Hinsegin dagar í Reykjavík - aug. 2015, Síða 8
Þeir sem búið hafa í erlendri stórborg kannast margir við það
undarlega lögmál tilviljunarinnar að uppáhaldskaffihúsið, bakaríið
eða kínverska veitingastaðinn (þann ódýrasta ef um er að ræða
námsárin) skuli vera að finna í sömu götu og maður býr. Þannig var
því einmitt háttað um uppáhaldsbókabúðina mína þau sjö ár sem
ég bjó í ,,hommahverfinu“ í París; hún var til húsa skáhallt á móti
þar sem ég bjó, á horni Rue Sainte-Croix de la Bretonnerie og Rue
Vieille du Temple og var opin fram á kvöld alla sjö daga vikunnar.
Bókabúðin heitir Les Mots à la Bouche sem gæti útlagst
„Með orðin á vörunum“ og það sem fyrst vakti athygli mína var
útstillingarglugginn með bókum eftir fjölda höfunda sem ég
hafði mætur á; Lorca, Auden, Jean Genet, Jean Cocteau, Walt
Whitman og fleiri. Mig minnir að þar hafi líka verið stillt út bókum
um kvikmyndaleikstjórann Visconti og arkitektinn Philip Johnson.
Þegar inn var komið reyndist búðin bólstruð með bókum frá
gólfi til lofts, á nokkrum borðum og um allt gólf voru sömuleiðis
bókastaflar sem þurfti að skáskjóta sér á milli og ekki var með góðu
móti rúm fyrir fleiri en fimm viðskiptavini í einu. Þar bættust við
fleiri góðkunningjar; Rimbaud, Verlaine, Oscar Wilde, Proust, Byron
lávarður, Emily Dickinson, Henry James, Marguerite Yourcenar,
Tennessee Williams, Allen Ginsberg og nóbelsverðlaunahafarnir
Selma Lagerlöf, André Gide, Thomas Mann og Patrick White.
Þar voru líka bækur eftir ýmsa fræðimenn – Roland Barthes,
Foucault, Wittgenstein – og einnig um myndlistarmenn, allt frá
Michelangelo, Leonardo da Vinci og Caravaggio til Andy Warhol og
ýmissa samtímalistamanna. Í mínu fyrsta innliti í búðina keypti ég
samtalsbók við myndlistarmanninn Francis Bacon. Það tók mig hins
vegar nokkurn tíma að átta mig á því að Les Mots à la Bouche væri
hinsegin bókabúð en allir ofangreindir rithöfundar og listamenn eru
eða voru hinsegin.
Les Mots à la Bouche var innvígsla mín í bókmenntaheiminn;
þar var ég daglegur gestur og kynntist verkum fjölda rithöfunda
sem ég þekkti ekki áður, meðal annars hinum djarfa, frumlega og
fallega Hervé Guibert. Guibert framdi sjálfsmorð, orðinn blindur
og langt leiddur af HIV-veirunni árið 1992, 37 ára gamall. Ég grét
í þrjá daga og hugsa enn oft um það hvílíkur missir fráfall þessa
rithöfundar var fyrir bókmenntaheiminn. Nokkrum árum áður lést
náinn vinur Guiberts, heimspekingurinn Michel Foucault, einnig
af völdum HIV-veirunnar og í upphafi tíunda áratugarins mátti
stundum greina sjúkdóminn í andlitum nágranna minna í París.
Í dag eru til ágæt lyf við HIV-veirunni og samkynhneigðir
karlmenn eru í minnihluta þeirra sem smitast. Enn eru þó önnur
mein sem herja á hinsegin fólk í heiminum, svo sem félagsleg
útskúfun og þöggun og víða um lönd ofsóknir, fangelsun, pyntingar
og „mannshvörf“. Í nágrannalöndum okkar hefur hinsegin fólk í
vaxandi mæli orðið að skotspæni öfgasinnaðra þjóðernishópa, ásamt
öðrum minnihlutahópum.
En hvernig er staðan á Íslandi sem er fyrirmynd margra annarra
þjóða hvað varðar víðsýni í mannréttindamálum? Hér mætti
vissulega nefna fáheyrða – jafnvel á skala milljónaþjóða – hundrað
þúsund manna þátttöku í vinsælustu baráttugöngu þjóðarinnar;
gleðigöngunni. Að sama skapi er lagaleg staða hinsegin fólks á
Íslandi að mörgu leyti mjög góð. Er þá ekki allt í gúddí?
Því miður sýna nýleg dæmi um hatursumræðu á
samfélagsmiðlum að baráttunni er ekki lokið. Einmitt þegar maður
hélt að réttindamál hinsegin fólks á okkar litla fyrirmyndarlandi
væru komin í örugga höfn og Ísland gæti einbeitt sér að því að
vera leiðandi, jákvætt afl í mannréttindamálum heimsins – einmitt
þegar maður hélt að öll þjóðin stæði einhuga að baki hinsegin
fólki, þá gerist það sem eldri og reyndari baráttujaxlar höfðu
reyndar varað við, að einhver kóninn nær fjölmiðlaathygli með því
að lýsa því yfir að ,,enda þótt hann hafi persónulega ekkert á móti
hinsegin fólki, þá …“ og svo framvegis. Og eins og hendi sé veifað
loga samfélagsmiðlar af heift, mannvonsku og heimsku þar sem
hver apinn apar eftir öðrum. Ég segi: þöggum niður í hundunum
um leið og þeir byrja að gjamma (nei, suma umræðu þarf ekki
að taka) og höldum áfram að vera sú rödd sem eftir er tekið í
mannéttindamálum.
Á sama hátt og það hlýtur að vera hverju foreldri mikilvægt
að barn þess sé hamingjusamt og sátt við sjálft sig skyldi maður
ætla að það væri kappsmál hverrar þjóðar – og hér vitna ég til
heimspekingsins Jeremy Benthams – að stefna með ráðum og dáð
að sem mestri hamingju sem flestra þegna sinna.
,,Regnbogar eru af ýmsum stærðum og gerðum.“ (www.
visindavefur.is/svar.php?id=1572) Hömpum margbreytileikanum,
vinnum saman að því að búa til betri heim. Og líkt og sagt var um
Charlie í París fyrr á þessu ári þá segjum við: Við erum öll hinsegin.
Gleðilega Hinsegin daga!
Líf okkar
í hinsegin
heimi
Auður Ava Ólafsdóttir
rithöfundur
Ljósmyndari: Anton Brink
8