Hinsegin dagar í Reykjavík - aug 2015, Qupperneq 24
Smithættan mest hjá þeim sem ekki
hafa greinst
Það er rosalega mikilvægt að átta sig á
því að þeir sem eru með HIV og vita ekki
af því geta verið að smita aðra. Staðan er
aftur á móti gerbreytt frá því sem áður
var varðandi þá sem eru greindir og eru á
lyfjum. Á Íslandi eru um 96–98% þeirra sem
hafa greinst á lyfjum. Það þýðir að veiran
er í dvala, sá smitaði er einkennalaus og þá
smitar hann ekki aðra.
Þess vegna er svo mikilvægt að allir
sem hafa lent í aðstæðum þar sem þeir
gætu hafa smitast fari í próf. Allir sem
greinast jákvæðir eru settir strax á lyf og
þá er viðkomandi ekki smitandi. Það er
mikilvægt að vita að þeir sem eru greindir
og á lyfjum eru ekki hættulegir. Þeir sem
vita hins vegar ekki að þeir eru með HIV;
það er miklu frekar að þeir séu hættulegir.
Þetta hljómar frekar öfugsnúið en svona
er staðan. HIV-jákvæður einstaklingur í
lyfjameðferð er ekki smitandi og ætti því
ekki að vera síðri valkostur í ástalífinu en
einhver annar.
Það er líka mjög mikilvægt að gera sér
grein fyrir því að þegar aðrir kynsjúkdómar
eru fyrir, til dæmis sýfilis eða lekandi, er
HIV meira smitandi. Ef við tökum sem
dæmi par þar sem annar aðilinn er með
HIV og hinn ekki getur parið búið saman
árum saman og stundað kynlíf án þess að
hinn aðilinn smitist. HIV er nefnilega svo
lítið smitandi. En um leið og það er kominn
annar kynsjúkdómur eða sár þannig að
það er opið inn í blóðrásina er HIV meira
smitandi. Veiran getur til dæmis lifað í
blóðvökva í sprautum af því að þar er hún
í einangruðu rými og ef annar aðili notar
sömu sprautu er mikil smithætta. En það
þurfa að skapast ákveðnar aðstæður í
kynlífi til að smit verði og endaþarmsmök
eru áhættusöm hvað það varðar.
Framtíðin er björt
Nú hefur Alþjóðaheilbrigðisstofnunin gefið
formlega út yfirlýsingu þess efnis að HIV-
jákvæðir sem eru á lyfjameðferð geti ekki
smitað aðra. Þetta hljóta að vera góðar
fréttir?
Þetta hefur gríðarlega mikið að segja.
Þetta er byltingarkennd breyting fyrir
forvarnarstarfið og gefur nýja von um að
hægt sé að koma böndum á útbreiðslu
sjúkdómsins. Fyrir einstaklingana sjálfa er
léttirinn stórkostlegur. HIV-jákvætt fólk
sem upplifir sig heilsuhraust og fullt af
lífsorku getur lifað eðlilegu lífi, eignast
börn, gert framtíðaráætlanir og þarf ekki
að óttast að smita aðra. Björtustu vonir
okkar eru líka þær að stimplun og fordómar
tilheyri bráðlega fortíðinni. Þau ríki heims
sem hafa búið við smitsjúkdómalög sem
hamla ferðafrelsi fólks með HIV eru byrjuð
að endurskoða þau lög. Bandaríkin hafa til
dæmis afnumið ferðabann HIV-jákvæðra
til landsins. Nútímalýðræðisríki eins og
Svíþjóð, sem setti mjög umdeild lög um
HIV á sínum tíma, eru líka að endurskoða
sín lög. Framtíðin varðandi HIV, von um
endanlega lækningu og breytt viðhorf hefur
aldrei verið eins björt.
Those who take HIV drugs to not pass
the virus on to others
In this interview Einar Þór Jónsson
discusses the role of the organisation
HIV-Iceland and the reality of living as a
HIV-positive individual today. New drugs
that control the virus level have now
made it possible for HIV-positive people
to live a ‘normal’ life, and the World
Health Organization recently announced
that those who receive successful HIV
treatment do not pass the virus on to
others. Einar points out that although
this new reality is a great step forward,
HIV-positive individuals still face many
obstacles, such as prejudices and social
isolation and they often feel pressured to
keep their HIV status a secret. The future
is nevertheless bright, and the hope for
a permanent cure and less social stigma
have never been higher.
HIV-jákvæður einstak-
lingur í lyfjameðferð er ekki
smitandi og ætti því ekki
að vera síðri valkostur í
ástalífinu en einhver annar.
„
“
Frá minningarstund um þá sem látist hafa úr alnæmi hér á landi sem haldin
var í Fríkirkjunni 31. maí sl.
Björgvin G
íslason, Einar Þór og Sigurlaug H
auksdóttir félagsráðgjafi.
24