Fréttablaðið - 05.05.2021, Side 25

Fréttablaðið - 05.05.2021, Side 25
innsýn mína og reynslu í öðrum fyrirtækjum, er af hverju rekstur- inn í f lugi er svona handahófs- kenndur. Þetta er kvikt umhverfi, mikill hraði þar sem verða oft ýktar breytingar á tekjum og kostnaði – og þú ert stanslaust að bregðast við aðstæðum hverju sinni. Það hafa komið stundum reynslumiklir fjár- festar að þessum rekstri í gegnum tíðina en mér hefur oft fundist eins og þeir skilji þá um leið fyrir utan þær aðferðir sem hafa virkað vel í öðrum fyrirtækjarekstri. Þá á ég við mikilvægi þess að hafa skýran strúktur, stefnu, stjórnendur í réttu stöðunum, bera allar stórar ákvarð- anir undir framkvæmdastjórn og stjórn félagsins – þessu gleyma menn iðulega og eru farnir að taka fljótt tilviljunarkenndar ákvarðanir sem þýðir að þú ert í raun ekki með neina stefnu. En þegar þú starfar í svona kviku rekstrarumhverfi, sem flugið sannarlega er, þá þarftu hins vegar þvert á móti að vera varfærn- ari og fastari fyrir – af því að allar tölurnar eru svo stórar og fram- legðin oft lítil. Ég hef aldrei áttað mig á því af hverju stjórnunarhættirnir hafa þurft að vera þannig og það er ekki fyrr en núna, þegar ég fór að ræða við þá fjárfesta og aðra sem koma að Play, sem ég sé að það er mögulegt að gera þetta öðruvísi. Stóra breyt- an er að það verður enginn einn sem ræður í þessu félagi, hvorki ég, stjórnarformaðurinn eða aðrir Kaup, sala og samruni fyrirtækja. kontakt@kontakt.is I 414 1200 I www.kontakt.is FYRIRTÆKJARÁÐGJÖF • Verðmat • Ráðgjöf og undirbúningur fyrir sölumeðferð • Milliganga um fjármögnun • Samningagerð Við erum ekki að kokka upp einhver plön um að reyna knésetja Icelandair – við erum ekki með það flugfélag á heil- anum. Play. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN hluthafar, og sem getur þá farið að taka stórar afdrifaríkar ákvarðanir byggt á því hvernig viðkomandi er mögulega stemmdur þann daginn. Það er stór og breiður hópur fjár- festa sem kemur að fyrirtækinu og öll ákvörðunartakan, einkum núna þegar félagið verður skráð á hluta- bréfamarkað, þarf að vera öguð og grundvallast á skýrri stefnu. Þetta er helsta ástæðan fyrir því að ég hef fulla trú á því að fyrirtækinu eigi eftir að farnast vel.“ Hættum að tala um stórar tölur Spurður að því hvenær það hafi fyrst komið til tals að hann myndi setjast í forstjórastólinn ef það tækist að ljúka fjármögnun á f lug- félaginu segir Birgir að það hafi gerst frekar nýlega. „Það hafa ýmsir leitað til mín í gegnum árin sem hafa sýnt f lug- rekstri áhuga, meðal annars eftir að WOW air fór í gjaldþrot vorið 2019 og eins einhverjir fjárfestar sem höfðu verið að skoða mögulega aðkomu að Play. Mig grunar að það sé vegna þess að ég hef verið afar tortrygginn á þennan bransa og ég er líklega einn af þeim fáu sem hafa komið að flugrekstri og ekki fengið bakteríuna – af því að mér hefur oft ekkert litist á það hvernig staðið hefur verið að málum. En eftir því sem tíminn líður, og ég kynnist betur því hvernig standa eigi að stofnun félagsins, verð ég jákvæðari af því að ég hef trú á að vinnubrögðin eigi eftir að verða með allt öðrum hætti. En það eru í reynd einungis um tveir mánuðir síðan að það var nefnt í einhverri alvöru að ég myndi koma að þessu sem forstjóri félagsins.“ Hvaða lærdóm er hægt að draga af þeim mistökum sem voru gerð hjá WOW air og öðrum íslenskum lág- gjaldaf lugfélögum? „Það sem ég held að hafi klikkað hjá þessum félögum, WOW og eins og öðrum lággjaldaf lugfélögum á undan, er að stjórnendur missa sjónar á að halda sig við upphaf- legu stefnuna og gleyma sér í vext- inum. Það sem gerist þá er að þú missir stjórn á kostnaðinum af því að það er endalaust verið að ráðast í fjárfestingar, sem eiga að skapa tekjur síðar í framtíðinni, og þann- ig er verið að reyna að réttlæta þessa kostnaðaraukningu – það aftur skapar pressu á að auka stöðugt umsvifin. Ég er hins vegar mikill talsmaður þess að hætta að tala um stórar tölur; veltuna, fjölda f lugvéla, far- þegafjöldann – þetta skiptir í reynd engu máli. Okkar nálgun núna í Play er að vera frekar með bara lítið flugfélag. Við ætlum ekkert að sigra heiminn og vera með fleiri tugi véla í rekstri – heldur vera fókuseraðir, einblína á afkomuna og virðið sem við erum að búa til fyrir viðskipta- vininn. Það voru þessir hlutir sem fóru áður úrskeiðis í þessum íslensku lággjaldaf lugfélögum,“ segir Birgir, og bætir við: „Ég ber mikla virðingu fyrir því hvernig Skúli Mogensen hefur tækl- að eftirleikinn af gjaldþroti WOW air, með mikilli auðmýkt, og viður- kennt að menn hafi misst sjónar á því sem skiptir máli í lággjalda-við- skiptamódelinu með því að taka í notkun breiðþotur til að f ljúga langa f lugleggi. Það hefðu allir átt að getað sagt sér það, og það voru til greiningar innan fyrirtækisins um að þetta gæti aldrei gengið upp, og það hefði átt að fylgja þeirri stefnu og taka ákvarðanir í samræmi við það en ekki aðeins vegna þess að þetta væri f lott eða áhugavert. Þess vegna er svo mikilvægt að viðhafa þennan aga í þessum rekstri.“ Alltaf dvergar á markaði Forstjóri Icelandair sagði um síðast- liðin áramót að hann teldi ekki rými fyrir tvö íslensk flugfélög með Kefla- víkurvöll sem tengibanka. Hver er þín skoðun á þeim ummælum? „Það er rosalega auðvelt held ég að snúa út úr þessum ummælum Boga og ég held að það væri ósanngjarnt að gera það – ég ætla ekki að gera honum upp þær skoðanir að hann vilji að Icelandair sitji að einhverri einokun hér á þessum markaði. Ég hef meiri virðingu fyrir honum og Icelandair en það. En þegar maður horfir á þennan markað þá eru um 70 til 75 milljónir manns að f ljúga á milli Bandaríkjanna og Evrópu á ári. Það er alveg sama hvað Play og Icelandair munu gera – félögin verða alltaf dvergar á þessum markaði yfir hafið en einmitt þess vegna held ég að það sé pláss fyrir félag eins og okkar.“ Birgir segir að vegna þess hversu Play sé vel fjármagnað sé engin pressa á að taka nein stór skref í rekstrinum fyrr en markaðurinn býður upp á það. „Við munum byrja að f ljúga undir lok júní, og verðum með alveg þokkalega umfangsmikið flug núna í sumar, en við þurfum ekkert að flýta okkur. Ég held að allir sem koma að félaginu, stjórnendur og stjórnarmenn, séu meðvitaðir um að það sé ekki verið að tjalda til einnar nætur og við viljum gerum þetta í hægum, öruggum skrefum og sjá þetta félag blómstra til lengri tíma litið. Það er til dæmis augljóst að Bandaríkin eru núna að opnast frekar hratt, við sjáum í fréttum að það eru mikið af bókunum frá ferðamönnum þaðan, og það væru leiðir fyrir okkur að reyna að byrja að f ljúga til Bandaríkjanna strax í sumar sem gæti skilað góðum tekjum í nokkra mánuði – en um leið væri það afar áhættusamt skref að taka og því er það ekki á döfinni í ár.“ Birgir segir að mögulega gæti f lug til Norður-Ameríku orðið að veruleika snemma árs 2022 en þeir áfangastaðir sem Play horfir þar til eru til borga á Austurströndinni, Flórída og mögulega einnig í Kan- ada. Þið byrjið með þrjár vélar, Air- bus A321-NEO, sem geta tekið allt að 244 í sæti. Eruð þið með þannig leigusamninga á vélum að þið borgið aðeins þegar vélarnar verða teknar í notkun? „Já, hluti af samningunum er með þeim hætti. Það má segja að tækifærið til að koma á fót nýju f lugfélagi varð enn betra eftir að faraldurinn skall á, meðal ann- ars vegna þess að það hefur gefið okkur færi á því að ná frábærlega hagfelldum leigusamningum um vélar. Það er mikið framboð af hár- réttum flugvélategundum í boði en lykilatriðið í þessum rekstri er að blanda ekki saman ólíkum gerðum af vélum þannig að þú getir náð sem mestri nýtingu frá starfsfólkinu og samfellan verði sem mest. Við erum því með afar góða samninga til mjög langs tíma, um 10-12 ár fyrir hverja vél.“ Ekki með Icelandair á heilanum Hvernig ætlar félagið að vera sam- keppnishæft á þessum erfiða mark- aði og eru kjarasamningar Play hagkvæmari en þeir sem Icelandair hefur gert við sína starfsmenn? „Þegar horft er til f lugreksturs þá er það oft gert, eðlilega, með sömu gleraugum og á annan fyrir- tækjarekstur þegar kemur að launa- kostnaði og hann er vissulega mjög stór og mikilvægur þáttur, en samt ekki ráðandi breyta. Við erum með mjög hagstæða kjarasamninga við stéttarfélag starfsfólksins hjá okkur en það þýðir ekki að fólk sé að fá eitthvað minna af krónum í launaumslagið en það fékk hjá WOW air eða öðrum sambærilegum íslenskum flugfélögum. Hagkvæmnin í samningunum fyrir okkur nær til annarra sviða, eins og með að ná meðal annars meiri nýtingu á f lugáhöfnum með f leiri f lugtímum innan ákveðins tímabils – þetta eru því kjara- samningar sem eru meira í lík- ingu við það sem almennt gerist á íslenskum vinnumarkaði fremur en arfleifð kjarasamninga sem hafa verið gerðir í gegnum áratugina hjá rótgrónum f lugfélögum eins og Icelandair. Við skulum heldur ekki gleyma því,“ útskýrir Birgir, að við munum auðvitað líka vera að keppa við f lugfélög sem koma frá löndum þar sem launin eru allt önnur og lægri og við erum ekkert samkeppnishæf við slík félög hvað launakostnað varðar.“ Aðspurður hvort hann geti sagt eitthvað til um hagkvæmni saming- anna í samanburði við Icelandair, meðal annars með tilliti til eininga- kostnaðar á sætiskílómetra, segist Birgir ekki hafa kynnt sér þá samn- inga og geti lítið sagt til um það. „Það er mikilvægt að halda því til haga að við erum ekki að kokka upp einhver plön um að reyna að kné- setja Icelandair – við erum ekki með það f lugfélag á heilanum. Dæmin hafa sýnt að það er alveg pláss fyrir tvö, og jafnvel f leiri, f lugfélög á þessum markaði – og við erum ekk- ert endilega að berjast um sömu far- þegana og þeir. Það sem skiptir máli fyrir okkur í þessari hörðu samkeppni er að hafa þennan sveigjanleika, sem lítið flug- félag, til að geta fundið okkur matar- holur til hliðar við þessu stóru félög eins og Delta, Wizzair og EasyJet. Við getum aldrei mætt þeim beint í samkeppninni heldur verðum við að finna aðrar leiðir með því að bjóða meðal annars upp á ann- ars konar vöru, tímasetningar og þjónustu. Við munum heldur ekki geta keppt við félag eins og Wizzair í verðum, en þar getum hins vegar keppt við Icelandair,“ segir Birgir. Eiginlega allt sem vinnur með okkur Birgir tekur aðspurður undir með þeim sem hafa sagt að aldrei hafi verið betri aðstæður til hefja rekstur á nýju flugfélagi en nú. „Það er eiginlega allt sem vinnur með okkur um þessar mundir. Og síðan fór að gjósa á Reykjanesskaga! Ef það voru einhverjar efasemdir um áhuga erlendra ferðamanna á að koma til Íslands þá þarf enginn að hafa áhyggjur af því lengur.“ En er innkoma Play þá að fara að leiða aftur til svonefnds massa- túrisma? „Þegar það voru hvað flestir ferðamenn að koma til lands­ ins – um 2,3 milljónir manna 2018 – þá voru íslensku flug­ félögin með um 50 til 60 vélar í sínu áætlunarflugi til viðbótar við tugi erlendra flugfélaga sem voru með áætlunarflug hingað til landsins. Það er mjög langt í að þessar aðstæður eigi eftir að koma aftur með tilheyrandi massatúrisma. Við verðum með miklu færri vélar en WOW air var með þegar mest lét og Iceland­ air á sömuleiðis langt í land með að ná sínum fyrri hæðum. Forsvarsmenn í íslenskri ferðaþjónustu hafa því núna góðan tíma til að hugsa um stefnumótun fyrir greinina til langs tíma – sem við Íslendingar höfum alltaf átt erfitt með að gera – og hver sé varan Ísland og hvar við viljum staðsetja okkur á þessum ferðamannamarkaði. Fólk sem kaupir flugmiða til Íslands, með hvaða flugfélagi sem er, er oftast búið að eyða hærri fjárhæð aðeins 24 tímum eftir að það er komið til lands­ ins heldur en það borgaði fyrir sjálfan flugmiðann. Ef við í Play myndum, svo dæmi sé tekið, byrja að selja lággjaldaflugferðir til Mónakó þá efast ég um að Mónakó myndi fyllast af bak­ pokaferðalögum. Þetta snýst því alltaf um hvers konar vöru þú ert að bjóða fólki upp á.“ MARKAÐURINN 9M I Ð V I K U D A G U R 5 . M A Í 2 0 2 1

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.