Fréttablaðið - 24.04.2021, Page 32
heimilisins, Gunnar, fékk svo tvær
matreiðslubækur í jólagjöf sem eru
helstu leiðarljósin okkar í líb-
önsku matargerðarlistinni; Mezze
Cookbook (Phaidon) eftir Salma
Hage og Sumac eftir Þráin Frey Vig-
fússon.“
Einstök, heillandi krydd
einkenna bragð réttanna
Hvað er það sem heillar ykkur helst
við líbanska matargerð?
„Fyrir utan hin einstöku krydd
Za‘atar, Sumac, Ras el hanout og
Berbere, sem einkennir bragð rétt-
anna, eru í líbönskum mat notuð
fersk hráefni og mikið grænmeti
sem hentar vel þar sem dætur
okkar Sunnefa og Júlía eru báðar
vegan. Þá er einstaklega spenn-
andi að útbúa líbanska veislu sem
samanstendur af mörgum litlum
réttum sem hægt er að deila.
Ólíkar sósur og ídýfur með grillaða
brauðinu er eitt af því sem gerir
hlaðborðið og borðhaldið litríkt og
skemmtilegt.“
Saltaðar sítrónur fyrirferðar-
miklar í líbanskri matargerð
Þegar kemur að því að fá hráefni
í líbönsku réttina hafa Soffía og
Gunnar uppgötvað rétta staðinn
sem hefur að geyma hinar ótrú-
legustu kryddblöndur. „Sumar
kryddblöndurnar voru okkur
framandi en nú er hægt að fá
vel flest hér á landi. Við upp-
götvuðum verslunina Instanbul
Market á Grensásvegi sem er vel
falið leyndarmál þegar kemur að
framandi matargerð og þar höfum
við verið tíðir gestir. Þar höfum
við fundið öll krydd og hráefni
sem þarf í matargerðina, meðal
annars niðursoðnar grillaðar papr-
ikur og saltaðar sítrónur, sem eru
mjög fyrirferðarmiklar í líbanskri
matargerð. Lambakjöt er áberandi
í líbönskum mat og við höfum
notað hægeldað, úrbeinað lamba-
læri og lambaprime, en einnig
hentar kjúklingur vel, til dæmis
úrbeinuð kjúklingalæri.“
Meistarakokkur og handlangari
Mikla eldamennsku og umræðu
um mat á heimilinu má mest-
megnis rekja til ástar Gunnars á
góðum mat og börnin hafa klár-
lega tileinkað sér þennan áhuga
en dæturnar töfra iðulega fram
ljúffenga veganrétti sem þær elda
frá grunni.
„Hér er mjög lítið keypt af til-
búnum réttum og enginn sér eftir
tímanum sem fer í matseldina,“
segir Soffía sem segist vera góður
handlangari. Hún leggi á borð
og gangi frá og svo falli brauð-
gerð og bakstur oft í hennar hlut.
Um tíma átti afrískur matur hug
fjölskyldunnar en þau hafa meðal
annars ferðast saman til Marokkó
og Tansaníu.
Bara til að gefa smjörþefinn af
því sem getur verið á boðstólum
eru hér nokkrir réttir sem allir eru
vegan.
Paprikuídýfa með hnetum
er algjört lostæti
Til eru ýmsar útgáfur af þessu
lostæti en stuðst er við frábæra
uppskrift frá veitingastaðnum
Sumac.
„Við höfum prófað að grilla
papriku og líka keypt hana niður-
soðna í Instanbul Market. Hvort
tveggja var mjög gott. Ef paprikan
er grilluð þarf hún að vera orðin
vel mjúk og í lagi þótt hýðið brenni
aðeins, en þá er auðveldara að
taka af henni hýðið. Það sem gefur
einstakt bragð er reykta papriku-
duftið og hneturnar. Við setjum allt
saman í matvinnsluvél og blöndum
vel til að fá mjúka og kremaða
áferð og þá getur verið gott að nota
öflugan töfrasprota á blönduna.
Paprikuídýfan er ljúffeng ein og sér
með grilluðu brauði eða sem með-
læti með grilluðu kjöti.“
Paprikuídýfa með hnetum
250 g paprika (niðursoðin eða
grilluð)
50 g ristaðar, hýðislausar hakkaðar
heslihnetur
2 msk. púðursykur
1 msk. salt
100 ml. ólífuolía
1-2 hvítlauksrif
1/2 msk. salt
1 msk. eplaedik
1 msk. reykt paprikuduft
Setjið hráefnið í blandara. Til að ná
léttri og sléttri áferð er gott að fín-
vinna ídýfuna með töfrasprota.
Grillað eggaldin með
tahinisósu
Eggaldin er í sérstöku uppáhaldi
hjá fjölskyldunni. Skerið eggaldin
í tvennt eftir endilöngu og kryddið
sárið með salti, olífuolíu og góðri
kryddblöndu, eins og til dæmis Ber-
bere-blöndu sem er gerð úr chilli
dufti, papriku, kóríander, túrmerik,
svörtum pipar og kanil. Gott er að
gera það með nokkrum fyrirvara
svo eggaldinið geti drukkið í sig
kryddin. Grillið þar til það er orðið
vel mjúkt í gegn, og það má brenna
aðeins að utan. Einnig er hægt
að setja það í ofn á háum hita og
grilla þar. Borið fram með tahini-
jógúrtsósu og sítrónusafi kreistur
yfir. Skreytið með klettasalati og
granataeplafræjum, ef vill.
Tahini-sósa
Tahinisósa er sérlega ljúffengt
meðlæti með líbönskum mat og
myndar gott jafnvægi við bragð-
miklar kryddblöndur. Tahini er
þykkni úr sesamfræjum og gott
að blanda ólífuolíu, sítrónusafa,
hunangi og jógúrti saman við. Til
að hafa sósuna vegan notum við
vegan jógúrt. Allir þurfa að finna þá
blöndu sem þeim finnst bragðast
best. Ef tahini er mjög þykkt má
blanda vatni saman við til að fá
réttu áferðina. Svo má salta og
krydda eftir smekk, okkur finnst
kúmínduft passa vel við tahini-
bragðið.
3 dl hafrajógúrt
3 dl tahini
Safi úr ½ sítrónu
½ tsk. salt
½ tsk. kúmín
2 msk. ólífuolía
1 tsk. af hunangi
Grillað brauð með
Za’atar-kryddi
Grillað brauð með Za’atar kryddi
og sesamfræjum er ómissandi með-
læti. Za’atar er mild kryddblanda,
gerð úr oregano og sesamfræjum.
Nota má einfalda brauðblöndu úr
durum-hveiti, salti, geri og vatni.
Látið deigið hefa sig og fletjið út
í litlar flatkökur. Hendið þeim á
grillið og dreypið hvítlauksolíu og
stráið Za’atar og sesamfræjum yfir
þegar tilbúið.
Sjöfn
Þórðardóttir
sjofn@
frettabladid.is
Það er ekkert eins gefandi og
að koma inn á heimili þar sem
fjölskyldan öll er saman komin
í eldhúsinu að undirbúa matar-
veislu af ástríðu og natni. Þannig
var það þegar Sjöfn Þórðar
þáttastjórnandi heimsótti Soffíu
Karlsdóttur, Gunnar J. Árnason
og dæturnar Sunnefu og Júlíu á
heimili þeirra í þættinum Matur
og heimili á Hringbraut.
Sjöfn fékk að fylgjast með fjöl-
skyldunni við matargerð á
líbönskum sælkeraréttum. Hús-
móðirin Soffía er forstöðumaður
menningarmála í Kópavogi og
fjölskyldufaðirinn Gunnar er sér-
fræðingur hjá menntamálaráðu-
neytinu. Dæturnar stunda báðar
háskólanám; Sunnefa er meistara-
nemi í arkitektúr í Delft, Hollandi
og Júlía er sálfræðinemi við HÍ og
starfar hjá Wasteland.
Menning, listir og matur skipa
stóran sess á fallegu heimili Soffíu
og Gunnars, og stór eyja í opnu
rými hússins kallar á skapandi
samstarf við matarundirbúning-
inn.
„Við erum mikið áhugafólk um
matargerð og það að skipuleggja,
undirbúa og borða góðan mat
saman er eitt af því sem tengir
okkur vel saman. Gunnar er aðal-
matgæðingur heimilisins og óragur
við að prófa nýja, framandi rétti
sem annað heimilisfólk nýtur góðs
af,“ segir Soffía og er stolt af sínum
manni. Og þótt Gunnar vilji ekki
viðurkenna það segir Soffía að
á heimili þeirra sé oft á borðum
matur sem hvaða fimm stjörnu
veitingastaður getur verið stoltur af.
Sumac kom þeim á bragðið
Segið okkur frá ástríðu ykkar á
líbanskri matargerð? Hvernig
kynntust þið henni?
„Við höfum gaman af því að
ferðast til framandi staða og kynn-
ast ólíkri matargerðarlist og hér á
heimilinu er mikið rætt um mat og
nýjar matarupplifanir. Árni, sonur
okkar sem býr í Oxford, sagði
okkur frá líbönskum stað sem
hann og Nína kærastan hans hafa
mikið dálæti á og við fengum strax
áhuga á að kynnast líbanskri mat-
argerðarlist betur,“ svarar Soffía.
„Við hjónin höfum sótt hinn frá-
bæra veitingastað Sumac á Lauga-
veginum og komumst á bragðið
þar. Áður en Árni kom heim um
jólin fór hann í búð í nágrenninu
og sankaði að sér kryddum og öðru
góðgæti, og við ákváðum að um
jólin skyldum við útbúa líbanskt
veisluborð frá grunni. Yfirkokkur
Matarást Gunnars smitar út frá sér
Soffía Karls-
dóttir með
eiginmanni
sínum, Gunnari
J. Árnasyni og
dætrunum Sun-
nefu og Júlíu.
FRÉTTABLAÐIÐ/
STEFÁN
Fjölskyldan matreiddi líbanska
veislu eins og hún gerist best.
Líbanskur matur er sannkallað kon-
fekt fyrir augu, munn og maga.
Grillað eggaldin með tahinisósu er í
miklu dálæti hjá fjölskyldunni.
Bragðgóð og framandi líbönsk
krydd gera kartöflur að lostæti.
info@arcticstar.is - www.arcticstar.is
Síðumúli 31 - 108 Reykjavik - S: 562-9018 / 898-5618
MARINE COLLAGEN FYRIR HÚÐ, HÁR OG NEGLUR
Kollagen er eitt helsta uppbyggingarprótein líkamans.
Kollagen er í öllum liðum, liðamótum, vöðvum, sinum
og beinum mannslíkamans og:
• Seinkar öldrun húðarinnar
• Dregur úr sýnilegum hrukkum og fínum
línum í húðinni
• Eykur rakastig og stinnleika húðarinnar
• Lagfæra háræðaslitasvæði
• Stuðlar að upptöku kalsíums og
kalsíumuppbótar.
Vítamín C:
• Stuðlar að eðlilegri myndun kollagens
fyrir starfsemi brjósks, beina og húðar
• Stuðlar að eðlilegri starfsemi tauga- og
ónæmiskerfisins
• Stuðlar að því að verja frumur fyrir
oxunarálagi og draga úr þreytu
• Stuðlar að endurnýjun afoxaðs forms
E-vítamíns og aukinni upptöku járns.
ÍSLENSK FRAMLEIÐSLA,
Framleiðandi er Arctic Star ehf.
Allar nánari upplýsingar fast á
www.arcticstar.is
Arctic Star Marine Collagen
Varan fæst í flestum apótekum, heilsubúðum,
Hagkaupum, og Fjarðakaup.
4 kynningarblað A L LT 24. apríl 2021 LAUGARDAGUR