Hinsegin dagar í Reykjavík - aug. 2015, Side 52
Gleðigangan er hápunktur Hinsegin daga.
Í henni sameinast lesbíur, hommar, tví- og
pankynhneigðir, trans fólk, intersex fólk
og aðrir hinsegin einstaklingar í einum
hópi ásamt fjölskyldum sínum og vinum
til að staðfesta tilveru sína, sýnileika og
gleði, ásamt því að minna á þau baráttumál
sem skipta hvað mestu máli hverju sinni.
Hinsegin dagar skipuleggja gleðigönguna
og stýra hvaða atriði fá aðgang að henni
en atriðin sjálf eru sprottin úr grasrótinni.
Einstaklingar og hópar geta skipulagt atriði
og sótt um þátttöku í göngunni en Hinsegin
dagar setja sem skilyrði að öll atriði miðli
skýrum skilaboðum sem varða veruleika
hinsegin fólks á einn eða annan hátt.
Gönguleið og uppstilling
Byrjað verður að raða göngunni upp
á Vatnsmýrarvegi (rétt hjá BSÍ) kl. 12
laugardaginn 8. ágúst. Þeir þátttakendur
sem eru með atriði verða skilyrðislaust
að mæta á þeim tíma til að fá sitt númer og
stilla sér upp.
Gangan leggur stundvíslega af stað kl.
14 og bíður ekki eftir neinum. Gönguleiðin
liggur eins og undanfarin ár eftir
Vatnsmýrarvegi, Sóleyjargötu, Fríkirkjuvegi
og Lækjargötu og framhjá Arnarhóli þar
sem við taka glæsilegir útitónleikar. (Sjá
kort bls. 34–35)
Skráning og þátttaka
Þátttakendur sem ætla að vera með atriði
í gleðigöngunni verða að sækja um það til
Hinsegin daga eigi síðar en laugardaginn
1. ágúst. Nauðsynlegt er að skrá atriði með því
að fylla út rafrænt umsóknareyðublað sem
finna má á vefsíðunni www.hinsegindagar.is.
Nánari upplýsingar veita göngustjórarnir
Ásta, Eva, Helga, Setta og Steina en hægt
er að senda þeim póst á gongustjori@gmail.
com. Athugið að ekki er hægt að veita
fólki með atriði aðgang að göngunni
nema rafræna umsóknin hafi verið fyllt
út og send og skilmálar samþykktir.
Hinsegin dagar leggja áherslu á að þeir
sem vilja taka þátt í göngunni án þess að
vera með sérstakt atriði fylgi henni alla leið
frá Vatnsmýrarvegi. Aðrir eru vinsamlega
beðnir um að bíða með að slást í hópinn þar
til síðasti vagninn hefur farið framhjá.
Auglýsingar bannaðar
Hinsegin dagar eru stoltir af því að
gleðigangan í Reykjavík er ein af fáum
sambærilegum göngum í heiminum þar
sem auglýsingar fyrirtækja og þjónustu
eru óheimilar. Með auglýsingabanninu
er undirstrikað að gangan er
grasrótarviðburður og þátttakendur taka
þátt til að styðja baráttuna og málstaðinn
en ekki til að styrkja eða auglýsa fyrirtæki.
Í örfáum undantekningartilvikum
eru auglýsingar heimilar en þá þarf
að sækja sérstaklega um undanþágu
til göngustjórnar. Athugið að allar
ósamþykktar auglýsingar á bílum og fatnaði
þarf að hylja áður en gangan fer af stað.
Gleðigangan
The Pride Parade
Vatnsmýrarvegi (BSÍ),
laugardaginn 8. ágúst kl. 14:00.
Vatnsmýrarvegur (BSÍ),
Saturday 8 August at 2 p.m.
52