Fréttablaðið - 24.04.2021, Síða 32

Fréttablaðið - 24.04.2021, Síða 32
heimilisins, Gunnar, fékk svo tvær matreiðslubækur í jólagjöf sem eru helstu leiðarljósin okkar í líb- önsku matargerðarlistinni; Mezze Cookbook (Phaidon) eftir Salma Hage og Sumac eftir Þráin Frey Vig- fússon.“ Einstök, heillandi krydd einkenna bragð réttanna Hvað er það sem heillar ykkur helst við líbanska matargerð? „Fyrir utan hin einstöku krydd Za‘atar, Sumac, Ras el hanout og Berbere, sem einkennir bragð rétt- anna, eru í líbönskum mat notuð fersk hráefni og mikið grænmeti sem hentar vel þar sem dætur okkar Sunnefa og Júlía eru báðar vegan. Þá er einstaklega spenn- andi að útbúa líbanska veislu sem samanstendur af mörgum litlum réttum sem hægt er að deila. Ólíkar sósur og ídýfur með grillaða brauðinu er eitt af því sem gerir hlaðborðið og borðhaldið litríkt og skemmtilegt.“ Saltaðar sítrónur fyrirferðar- miklar í líbanskri matargerð Þegar kemur að því að fá hráefni í líbönsku réttina hafa Soffía og Gunnar uppgötvað rétta staðinn sem hefur að geyma hinar ótrú- legustu kryddblöndur. „Sumar kryddblöndurnar voru okkur framandi en nú er hægt að fá vel flest hér á landi. Við upp- götvuðum verslunina Instanbul Market á Grensásvegi sem er vel falið leyndarmál þegar kemur að framandi matargerð og þar höfum við verið tíðir gestir. Þar höfum við fundið öll krydd og hráefni sem þarf í matargerðina, meðal annars niðursoðnar grillaðar papr- ikur og saltaðar sítrónur, sem eru mjög fyrirferðarmiklar í líbanskri matargerð. Lambakjöt er áberandi í líbönskum mat og við höfum notað hægeldað, úrbeinað lamba- læri og lambaprime, en einnig hentar kjúklingur vel, til dæmis úrbeinuð kjúklingalæri.“ Meistarakokkur og handlangari Mikla eldamennsku og umræðu um mat á heimilinu má mest- megnis rekja til ástar Gunnars á góðum mat og börnin hafa klár- lega tileinkað sér þennan áhuga en dæturnar töfra iðulega fram ljúffenga veganrétti sem þær elda frá grunni. „Hér er mjög lítið keypt af til- búnum réttum og enginn sér eftir tímanum sem fer í matseldina,“ segir Soffía sem segist vera góður handlangari. Hún leggi á borð og gangi frá og svo falli brauð- gerð og bakstur oft í hennar hlut. Um tíma átti afrískur matur hug fjölskyldunnar en þau hafa meðal annars ferðast saman til Marokkó og Tansaníu. Bara til að gefa smjörþefinn af því sem getur verið á boðstólum eru hér nokkrir réttir sem allir eru vegan. Paprikuídýfa með hnetum er algjört lostæti Til eru ýmsar útgáfur af þessu lostæti en stuðst er við frábæra uppskrift frá veitingastaðnum Sumac. „Við höfum prófað að grilla papriku og líka keypt hana niður- soðna í Instanbul Market. Hvort tveggja var mjög gott. Ef paprikan er grilluð þarf hún að vera orðin vel mjúk og í lagi þótt hýðið brenni aðeins, en þá er auðveldara að taka af henni hýðið. Það sem gefur einstakt bragð er reykta papriku- duftið og hneturnar. Við setjum allt saman í matvinnsluvél og blöndum vel til að fá mjúka og kremaða áferð og þá getur verið gott að nota öflugan töfrasprota á blönduna. Paprikuídýfan er ljúffeng ein og sér með grilluðu brauði eða sem með- læti með grilluðu kjöti.“ Paprikuídýfa með hnetum 250 g paprika (niðursoðin eða grilluð) 50 g ristaðar, hýðislausar hakkaðar heslihnetur 2 msk. púðursykur 1 msk. salt 100 ml. ólífuolía 1-2 hvítlauksrif 1/2 msk. salt 1 msk. eplaedik 1 msk. reykt paprikuduft Setjið hráefnið í blandara. Til að ná léttri og sléttri áferð er gott að fín- vinna ídýfuna með töfrasprota. Grillað eggaldin með tahinisósu Eggaldin er í sérstöku uppáhaldi hjá fjölskyldunni. Skerið eggaldin í tvennt eftir endilöngu og kryddið sárið með salti, olífuolíu og góðri kryddblöndu, eins og til dæmis Ber- bere-blöndu sem er gerð úr chilli dufti, papriku, kóríander, túrmerik, svörtum pipar og kanil. Gott er að gera það með nokkrum fyrirvara svo eggaldinið geti drukkið í sig kryddin. Grillið þar til það er orðið vel mjúkt í gegn, og það má brenna aðeins að utan. Einnig er hægt að setja það í ofn á háum hita og grilla þar. Borið fram með tahini- jógúrtsósu og sítrónusafi kreistur yfir. Skreytið með klettasalati og granataeplafræjum, ef vill. Tahini-sósa Tahinisósa er sérlega ljúffengt meðlæti með líbönskum mat og myndar gott jafnvægi við bragð- miklar kryddblöndur. Tahini er þykkni úr sesamfræjum og gott að blanda ólífuolíu, sítrónusafa, hunangi og jógúrti saman við. Til að hafa sósuna vegan notum við vegan jógúrt. Allir þurfa að finna þá blöndu sem þeim finnst bragðast best. Ef tahini er mjög þykkt má blanda vatni saman við til að fá réttu áferðina. Svo má salta og krydda eftir smekk, okkur finnst kúmínduft passa vel við tahini- bragðið. 3 dl hafrajógúrt 3 dl tahini Safi úr ½ sítrónu ½ tsk. salt ½ tsk. kúmín 2 msk. ólífuolía 1 tsk. af hunangi Grillað brauð með Za’atar-kryddi Grillað brauð með Za’atar kryddi og sesamfræjum er ómissandi með- læti. Za’atar er mild kryddblanda, gerð úr oregano og sesamfræjum. Nota má einfalda brauðblöndu úr durum-hveiti, salti, geri og vatni. Látið deigið hefa sig og fletjið út í litlar flatkökur. Hendið þeim á grillið og dreypið hvítlauksolíu og stráið Za’atar og sesamfræjum yfir þegar tilbúið. Sjöfn Þórðardóttir sjofn@ frettabladid.is Það er ekkert eins gefandi og að koma inn á heimili þar sem fjölskyldan öll er saman komin í eldhúsinu að undirbúa matar- veislu af ástríðu og natni. Þannig var það þegar Sjöfn Þórðar þáttastjórnandi heimsótti Soffíu Karlsdóttur, Gunnar J. Árnason og dæturnar Sunnefu og Júlíu á heimili þeirra í þættinum Matur og heimili á Hringbraut. Sjöfn fékk að fylgjast með fjöl- skyldunni við matargerð á líbönskum sælkeraréttum. Hús- móðirin Soffía er forstöðumaður menningarmála í Kópavogi og fjölskyldufaðirinn Gunnar er sér- fræðingur hjá menntamálaráðu- neytinu. Dæturnar stunda báðar háskólanám; Sunnefa er meistara- nemi í arkitektúr í Delft, Hollandi og Júlía er sálfræðinemi við HÍ og starfar hjá Wasteland. Menning, listir og matur skipa stóran sess á fallegu heimili Soffíu og Gunnars, og stór eyja í opnu rými hússins kallar á skapandi samstarf við matarundirbúning- inn. „Við erum mikið áhugafólk um matargerð og það að skipuleggja, undirbúa og borða góðan mat saman er eitt af því sem tengir okkur vel saman. Gunnar er aðal- matgæðingur heimilisins og óragur við að prófa nýja, framandi rétti sem annað heimilisfólk nýtur góðs af,“ segir Soffía og er stolt af sínum manni. Og þótt Gunnar vilji ekki viðurkenna það segir Soffía að á heimili þeirra sé oft á borðum matur sem hvaða fimm stjörnu veitingastaður getur verið stoltur af. Sumac kom þeim á bragðið Segið okkur frá ástríðu ykkar á líbanskri matargerð? Hvernig kynntust þið henni? „Við höfum gaman af því að ferðast til framandi staða og kynn- ast ólíkri matargerðarlist og hér á heimilinu er mikið rætt um mat og nýjar matarupplifanir. Árni, sonur okkar sem býr í Oxford, sagði okkur frá líbönskum stað sem hann og Nína kærastan hans hafa mikið dálæti á og við fengum strax áhuga á að kynnast líbanskri mat- argerðarlist betur,“ svarar Soffía. „Við hjónin höfum sótt hinn frá- bæra veitingastað Sumac á Lauga- veginum og komumst á bragðið þar. Áður en Árni kom heim um jólin fór hann í búð í nágrenninu og sankaði að sér kryddum og öðru góðgæti, og við ákváðum að um jólin skyldum við útbúa líbanskt veisluborð frá grunni. Yfirkokkur Matarást Gunnars smitar út frá sér Soffía Karls- dóttir með eiginmanni sínum, Gunnari J. Árnasyni og dætrunum Sun- nefu og Júlíu. FRÉTTABLAÐIÐ/ STEFÁN Fjölskyldan matreiddi líbanska veislu eins og hún gerist best. Líbanskur matur er sannkallað kon- fekt fyrir augu, munn og maga. Grillað eggaldin með tahinisósu er í miklu dálæti hjá fjölskyldunni. Bragðgóð og framandi líbönsk krydd gera kartöflur að lostæti. info@arcticstar.is - www.arcticstar.is Síðumúli 31 - 108 Reykjavik - S: 562-9018 / 898-5618 MARINE COLLAGEN FYRIR HÚÐ, HÁR OG NEGLUR Kollagen er eitt helsta uppbyggingarprótein líkamans. Kollagen er í öllum liðum, liðamótum, vöðvum, sinum og beinum mannslíkamans og: • Seinkar öldrun húðarinnar • Dregur úr sýnilegum hrukkum og fínum línum í húðinni • Eykur rakastig og stinnleika húðarinnar • Lagfæra háræðaslitasvæði • Stuðlar að upptöku kalsíums og kalsíumuppbótar. Vítamín C: • Stuðlar að eðlilegri myndun kollagens fyrir starfsemi brjósks, beina og húðar • Stuðlar að eðlilegri starfsemi tauga- og ónæmiskerfisins • Stuðlar að því að verja frumur fyrir oxunarálagi og draga úr þreytu • Stuðlar að endurnýjun afoxaðs forms E-vítamíns og aukinni upptöku járns. ÍSLENSK FRAMLEIÐSLA, Framleiðandi er Arctic Star ehf. Allar nánari upplýsingar fast á www.arcticstar.is Arctic Star Marine Collagen Varan fæst í flestum apótekum, heilsubúðum, Hagkaupum, og Fjarðakaup. 4 kynningarblað A L LT 24. apríl 2021 LAUGARDAGUR
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.