Hinsegin dagar í Reykjavík - aug. 2015, Side 19

Hinsegin dagar í Reykjavík - aug. 2015, Side 19
Ég hata Blindrabókasafnið því þar keluðum við stundum í bílakjallaranum uppvið ruslafötur og ég skáldaði sögur af eftirlifendunum úr flugslysi og bað þig að þrýsta lífbeininu uppvið mig svo ég fyndi betur lyktina af sætum blautum stráum áður en þau breytast í hey. Mig langar að horfa með þér á vetrarsport eða heimsendamyndir og að þurfa ekki að vera lengur hrædd því ég veit að þú vaknar líka stundum á nóttunni við að snjórinn lokar húsinu og einhver stendur yfir þér og stynur að guð sé góður. Núna er enginn annar í kjallaranum en bílljósin birta leifturmyndir af augnhvítunni þinni í pollunum og rúðuþurrkurnar eru reiðar svo ég hugsa um að bíta í geirvörturnar þínar á köldu dýnunni og hlusta á þig rymja í eyra mitt orðum sem ég skil ekki en ég er alein því það er enginn ósýnilegur í aftursætinu lengur og saltið í maganum ryður sér aftur leið upp í kok. Bókmenntaviðburðurinn á Hinsegin dögum í fyrra sló í gegn og í ár verður leikurinn endurtekinn. Fluttir verða fjölbreyttir textar, sögur jafnt sem ljóð og nýtt efni í bland við eldra. Dagskráin verður brotin upp með tónlistaratriðum og óvæntum uppákomum. Fram koma Kristín Svava Tómasdóttir, Júlía Margrét Einarsdóttir, Kristín Ómarsdóttir, Elísabet Jökulsdóttir, Jón Örn Loðmfjörð og fleiri. Kynnir er Salóme Rannveig. Last year’s literary event was such a great success that Reykjavik Pride has decided to once again invite you to enjoy a poetic Friday afternoon of Icelandic literary readings and performances. Among the artists that will perform are Kristín Svava Tómasdóttir, Júlía Margrét Einarsdóttir, Kristín Ómarsdóttir, Elísabet Jökulsdóttir and Jón Örn Loðmfjörð, with Salóme Rannveig hosting. Please note that the event will be in Icelandic. Hamraborg í rigningu Hýrir húslestrar QueeReads Iðnó, Vonarstræti 3, föstudaginn 7. ágúst kl. 17:00. Aðgangur ókeypis. Iðnó, Vonarstræti 3, Friday 7 August at 5 p.m. Free admission. 19

x

Hinsegin dagar í Reykjavík

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hinsegin dagar í Reykjavík
https://timarit.is/publication/1512

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.