í þessu á fullu
sem tryggir 120-150 skíðadaga á
ári. Svo er hægt að vera í þessu í
70% hlutfalli eða hægt að koma inn
þegar tækifæri gefst, til dæmis fyrir
stakar æfingaferðir eða mót. Svo ef
það hentar ekki á einhverjum tíma-
punkti að senda fólk af okkar hálfu
í þetta verkefni getum við dregið
okkur í hlé í einhvern tíma. Á sama
tíma er mikið öryggi að hafa sex
þjóðir inni í þessu sem gerir fjár-
hagslegan bakgrunn verkefnisins
sterkan. Það skiptir því ekki máli
ef einhver þjóð ákveður að minnka
umsvif sín eitt árið.“
Aðspurður segist Dagbjartur
áætla að þetta fyrirkomulag spari
um 50-60 prósent af því sem myndi
kosta að vera með einstaklinga
upp á eigin spýtur í sambæri-
legum verkefnum. Á sama tíma
hafa Íslendingar verið að ná betri
og betri árangri í skíðabrekkunum
undanfarnar vikur.
„Það væri mun dýrara að halda
þessu úti á eigin forsendum, með
afreksfólk og þjálfara úti á okkar
snærum. Áætlanir sýna að þetta
sé að spara okkur um 50 prósent
í útgjöldum við að halda uppi
slíku starfi fyrir okkar fremsta
íþróttafólk. Þetta er mun ódýrari
kostur og gerir okkur kleift að gera
þetta. Í þessu tilviki náum við að
samnýta hlutina betur og okkar
afreksfólk fær að æfa og keppa við
bestu aðstæður með einstakling-
um á sama getustigi. Það skiptir
gríðarlega miklu máli og virðist
vera að skila góðum árangri. Auð-
vitað erum við árangursdrifin og
stefnum að því að ná árangri með
landsliðsfólkið okkar. Þegar við
sjáum okkar fólk vera að taka fram-
förum og ná betri úrslitum hvetur
það þessa stefnu áfram.“
Dagbjartur tekur undir að þetta
geti líka framlengt ferilinn hjá
okkar fremsta skíðafólki.
„Það er styrkur í því, fyrir ungt
og upprennandi skíðafólk, að sjá
þessa leið og sjá að ef það stendur
sig vel verður þessi farvegur í boði.
Um leið getur þetta framlengt fer-
ilinn. Skíðaíþróttin er dýrt sport
sem einstaklingar hafa hingað
til þurft að borga úr eigin vasa til
móts við styrkina frá okkur. Með
þessari leið er hægt að lækka þann
kostnað og styðja betur við bakið
á okkar fólki. Í skíðaíþróttinni eru
f lestir að toppa frá 24-30 ára og
þetta gæti reynst mikilvægur liður
í því ferli.“
Þetta er um leið önnur leið fyrir
ungt og efnilegt skíðafólk sem áður
hefur iðulega farið til Bandaríkj-
anna og æft skíði meðfram námi.
„Bandaríska leiðin hefur reynst
mörgum vel en í Evrópu færðu
mun f leiri skíðadaga, bæði æfinga-
daga og mót,“ segir Dagbjartur og
segist feginn að það hafi tekist að
halda aftur af smitum. „Sem betur
fer hefur tekist vel að sinna sótt-
vörnum og koma í veg fyrir smit.
Það eru strangar reglur í liðinu og
okkur hefur tekist að forðast smit.“
Í aðdraganda Vetrarólympíu-
leikanna á næsta ári á Dagbjartur
von á að það fjölgi jafnvel í hóp
Íslendinga í hópi Lowlanders á
næsta skíðatímabili en verið er
að vinna í því að undirbúa næsta
tímabil innan Skíðasambandsins.
„Næsta skíðatímabil hefst í
vor og við erum að leggja drög að
næsta keppnistímabili. Það er stórt
keppnisár þar sem Ólympíuleik-
arnir standa upp úr. Ég á frekar
von á því að við bætum í og gefum
f leirum tækifæri á þessu.“
kristinnpall@frettabladid.is
SPORT
ÓLYMPÍULEIK AR Japanskir f jöl-
miðlar greindu frá því í gær að
stjórnvöld í Japan hefðu ákveðið að
meina áhorfendum frá öðrum lönd-
um aðgang að Ólympíuleikunum og
Ólympíuleikum fatlaðra í Tókýó
í sumar. Ef leyfi fæst fyrir því að
hleypa fólki inn á Ólympíuleikana,
verða það því aðeins heimamenn
og fjölmiðlamenn sem fá að fylgj-
ast með þessum stærsta íþróttavið-
burði heims með berum augum.
Ákvörðunin var tekin eftir að
meirihluti almennings lýsti andúð
á því að ferðamönnum yrði hleypt
inn á leikana í miðjum heims-
faraldri. Fyrir vikið var ákveðið að
banna áhorfendur frá öðrum lönd-
um, en stefnt er að því að heima-
menn geti mætt á viðburði. – kpt
Heimamenn
einir í stúkunni
Býður upp á nýja möguleika
Mikil ánægja ríkir innan Skíðasambandsins með fyrsta árið sem hluti af Lowlanders, alþjóðlegu liði
fimm þjóða í skíðaíþróttum. Viðræður eru hafnar um að hefja sambærilegt samstarf í snjóbrettum.
Fulltrúar Íslands á alþjóðlegu móti á dögunum þar sem Íslendingar hafa verið að ná flottum árangri. MYND/AÐSEND
ÍÞRÓTTIR Í nýrri skýrslu Forbes sem
birtist um helgina, um fjárhagsleg
áhrif kórónaveirufaraldursins á
íþróttalíf í stærstu íþróttagreinum
Bandaríkjanna, kemur fram að
faraldurinn hafi kostað NBA, NHL,
MLB, NFL og NCAA um 14,1 millj-
arð Bandaríkjadala í tekjutapi.
Í upphafi faraldursins áætlaði
viðskiptatímaritið Forbes, sem
sérhæfir sig í fjármálageiranum,
að frestun íþróttaviðburða í tvo
mánuði myndi kosta deildirnar allt
að fimm milljarða en í ljós kom að
sú upphæð reyndist aðeins hluti af
tekjutapi deildanna.
Í byrjun mars á síðasta ári bár-
ust fréttir af því að ákveðið hefði
verið að fresta öllum leikjum NBA-
deildarinnar í körfubolta á meðan
leikur Denver Nuggets og Dallas
Mavericks stóð yfir. Stuttu seinna
fóru sömu fréttir að heyrast af NHL-
deildinni í íshokkíi, MLB-deildinni
í hafnabolta, úrslitakeppninni í
háskólakörfuboltanum (e. NCAA
March Madness) og stærri íþrótta-
viðburðum á borð við EM og
Ólympíuleikana.
Með ströngum sóttvarnareglum
og með úrslitakeppni í búbblu
og styttingu tímabilsins tókst að
ljúka tímabilinu í íshokkíi, hafna-
bolta, körfubolta og NFL-deildinni
í amerískum ruðningi. Ekkert varð
af úrslitakeppninni í háskólakörfu-
bolta sem er einn af stærstu við-
burðum bandarísks íþróttalífs ár
hvert.
Leikirnir fóru f lestir fram fyrir
luktum dyrum, sem hafði gríðarleg
fjárhagsleg áhrif, enda kemur stór
hluti teknanna frá aðgangseyri.
Um 70 prósent af tekjum NHL-
deildarinnar í íshokkíi koma frá
áhorfendum á leikdegi en deildin
fór nýstárlegar leiðir til að af la
tekna, meðal annars með auglýs-
ingum á hjálmum leikmanna. Með
því tókst að brúa bilið og varð NHL
aðeins af 720 milljónum í tekjum
á milli tímabila. Til samanburðar
varð NFL-deildin af fimm millj-
örðum, MLB-deildin í hafnabolta
af 6,5 milljörðum dala, NCAA af
milljarði dala og NBA-deildin af 780
milljónum dala. – kpt
Tekjutap upp á 14 milljarða dala vegna faraldursins
Íþróttadeildir í Bandaríkjunum hafa reynt að lífga upp á hliðarlínurnar með
því að setja pappaspjöld í tóm sæti milli áhorfenda. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Íbúar Tókýó eru margir mótfallnir
því að leikarnir fari fram í sumar.
Um 70 prósent af tekjum
NHL-deildarinnar koma frá
áhorfendum á leikdegi.
FÓTBOLTI Joachim Löw, þjálfari
þýska karlalandsliðsins í knatt-
spyrnu, hefur staðfest að hann láti
af störfum sem þjálfari liðsins eftir
Evrópumótið í sumar. Löw verður
því ekki á hliðarlínunni þegar Þjóð-
verjar koma til landsins í haust í
undankeppni HM 2022.
Þýskir fjölmiðlar orðuðu Jürgen
Klopp, knattspyrnustjóra Liver-
pool og Hansi Flick, þjálfara Bayern
München, við stöðuna í gær. Klopp
hefur hins vegar útilokað það.
Löw tók við þýska liðinu árið
2006 af Jürgen Klinsmann og stýrði
liðinu til sigurs á HM í Brasilíu árið
2014. Undanfarin ár hefur tekið að
halla undan fæti og árangur liðsins
ollið vonbrigðum.
Neyðarlegt 0-6 tap gegn Spáni
leiddi til þess að kallað var eftir
brottrekstri Löw en samningur
hans við þýska knattspyrnusam-
bandið rennur sitt skeið eftir EM.
– kpt.
Löw mætir ekki
í Laugardalinn