Hinsegin dagar í Reykjavík - Aug 2015, Page 7
Landsbankinn 410 4000landsbankinn.is
J
Ó
N
S
S
O
N
&
L
E
’M
A
C
K
S
•
jl
.i
s
•
S
ÍA
Gleðilega hátíð
Velkomin á Hinsegin
daga í Reykjavík
Welcome to Reykjavik Pride
Jón Kjartan Ágústsson og Ásta Kristín Benediktsdóttir ritstjórar
Hinsegin dagar í Reykjavík eru haldnir hátíðlegir í sautjánda sinn í ár og hátíðin
er glæsileg sem endranær. Fjölbreytnin er í fyrirrúmi en næstum 30 viðburðir
standa gestum til boða frá þriðjudeginum 4. ágúst til sunnudagsins 9. ágúst.
Í boði verða tónlistarviðburðir, ljósmyndasýning, sirkusveisla, dansleikir og
fræðsluviðburðir, svo fátt eitt sé nefnt, og allir ættu því að finna eitthvað við
sitt hæfi.
Þema Hinsegin daga í ár er heilsa og heilbrigði. Samkvæmt skilgreiningu
Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar er heilsa „ástand líkamlegrar, andlegrar og
félagslegrar vellíðunar en ekki einungis það að vera laus við sjúkdóma og kvilla“
og efnistök ritsins eru í samræmi við það – víðfeðm og fjölbreytt. Meðal þess
sem litið er til er aðgangur hinsegin fólks að heilbrigðisþjónustu, gæði þeirrar
þjónustu sem veitt er og brotalamir sem þar má finna. Sérstakir þættir sem huga
þarf að hvað varðar heilsu hinsegin fólks eru enn fremur í sviðsljósinu, svo sem
HIV, tilfinningaleg, andleg og félagsleg líðan og sú læknisþjónusta sem intersex
fólk og trans fólk þarf á að halda – eða þarfnast einmitt ekki. Með því að leggja
áherslu á heilsu og heilbrigði vilja Hinsegin dagar stuðla að opinni umræðu um
þá staðreynd að hinsegin fólk er fjölbreyttur hópur sem þarf oft á sérhæfðri
heilbrigðisþjónustu að halda sem er sérstaklega sniðin að heilsufarslegum
þörfum hópsins. Nauðsynlegt er að hinsegin samfélagið og landsmenn allir geri
þá kröfu til íslenskra stjórnvalda að þessum þörfum sé mætt innan félagsmála-
og heilbrigðiskerfisins.
Forsíður blaðsins í ár eru fimm talsins og kallast á við þema hátíðarinnar.
Líkt og fram kom hér að ofan er heilbrigði ekki einungis skortur á sjúkdómum
heldur ástand þar sem andleg, sálræn og félagsleg vellíðan er til staðar í lífi
hvers og eins. Þótt yfirborð okkar virðist lygnt geta gleði og sorg, hæðir og
lægðir ólgað undir yfirboðinu, líkt og orðin sem rituð eru á líkama módelanna
fimm endurspegla. Ritstjórn blaðsins og listrænum stjórnanda þess, Guðmundi
Davíð Terrazas, hlotnaðist sá heiður að fá glæsileg módel úr okkar hópi til liðs
við sig og fá þau bestu þakkir fyrir. Orðin voru valin af handahófi og lýsa ekki
módelunum sérstaklega.
Fyrir hönd stjórnar og samstarfsnefndar Hinsegin daga í Reykjavík bjóðum
við gesti hjartanlega velkomna á hátíðina til að fagna með okkur menningu,
margbreytileika og mannréttindum hinsegin samfélagsins á Íslandi. Gleðilega
Hinsegin daga 2015!
This summer we celebrate the 17th Reykjavik Pride and the programme is
fabulous and diverse as usual. Between 4–9 August pride visitors are invited
to enjoy all sorts of events, from film screenings, circus shows, lectures and
panel discussions to sports events, and of course the main annual events:
the Opening Ceremony, the Pride Parade and the Pride Ball.
This time we have chosen a theme for the festival which is health, and
the interviews and articles in the programme guide are focused on various
aspects of health, health care and the queer society. The covers – there are
five of them! – are also a part of the theme, since they represent five different
queer bodies and words that designate both positive and negative (and neutral)
feelings, identity labels and other phenomena that often mark the lives of
LGBTIQ people and affect their physical, emotional and mental health.
On behalf of Reykjavik Pride we invite you to join us for a week of
pride, activism, entertainment, performance, education, glitter and joy –
Welcome to Reykjavik Pride 2015!
7