Fréttablaðið - 05.05.2021, Page 21
Ásdís Ragna Einarsdóttir grasa-
læknir hefur lengi frætt lands-
menn um holla kosti og heilbrigði.
Á fræðandi heimasíðu hennar
grasalaeknir.is má finna hafsjó
fróðleiksmola, þar á meðal þessa
sætu mola sem henta sælkerum vel
í baráttunni við sykurpúkann.
„Ég geri mér oft svona Bounty-
bita og reyni að eiga þá til í frysti
þegar mig langar í eitthvað sætt
með kaffinu eða eftir mat á góðum
degi. Ég mæli líka með að þið prófið
ykkur áfram með sætuefni en þið
getið ýmist notað lífrænt hunang,
hlynsíróp eða notað sykurlaust
síróp eins og Good Good. Þið getið
ýmist skellt þessu í bita, rúllað í
kúlur eða sett gúmmelaðið í silíkon
kökuform og haft sem kökubotn og
brætt svo súkkulaðið yfir.“
Bounty-bitar
2 bollar MUNA kókosmjöl
1 bolli MUNA fljótandi kókosolía
2-5 dropar MUNA vanillustevía, ef
vill
1-2 msk MUNA hunang eða sykur-
laust síróp
150 g dökkt súkkulaði
Öllu hrært saman í skál nema
súkkulaðinu. Blöndunni svo þjapp-
að í silíkonform og sett í frysti í um
30 mínútur. Takið botninn úr frysti,
bræðið súkkulaðið yfir vatnsbaði
og hellið yfir botninn. Súkkulaðinu
leyft að storkna aðeins í kæli í
nokkrar mínútur. Skerið því næst í
hæfilega bita og njótið!
Gott að geyma í kæli eða frysti
til að eiga með kaffinu þegar mann
langar í eitthvað sætt og gómsætt.
Fylgstu með Ásdísi á Instagram @
asdisgrasa og á grasalaeknir.is
MUNA – Bounty-bitar
Ásdís Ragna gerir hér mjög ljúf-
fenga Bounty-bita fyrir sælkera.
Bounty-bitar sem einfalt er að gera.
Indíana Nanna Jóhannsdóttir,
þjálfari og rithöfundur, þjálfar
nú stóran hóp fólks heiman
frá sér og segir fyrirkomulagið
henta mörgum, hvort sem um
heimsfaraldur sé að ræða eða
ekki.
Indíana byrjaði að æfa handbolta
aðeins sex ára gömul og gerði allt
til 21 árs aldurs.
„Eftir það hef ég spilað með
utandeild Stjörnunnar. Ég var líka
eitthvað í dansi samhliða hand-
boltanum og svo fór ég að elska að
æfa sjálf eftir að ég hætti í hand-
boltanum,“ segir hún spurð hvort
hreyfing hafi alltaf spilað stórt
hlutverk í lífi hennar.
Í dag sérhæfir Indíana sig í
æfingum með eigin líkamsþyngd
og ketilbjöllum.
„Ég hef tekið alls konar nám-
skeið og réttindi og er núna að
byrja að stúdera þjálfun á með-
göngu og eftir fæðingu,“ segir
Indíana sem nú gengur með annað
barn sitt og Hólmars Orra, eigin-
manns síns.
Ástríðan tók yfir
Þrátt fyrir mikinn áhuga á
hreyfingu fór Indíana í nám við
Verzlunarskólann og svo beint í
BA-nám í lögfræði við HÍ.
„Á síðasta árinu í lögfræðinni
varð mikill viðsnúningur hjá mér
og ég fann að lögfræðin kallaði
ekki nógu mikið á mig til að halda
áfram. Ég fór því að vinna í eitt og
hálft ár, byrjaði að þjálfa í hóp-
tímum og nældi mér í einkaþjálf-
araréttindi.“ Hún segist hafa fallið
hratt fyrir þjálfunin og í byrjun árs
2018 hafi hún algjörlega tekið yfir
og orðið hennar 100 prósent starf.
„Ég hef bókstaflega lagt hjarta og
sál í þjálfunina síðan.“
Fannst ég ekki eiga roð í verkefnið
Indíana er höfundur bókarinnar
Fjarþjálfun sem kom út á síðasta
ári og hefur notið mikilla vin-
sælda. „Útgáfan Fullt tungl hafði
samband við mig í byrjun árs
2019 og lagði þessa hugmynd fyrir
mig. Í fyrstu fannst mér þetta
frekar ab súrd hugmynd og fannst
ég kannski ekki eiga roð í þetta
verkefni því ég hafði ekki verið
að þjálfa svo lengi,“ segir hún
aðspurð um tildrög bókarinnar.
Hún viðurkennir þó að henni hafi
þótt verkefnið spennandi þar sem
hún hafði verið að skrifa pistla og
greinar í tímarit og á heimasíður
og alltaf heillast af því að skrifa.
„Eftir að hafa hugsað þetta
aðeins fékk ég svona „aha!“-
móment á æfingu þar sem ég var
að þjálfa. Þetta var bara ein af
milljón æfingum en ég var að njóta
mín í botn og ég elska að kenna,
leiðbeina og aðstoða stelpurnar
sem æfa hjá mér að læra nýjar
hreyfingar eða bæta það sem þær
kunna nú þegar.“
Auðvelt að æfa heima
Indíana segir mjög misjafnt
hvernig breyttar aðstæður hafa
farið í fólk á COVID-tímum og
hvernig fólki gengur að hreyfa sig
við þær aðstæður.
„Ég held að þetta sé alveg rosalega
misjafnt. Margir hafa verið ótrúlega
aktívir og æft bæði heima og utan-
dyra, sem er alltaf gott í bland. Svo
held ég að það sé alltaf stór hópur
sem gerir í raun ekki neitt. En heilt
yfir eru alltaf fleiri og fleiri að byrja
að fóta sig í sinni hreyfingu og
koma sér af stað, sem er frábært.“
Til að æfa að heima segir Indíana
að fólk þurfi í raun ekki að eiga
neitt. Nema þá kannski að huga að
undirlaginu.
„Ég æfi á dýnu sem er þykkari
en hefðbundin jógadýna því það
hentar betur fyrir hnén ef maður
er mikið að hoppa og skoppa. Hjá
mér þarf ekki að eiga neitt (nema
þá dýnu) en það er gaman að eiga
eina bjöllu eða eitt handlóð og
sippuband fyrir fjölbreytileika. Ég
set æfingar upp þannig að það er
bæði hægt að vera alveg með eigin
líkamsþyngd og svo með búnað.“
Óbilandi trú á fyrirkomulaginu
Aðspurð hvernig Indíana upplifi
sjálf að þjálfa heima fyrir framan
skjáinn segir hún það vissulega vera
svolítið öðruvísi.
„Ég er auðvitað sjálf að æfa með
hópnum svo það er mjög skemmti-
legt og hvetjandi bæði fyrir mig og
alla sem æfa með mér hinum megin
við skjáinn. Það er dagamunur í
þessu, alveg eins og þegar ég er að
þjálfa í sal. Suma daga er ég ótrú-
lega peppuð og til í þetta og aðra
ekki. Eins og gengur og gerist. En
heilt yfir hefur þetta gengið vonum
framar og ég hef óbilandi trú á
þessu fyrirkomulagi fyrir marga,
óháð því hvort líkamsræktar-
stöðvar séu opnar eða lokaðar og
óháð því hvort yfir okkur hangi
heimsfaraldur. Þetta er bara öðru-
vísi form af hreyfingu og gefur
mörgum tækifæri til að halda sér í
æfingarútínu og sparar þeim tíma
og fyrirhöfn.“
Taka þarf ábyrgð á eigin heilsu
Fyrir þá sem eiga erfitt með að
koma sér af stað segir Indíana að
fólk þurfi fyrst og fremst að gera
það upp við sig hvort það ætli að
taka ábyrgð á eigin heilsu eða
ekki.
„Það er alltaf fyrsta skrefið, að
vinna svolítið í hugarfarinu. Ekki
setja þetta yfir á að líkamsræktar-
stöðvar séu lokaðar eða að eitthvert
ástand sé í gangi. Það er alltaf hægt
að finna eitthvað við hæfi og nauð-
synlegt fyrir líkama og sál að fá smá
útrás. Prófaðu þig áfram, skráðu þig
í þjálfun, finndu þér hlaupaplan,
hóaðu í vinkonu og farið saman
út að ganga. Þú verður að finna
þitt sem hentar þér og hvetur þig
áfram.“
Snýst um sjálfstraust
Að lokum segir Indíana okkur
flest vera þannig að upplagi að
við þurfum einhvern til þess að
leiða okkur áfram, hvetja okkur og
jafnvel segja okkur svolítið fyrir
verkum og þar af leiðandi mikil-
vægt að sækja þann stuðning.
„Sem þjálfari er mitt stærsta
verkefni að byggja upp sjálfstraust
hjá fólki, það er það sem þetta
snýst alltaf um að lokum. Að vinna
í hugarfarinu og byggja upp bæði
sterkari kroppa og sterkara hugar-
far.“
Fylgstu með Indíönu á Instagram
@indianajohanns og á gomove.is
Ég hef bókstaflega lagt hjarta og sál í þjálfunina
Indíana leggur
mikið upp úr
heilsusamlegu
líferni og velur
lífræna fæðu
frá MUNA í
matargerð sína.
MYND/ALDÍS
PÁLSDÓTTIR
Hollt sælkera-múslíbrauð
MUNA
3 dl fínmalað spelt frá MUNA
3 dl gróft spelt frá MUNA
2 dl spelt-múslí með trönuberjum
frá MUNA
1 tsk. salt
1 msk. vínsteinslyftiduft
1/2 dl apríkósur frá MUNA
1 dl valhnetur frá MUNA
1 msk. blómahunang frá MUNA
2 dl haframjólk
2 dl soðið vatn
Aðferð
Byrjið á að hræra saman öllum
þurrefnum í skál með sleif.
Hellið næst smátt skornum aprí-
kósum og heilum hnetum út í og
hrærið saman.
Sjóðið vatn og bætið út í ásamt
haframjólkinni.
Hrærið létt saman með sleif,
bara þannig að allt sé vel blandað
saman en forðist að hræra allt of
mikið því þá getur brauðið orðið
seigt.
Hellið í brauðform en gott er að
spreyja það að innan með olíu-
spreyi eða smyrja að innan með
olíu.
Bakið í 200 °C heitum ofni með
blæstri eða á 210 °C heitum ofni án
blásturs í 30 mínútur.
Berið fram heitt en það er líka
gott þegar það hefur kólnað.
Sunnudagsbrauð MUNA
Hollt sælkera-
múslíbrauð
MUNA.
Fylgdu okkur á muna.is og insta-
gram.com/muna_himneskhollusta/
þar sem má finna uppskriftir, lífs-
stílsráð og margt fleira fróðlegt og
skemmtilegt.
kynningarblað 3MIÐVIKUDAGUR 5. maí 2021 MUNA