Fréttablaðið - 10.03.2021, Page 21
áhættu með viðskiptavinum sínum.
„Við erum alltaf í góðu samtali við
Landsvirkjun. En það er ekkert að
frétta af okkar samningsmálum
gagnvart þeim sem stendur, enda
erum við föst með þennan úrskurð
gerðardóms frá 2019,“ segir Álf-
heiður.
Elkem er meðal stærstu viðskipta-
vina Landsvirkjunar og kaupir ríf-
lega eina teravattstund af raforku
á ári hverju, sem svarar til um 7
prósentum af raforkuframleiðslu
fyrirtækisins. Upphaflegur raforku-
samningur Elkem og Landsvirkj-
unar tók gildi árið 1979 og var til 40
ára. Þegar endalok þess samnings
nálguðust nýtti Elkem sér ákvæði
í samningnum um að hann yrði
framlengdur til tíu ára. Raforku-
verð á þessu tíu ára tímabili var svo
ákveðið af gerðardómi.
„Þar var ákvarðað verð sem hvorki
við né Landsvirkjun vorum ánægð
með. Við erum hins vegar með kaup-
skyldu í þessum samningi og erum
bundin af honum til ársins 2029. Við
erum augljóslega opin fyrir að tengja
raforkuverð okkar afurðaverði og
erum boðin og búin til að finna ein-
hverjar lausnir á því máli.“
Eru neðst á lista
Stefna Landsvirkjunar síðastliðinn
áratug hefur verið að miða samn-
ingaviðræður við kostnaðarverð raf-
orkunnar, sem Landsvirkjun áætlar
um 30 dollara á megavattstund.
„Landsvirkjun vill fá sambærilegt
verð og aðrir raforkuframleið-
endur í Evrópu. Það er fullkomlega
skiljanlegt sjónarmið. Hins vegar
viljum við líka fá sambærilegt verð
og kaupendur í þeim löndum sem
við berum okkur saman við, til að
mynda í Noregi.
Aðstöðu mu nu r inn lig g u r í
stuðningi við stóriðju. Þar er ég
bæði að tala um endurgreiðslur
vegna kostnaðar á kaupum á ETS-
einingum í viðskiptakerfi ESB með
losunarheimildir gróðurhúsaloft-
tegunda en líka sjóði eins og hinn
norska Enova. Þar er um að ræða
framtakssjóð á vegum norska ríkis-
ins sem fjármagnar grænar lausnir
fyrir mengandi iðnað. Enova fjár-
magnar til að mynda þriðjung af
fjárfestingu í tengslum við endur-
nýtingu orku frá kísilmálmverum
Elkem í Noregi. Elkem er núna að
vinna fýsileikakönnun á því að
fanga koltvísýring og endurvinna
orku fyrir allar sínar verksmiðjur
og starfsemin hér á Íslandi er mjög
hentug í þetta verkefni. Hins vegar
erum við neðst á forgangslistanum
hjá Elkem þar sem opinber stuðn-
ingur við grænar lausnir fyrir stór-
iðjuna er mikill í Noregi en nánast
enginn hér. Stjórnendur Elkem velja
auðvitað þá kosti fyrst sem eru hag-
kvæmastir. Sem sakir standa er það
í Noregi. Elkem er mjög framsækið
fyrirtæki í umhverfismálum en við
hér á Íslandi sitjum svolítið eftir þar
sem hið opinbera hefur ekki sýnt
þessum málum sama áhuga og yfir-
völd í Noregi og Kanada.
Framtíðaruppbygging í þessari
grein er fjárfrek og því verður ekki
farið í fjárfestingar með aðeins átta
ára raforkusamning. Við þurfum
samkeppnishæfara raforkuverð,
sem er sambærilegt við það sem er í
Noregi, og lengri samningstíma. Við
erum dýrasta verksmiðjan í Elkem
í launakostnaði, þannig að það er
ýmislegt sem vinnur á móti okkur
í þessum efnum. Staðsetning okkar
vinnur líka gegn okkur þar sem við
þurfum að f lytja inn allt hráefni,“
segir Álfhildur.
Orka var samkeppnisforskot
„Það var alltaf raforkuverðið sem
gaf samkeppnisforskot hér á Íslandi.
Þetta er hreinlega ekki lengur fyrir
hendi og þessi verksmiðja yrði aldrei
byggð í dag á þeim raforkuverðum
sem eru í boði. Ég ítreka að ég skil
afstöðu Landsvirkjunar vel, en ef
þetta á að ganga upp til lengri tíma
þá þarf að skoða hluti eins og endur-
greiðslur vegna kaupa á ETS-eining-
um. CO2-kostnaðurinn getur numið
allt að einum þriðja af orkuverðinu
og er stuðningur Norðmanna við sín
fyrirtæki vegna þessa allt að tveimur
þriðju af CO2-kostnaðinum á mega-
vattstundina. Þeir nýta mengunar-
kvóta sem greiddir eru í ríkissjóð til
að styrkja svona verkefni sem mér
þykir skynsamlegt til að koma í veg
fyrir kolefnisleka.“
Gætu virkjað 25 megavött
Möguleikar á virkjun affallsgufu
verksmiðju Elkem gæti verið lykill
að aukinni samkeppnishæfni verk-
smiðjunnar hér á landi, að sögn
Álfheiðar. Við framleiðslu á kísil-
málmi myndast hitaorka sem fer
út í andrúmsloftið. „Hér væri hægt
að setja upp orkuendurvinnslu sem
væri um 25 megavött af uppsettu
afli, sem samsvarar ríf lega fimmt-
ungi orkunotkunar okkar á hverju
ári. Auk þess er hægt að nýta hann
til hitaveitu. Mjög spennandi val-
kostir, en það kostar mikla peninga
að fjárfesta í orkuendurvinnslu af
þessu tagi.
Á ríkissjóður þá að niðurgreiða
rekstur stóriðjunnar?
„Þetta snýst ekki um það heldur
að okkur sé ekki refsað tvisvar með
koltvísýringstollum. Við erum
nú þegar að kaupa ETS-einingar
fyrir þeirri koltvísýringslosun
sem verksmiðjan hér er ábyrg fyrir
og erum að nota hreina raforku
til framleiðslunnar. Hins vegar er
raforkuverðið hér að nálgast það
sem tíðkast í Evrópu, en þar eru
það kolaorkuverðin sem eru á jaðri
kostnaðarkúrfunnar og hækka
raforkuverðið með öllum sínum
koltvísýringsrefsitollum. Við erum
því að borga tvisvar fyrir okkar
losun, beint með kaupum á meng-
unarkvótum og svo óbeint því
kolaorkuverðið smitar yfir á evr-
ópska raforkumarkaðinn. Ef þess-
ari verksmiðju verður lokað hér þá
verður hún opnuð aftur í Kína, þar
sem kol eru brennd til að framleiða
sömu vöru, því eftirspurnin eftir
kísilmálmi mun ekki minnka þó að
Elkem á Grundartanga verði lokað.
Að óbreyttum raforkusamningi
er líklegt að eigendur skoði að loka
henni. Við erum hins vegar að gera
allt til að láta þetta ganga og það er
mitt verkefni hér. En það segir sig
sjálft að ef það er tap ár eftir ár þá
mun verksmiðjunni verða lokað,“
segir Álfheiður Ágústsdóttir.
Álfheiður Ágústsdóttir, forstjóri Elkem á Íslandi, segir að mögulegt sé að nýta affallsgufu frá framleiðslunni til uppsetningar á 25 megavatta virkjun. Í Noregi hefur hið opinbera komið að fjármögnun slíkra verkefna. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Gætu minnkað losun
um 90 prósent
Elkem á Íslandi losar á bilinu 400
til 450 þúsund tonn af koltvísýr-
ingi á ári hverju, sem samsvarar
allt að 10 prósentum af heildar-
losun á Íslandi á ári hverju. „Það
er tækni fyrir hendi sem gæti
dregið úr þessari losun um allt
að 90 prósent. Þá er annað hvort
hægt að dæla koltvísýringnum
niður í jörðina með til að mynda
tækni CarbFix eða framleiða
aðrar hrávörur úr honum, til
dæmis metanól, metan eða
lífdísil. Svona verkefni kalla á
miklar fjárfestingar og samstarf
iðnaðar- og orkufyrirtækja.
Elkem í Noregi hefur þegar
hafið með stuðningi stjórnvalda
hagkvæmniathugun á þessum
möguleikum og kunna niður-
stöður hennar að nýtast okkur
hér.
Þar komum við hins vegar
aftur að framtíðarhorfum fyrir
rekstur okkar hér á landi, fyrir-
sjáanlegu og samkeppnishæfu
raforkuverði og aðkomu hins
opinbera að fjárfestingum í
slíkri nýsköpun. Fá einstök verk-
efni geta dregið jafn mikið úr
vistspori Íslands. Stórir áfangar
í umhverfismálum kalla á mikla
samvinnu.“
ja
n.
0
2
nó
v.
02
se
p.
0
3
jú
l.
04
m
aí
. 0
5
m
ar
. 0
6
ja
n.
0
7
nó
v.
07
se
p.
0
8
jú
l.
09
m
aí
. 1
0
m
ar
. 1
1
ja
n.
1
2
nó
v.
12
se
p.
1
3
jú
l.
14
m
aí
. 1
5
m
ar
. 1
6
ja
n.
1
7
nó
v.
17
se
p.
1
8
jú
l.
19
m
aí
. 2
00
200
400
600
800
1.000
1.200
1.400
1.600
1.800
✿ Stundarverð á 75 prósent hreinum kísilmálmi á
Evrópumarkaði (evrur/tonn)
Þar var ákvarðað
verð sem hvorki við
né Landsvirkjun vorum
ánægð með. Við erum hins
vegar með kaupskyldu í
þessum samningi og erum
bundin af honum til ársins
2029.
Hér á Íslandi sitjum
við svolítið eftir þar
sem hið opinbera hefur ekki
sýnt þessum málum sama
áhuga og yfirvöld í Noregi
og Kanada
tapas.is
TAPAS PLATTI
32 STK.
Í veisluþjónustu okkar finnur þú frábært úrval
veitinga. Veislutilboð, sælkera- og lúxusveislur fyrir
sérstök tilefni og svo getur þú líka valið þína
uppáhaldsrétti og hannað þína eigin veislu.
Skoðaðu úrvalið á tapas.is
Pantanir í síma 551-2344
og á tapas@tapas.is
• Kolkrabbi með trufflu-kartöflumús og
lime-pistasíu vinaigrette í boxi
• Marineraðar lambalundir með lakkríssósu í boxi
• Djúpsteiktur humar í orly með aioli í boxi
• Beikonvafin hörpuskel og döðlur á spjóti
með sætri chilli-sósu
• Nautaspjót með piparrótarsósu
• Kjúklingaspjót með alioli
• Tapassnitta með andabringu, aioli og mandarínu
• Tapassnitta með serrano hráskinku,
piparrótarsósu og melónu
MARS TILBOÐ
12.900 KR.
(FULLT VERÐ: 18.880 KR.)
7M I Ð V I K U D A G U R 1 0 . M A R S 2 0 2 1 MARKAÐURINN