Hinsegin dagar í Reykjavík - Aug 2015, Page 64
„þau vissu betur“. Þess vegna finnst mér
gríðarlega óþægilegt þegar fólk talar um
að það hafi nú vitað hitt og þetta varðandi
kynhneigð eða kynvitund einhvers, vegna
þess að í mínu tilfelli voru þessar hugmyndir
svo fjarri lagi og þær voru meiðandi,
særandi og þvingandi.
„Hin fullkomna kona“
Ugla: Þegar ég kom svo út úr skápnum
sem trans var eins og það væri verið að
þvinga mig í annan kassa. Ég fékk alls
kyns skilaboð frá öðru trans fólki og þeim
sem sáu um mitt ferli um hvernig væri
ásættanlegt að ég hegðaði mér sem kona.
Mér fannst það alltaf pínu óþægilegt en
kunni ekki alveg að skýra það þannig að
ég spilaði með. Ég var þegar orðin meistari
í því að leika hlutverk og blekkja fólk og
vissi hvernig ég átti að uppfylla ákveðin
skilyrði. Ég varð því konan sem búist
var við að ég yrði – ég málaði mig, gerði
hefðbundna stelpulega hluti, afneitaði
áhugamálum sem samræmdust ekki því sem
var kvenlegt, sagði réttu hlutina og varð
„hin fullkomna kona“. Af þessum sökum
gekk ég mjög hratt í gegnum ferlið og fékk
því framgengt sem ég þurfti, vegna þess
að ég vissi nákvæmlega hvað fólk vildi
heyra og hvernig ég ætti að komast að
orði til að fá mínu framgengt. Þetta þýðir
samt alls ekki að ég hafi gengið í gegnum
kynleiðréttingarferlið á röngum forsendum,
heldur einfaldlega að ég vissi hvað ég
þyrfti að gera og segja til að geta gengið
auðveldlega í gegnum ferlið og fengið
aðgang að kerfinu.
Síðar meir áttaði ég mig svo á því
hversu upptekin ég var af þessu og að ég
væri farin að þróast í átt sem mér líkaði
ekki. Enn og aftur fékk ég ekki að vera ég,
heldur var ég að uppfylla einhverjar kröfur
64