Hinsegin dagar í Reykjavík - ágú. 2015, Blaðsíða 19
Ég hata Blindrabókasafnið því þar keluðum við stundum í
bílakjallaranum uppvið ruslafötur og ég skáldaði sögur af
eftirlifendunum úr flugslysi og bað þig að þrýsta lífbeininu uppvið
mig svo ég fyndi betur lyktina af sætum blautum stráum áður en
þau breytast í hey. Mig langar að horfa með þér á vetrarsport eða
heimsendamyndir og að þurfa ekki að vera lengur hrædd því ég veit
að þú vaknar líka stundum á nóttunni við að snjórinn lokar húsinu og
einhver stendur yfir þér og stynur að guð sé góður.
Núna er enginn annar í kjallaranum en bílljósin birta leifturmyndir
af augnhvítunni þinni í pollunum og rúðuþurrkurnar eru reiðar svo ég
hugsa um að bíta í geirvörturnar þínar á köldu dýnunni og hlusta á
þig rymja í eyra mitt orðum sem ég skil ekki en ég er alein því það er
enginn ósýnilegur í aftursætinu lengur og saltið í maganum ryður sér
aftur leið upp í kok.
Bókmenntaviðburðurinn á Hinsegin
dögum í fyrra sló í gegn og í ár verður
leikurinn endurtekinn. Fluttir verða
fjölbreyttir textar, sögur jafnt sem ljóð
og nýtt efni í bland við eldra. Dagskráin
verður brotin upp með tónlistaratriðum
og óvæntum uppákomum. Fram
koma Kristín Svava Tómasdóttir,
Júlía Margrét Einarsdóttir, Kristín
Ómarsdóttir, Elísabet Jökulsdóttir,
Jón Örn Loðmfjörð og fleiri. Kynnir er
Salóme Rannveig.
Last year’s literary event was such a
great success that Reykjavik Pride
has decided to once again invite you
to enjoy a poetic Friday afternoon
of Icelandic literary readings and
performances. Among the artists
that will perform are Kristín
Svava Tómasdóttir, Júlía Margrét
Einarsdóttir, Kristín Ómarsdóttir,
Elísabet Jökulsdóttir and Jón Örn
Loðmfjörð, with Salóme Rannveig
hosting. Please note that the event
will be in Icelandic.
Hamraborg í rigningu
Hýrir húslestrar
QueeReads
Iðnó, Vonarstræti 3,
föstudaginn 7. ágúst kl. 17:00.
Aðgangur ókeypis.
Iðnó, Vonarstræti 3,
Friday 7 August at 5 p.m.
Free admission.
19