Hinsegin dagar í Reykjavík - Aug 2015, Page 22

Hinsegin dagar í Reykjavík - Aug 2015, Page 22
Á heimasíðu HIV-Íslands kemur fram að einkunnarorðin sem félagið vinnur út frá séu til dæmis fræðsla og forvarnir en þar eru líka orð eins og sýnileiki, viðhorf, þátttaka og lífsgæði. Hefur starfsemi félagsins breyst mikið síðan það var stofnað árið 1988? Hlutverk félagsins er að styðja við HIV- jákvætt fólk og aðstandendur þeirra og það hefur í sjálfu sér ekkert breyst. Við höfum frá upphafi staðið fyrir öflugri fræðslustarfsemi og förum með skipulagða fræðslu í alla grunn- og framhaldsskóla landsins, á vinnustaði og margar stofnanir. Starfsemi félagsins hefur þó eðlilega breyst talsvert vegna þess að ásýnd sjúkdómsins og raunveruleiki þess að vera með HIV er allur annar en hann var í þá daga. Það var dauðadómur að greinast með HIV og fordómarnir og óttinn við sjúkdóminn var allt öðruvísi og alvarlegri en í dag. Eftir tilkomu lyfjanna lítur tilvera HIV-jákvæðra miklu betur út og fólk getur lifað eðlilegu lífi. Lyfin og áhrif þeirra HIV-sjúkdómurinn er í dag skilgreindur sem langvinnur sjúkdómur svipað og sykursýki eða flogaveiki. Það þarf að taka lyf og þau halda sjúkdómnum niðri; veiran er í dvala. Lyfin fara þó mismunandi í fólk. Sumir finna aukaverkanir, sérstaklega þeir sem eru líka með aðra undirliggjandi sjúkdóma og fólk sem þarf að taka önnur lyf. Fólk sem hefur verið lengi á HIV- lyfjum, sérstaklega þeim fyrstu sem komu á markaðinn fyrir aldamótin, finnur líka oft fyrir meiri aukaverkunum og hefur jafnvel þróað með sér háan blóðþrýsting og háa blóðfitu, hjartasjúkdóma, beinþynningu og stoðkerfisvanda, svo dæmi séu tekin. Ég held þó að ég tali fyrir hönd flestra HIV- jákvæðra þegar ég segi að þeir sem eru með HIV skilgreina sig ekki sem sjúklinga. Fólk lifir tiltölulega eðlilegu lífi og finnur ekki mikið fyrir þessu. Sýnileikinn ekki nægur Varðandi sýnileikann þá er hann því miður ekki meiri en áður. Við sem vinnum með HIV-jákvæðum erum sammála um það. Langflestir sem eru með HIV taka þátt í samfélaginu og eru á vinnumarkaðnum en deila því oft ekki með öðrum að þeir séu með þennan alvarlega sjúkdóm. Áður fyrr þegar fólk þróaði með sér alnæmi og dó jafnvel einu til tveimur árum eftir greiningu var ekkert annað í stöðunni en að gera sér grein fyrir að þú værir með þennan skelfilega sjúkdóm og myndir deyja úr honum. Þá var umræðan meiri vegna þess að ástandið var alvarlegra. Núna sýnist okkur að fólki finnist þetta vera minna mál. Það er alveg rétt en þetta er samt alls ekki búið. Það að vera í lyfjameðferð alla ævi er stórmál. Fólk verður gjarnan mjög óttaslegið þegar það greinist með HIV og það er slæmt ef það deilir ekki þessari staðreynd með neinum. Það er alls ekki búið að skoða þetta nógu mikið en rannsóknir sýna samt að þessum einstaklingum líður ekki vel og þegar á líður eiga þeir oft erfiðara með að fóta sig í samfélaginu. Sjálfsfordómar og höfnun Líðan og félagsleg upplifun HIV-jákvæðra á Íslandi er ekki nógu góð að mínu mati. Þessu fylgir heilsufarslegt álag og líðan fólks tengist líka mjög sýnileika þess. Það er búið að skoða þetta til dæmis í Danmörku og Noregi og þar hefur komið í ljós að þeir sem eru opnir með að þeir séu HIV-jákvæðir gagnvart vinahópnum og í fjölskyldunni og geta sagt að þeir séu með HIV án þess að það sé að líða yfir þá – þeim líður betur. Sjálfsfordómar eru algengir; fólk dæmir sig sjálft mjög harkalega fyrir að hafa lent í þessum aðstæðum. Fólk óttast stimplun og leggur mikið á sig til að fela ástandið. Samfélagið segir fólki ekki beint að skammast sín en viðheldur samt þessari skömm að því leyti að ef þú greinist með HIV er gefið í skyn að það sé betra að halda því leyndu, jafnvel þótt þér myndi finnast betra að segja frá því. HIV-jákvæðum er til dæmis oft beinlínis ráðlagt að segja ekki frá á vinnustöðum. Margir segjast hafa upplifað höfnun en það að vera hafnað er ein skelfilegasta tilfinning sem mannskepnan finnur. Við leggjum mikið á okkur til að falla í hópinn. Það er slítandi og fólki sem er búið að vera lengi með HIV hættir við þunglyndi, eins og öðrum sem eru með langvinna sjúkdóma, og því er líka hættara við alvarlegum streitueinkennum. Stjórn HIV-Íslands og framkvæmdastjóri. Frá vinstri: Árni Friðrik Ólafarson, Ragnar Erling Hermannsson, Jón Sveinsson, Ingi Hans Ágústsson og Einar Þór Jónsson. Á myndina vantar Guðna Baldursson og Sigrúnu Grendal Magnúsdóttur. Einar glaðbeittur á svip með séra Hirti Magna Jóhannssyni og Margréti Pálma á minningarstund í Fríkirkjunni 31. maí sl. 22

x

Hinsegin dagar í Reykjavík

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hinsegin dagar í Reykjavík
https://timarit.is/publication/1512

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.