Hinsegin dagar í Reykjavík - aug. 2015, Side 30

Hinsegin dagar í Reykjavík - aug. 2015, Side 30
HIV-Ísland var stofnað 5. desember 1988. Samtökunum var komið á fót til að auka þekkingu og skilning á HIV og alnæmi og til að styðja sjúka og aðstandendur þeirra. Eitt mikilvægasta verkefni félagsins er skipulögð fræðsla um HIV og stöðug vinna gegn fordómum og mismunun. Skrifstofa félagsins er til húsa að Hverfisgötu 69, 101 Reykjavík. Jón Tryggvi Sveinsson er formaður félagsins og framkvæmdastjóri er Einar Þór Jónsson, kennari og lýðheilsufræðingur. Sími: 552-8586. Netfang: hiv-island@hiv-island.is. Á göngudeild smitsjúkdóma (A3) á Landspítala – háskólasjúkrahúsi í Fossvogi er tekið á móti einstaklingum í HIV-ráðgjöf og mótefnamælingu. Mótefnamælingin er ókeypis og hægt er að fá tíma með litlum fyrirvara, oftast samdægurs. Móttakan er opin frá 8–16 alla virka daga. Sími: 543-6040. HIV-ÍSLAND HIV-PRÓF Tölum um HIV – umræður og HIV-próf Let’s talk about HIV – discussions and HIV test Iðnó, Vonarstræti 3, fimmtudaginn 6. ágúst kl. 18:00. Aðgangur ókeypis. Iðnó, Vonarstræti 3, Thursday 6 August at 6 p.m. Free admission. Samtökin HIV-Ísland standa fyrir opnum umræðufundi um HIV á Hinsegin dögum. Framkvæmdastjóri samtakanna, Einar Þór Jónsson, flytur stutta tölu og í framhaldinu munu gestir og skipuleggjendur ræða saman um allt milli himins og jarðar sem tengist því að greinast og lifa með HIV, forvarnir, samfélagsleg viðhorf, stigma, lýðheilsu og margt fleira. Athugið að á staðnum verður einnig starfsfólk Smitsjúkdómadeildar LSH Í Fossvogi og allir geta farið í HIV-próf sér að kostnaðarlausu. HIV-Iceland invites you to an open discussion about living with HIV. Einar Þór Jónsson, the manager of HIV-Iceland, opens the event with a short introduction and afterwards guests are encouraged to participate in an open and honest discussion about various issues related to HIV. The staff from National University Hospital will be there and everyone can have a free HIV test on the spot. Please note that the event will be in Icelandic. 30

x

Hinsegin dagar í Reykjavík

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hinsegin dagar í Reykjavík
https://timarit.is/publication/1512

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.