Fréttablaðið - 05.05.2021, Síða 33

Fréttablaðið - 05.05.2021, Síða 33
Vesturlandsvegur Á fundi skipulags- og samgönguráðs þann 24. mars 2021 og borgarráðs Reykjavíkur þann 15. apríl 2021 var samþykkt að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi Vesturlandsvegar. Í breytingunni felst færsla á skipulagsmörkum á nokkrum stöðum, áætluð akstursundirgöng sunnan Grundarhverfis eru felld niður, almennar stígabreytingar, svæði fyrir hljóðvarnir skilgreindar o.fl. Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna. Kjalarnes, Árvellir Á fundi skipulags- og samgönguráðs þann 24. mars 2021 og borgarráðs Reykjavíkur þann 15. apríl 2021 var samþykkt að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi Árvalla á Kjalarnesi. Í breytingunni felst að afmörkun deiliskipulags Árvalla er breytt, vegna breytingar á deiliskipulagi Vesturlandsvegar, þannig að skipulagsmörk sem snúa að vesturlandsvegi færast í átt að Esjunni um 8-13 metra. Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna. Kjalarnes, Hof Á fundi skipulags- og samgönguráðs þann 24. mars 2021 og borgarráðs Reykjavíkur þann 15. apríl 2021 var samþykkt að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi Esjuhofs á Kjalarnesi. Í breytingunni felst að afmörkun deiliskipulags Esjuhofs hliðrast um 2-3 m til austurs, vegna breytingar á deiliskipulagi Vesturlandsvegar. Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna. Kjalarnes, Saltvík Á fundi skipulags- og samgönguráðs þann 24. mars 2021 og borgarráðs Reykjavíkur þann 15. apríl 2021 var samþykkt að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi Saltvíkur á Kjalarnesi. Í breytingunni felst að afmörkun deiliskipulags Saltvíkur er breytt, vegna breytingar á deiliskipulagi Vesturlandsvegar, vegna breyttrar legu á nýjum stíg í tengslum við ný undirgögn undir Vesturlandsveg. Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna. Kjalarnes, Vallá Á fundi skipulags- og samgönguráðs þann 24. mars 2021 og borgarráðs Reykjavíkur þann 15. apríl 2021 var samþykkt að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi Vallár á Kjalarnesi. Í breytingunni felst að afmörkun vesturhluta deiliskipulags Vallá er færð vegna breytingar á deiliskipulagi Vesturlandsvegar. Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna. Kjalarnes, Skrauthólar Á fundi skipulags- og samgönguráðs þann 24. mars 2021 og borgarráðs Reykjavíkur þann 15. apríl 2021 var samþykkt að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi Skrauthóla á Kjalarnesi. Í breytingunni felst að afmörkun deiliskipulags Skrauthóla er færð til austurs um nokkra metra, vegna breytingar á deiliskipulagi Vesturlandsvegar, auk þess að stofnstíg er bætt við. Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna. Kjalarnes, Sætún 1 Á fundi skipulags- og samgönguráðs þann 24. mars 2021 og borgarráðs Reykjavíkur þann 15. apríl 2021 var samþykkt að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi Sætúns 1 á Kjalarnesi. Í breytingunni felst að afmörkun deiliskipulags Sætúns 1 er breytt, vegna breytingar á deiliskipulagi Vesturlandsvegar, þannig að skipulagsmörk sem snúa að Vesturlandsvegi færast í lóðarmörk milli svæðis F annars vegar og hins vegar svæða A og B. Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna. Kollagrund 2, Klébergsskóli Á fundi skipulags- og samgönguráðs þann 24. mars 2021 og borgarráðs Reykjavíkur þann 15. apríl 2021 var samþykkt að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi lóðar Klébergsskóla á Kjalarnesi, Kollagrund 2. Í breytingunni felst að afmörkun deiliskipulags Klébergsskóla er breytt, vegna breytingar á deiliskipulagi Vesturlandsvegar, þannig að skipulagsmörk sem snúa að vesturlandsvegi færast í átt að skólanum um u.þ.b. 5 metra. Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna. Þverholt 13 Á fundi skipulags- og samgönguráðs þann 7. apríl 2021 og borgarráðs Reykjavíkur þann 15. apríl 2021 var samþykkt að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi Einholts-Þverholts vegna lóðarinnar nr. 13 við Þverholt. Í breytingunni felst að heimilt verði að reisa sex hæða íbúðarhús á lóðinni, með að hámarki 38 íbúðum, þar sem 5. og 6. hæð eru inndregnar. Í bílgeymslu verða 25 bílastæði, en ekið verður í bílgeymslu nyrst á lóðinni. Lóð austan við hús verður í samræmi við lóð á reit E og innan lóðar verður tenging frá lóð að Þverholti ásamt því að tenging milli baklóða reits E og Þverholts 13 verður tekin upp á ný á lóð Þverholts 13. Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna. Tillögurnar má einnig nálgast á skjá og tölvu í þjónustuveri Reykjavíkurborgar að Borgartúni 12-14, 1. hæð, virka daga kl. 8:20 – 16:15 frá 5.maí 2021 til og með 22. júní 2021. Einnig má sjá tillögurnar á vefnum, www. reykjavik.is, skipulag í kynningu. Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillögurnar. Ábendingum og athugasemdum við tillögurnar skal skila skriflega til skipulagsfulltrúa eða á netfangið skipulag@reykjavik.is, eigi síðar en 22. júní 2021. Vinsamlegast notið uppgefið netfang fyrir innsendar athugasemdir með tölvupósti. Reykjavík 5. maí 2021 Skipulagsfulltrúi Reykjavíkur Skrifstofa borgarstjóra Skrifstofa borgarstjóra Borgarverkfræðingur Borgarverkfræðingur Hagdeild Hagdei d Dagvist barna Dagvist barna Reykjavíkurborg Umhverfis- og skipulagssvið Auglýsing um tillögur að breytingu á deiliskipulagi í Reykjavík Í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, eru hér með auglýstar tillögur að breytingu á deiliskipulagi í Reykjavík. Borgartúni 12-14, 105 Reykjavík, sími: 411 1111, www.reykjavik.is Sunnudaginn 9. maí klukkan 14.00 stjórnar Sigtryggur Bald-ursson, öðru nafni Bogomil Font, söngstund í Hannesarholti. Harpa Þorvaldsdóttir, tónmennta- kennari og tónlistarkona, leikur með á píanó. Sigtryggur mun þarna fara á f lug vítt og breitt um dægur- tónlistarsöguna. Gestum býðst að taka þátt í stundinni í Hannesarholti, en einnig verður streymt frá söngnum á fésbókarsíðu Hannesarholts. Bogomil Font í HannesarholtiÞórunn Harðardóttir víólu-leikari heldur einleikstónleika undir yfirskriftinni Ekki ein- leikið í Breiðholtskirkju laugardag- inn 8. maí á vegum 15:15 tónleika- syrpunnar. Á efnisskrá tónleikanna eru kaflar úr Sónötu nr. 1 fyrir fiðlu eftir Johann Sebastian Bach, Svíta nr. 1 í g-moll fyrir víólu eftir Max Reger og frumflutt einleiksverkið Cloak eftir bandaríska tónskáldið Charles Peck. Þórunn starfar við Tónlistar- skóla Reykjanesbæjar, kennir á fiðlu og víólu og stjórnar strengjasveitum skólans. Þórunn í Breiðholtskirkju Bach mun hljóma í Breiðholtskirkju. Þórarinn Már Baldursson er höfundur bókarinnar Vísur og kvæði. Þetta er fyrsta bók Þórarins, sem er víóluleikari í Sin-fóníuhljómsveit Íslands. Þórarinn var ungur að árum þegar hann byrjaði að yrkja. „Kveð- skapur hefur alltaf verið í kringum mig. Í kringum tíu ára aldur var ég byrjaður að klambra saman vísum. Heima var farið með mikið af vísum sem ég lærði eins og skemmtiefni. Menn voru líka að kveðast á, en það var leikur sem amma kenndi okkur krökkunum. Þá var farið með vísu og næsti maður átti að fara með vísu sem byrjaði á sama staf og hin endaði á – þannig var reynt að koma öðrum í þrot. Svo var móður- afi minn, Þórarinn Guðmundsson kennari á Akureyri, skáld sem orti meðal annars undir hefðbundnum háttum og kenndi mér tökin á því.“ Þórarinn segir bókina vera sam- safn af því nýtilegasta sem hann hafi ort á um það bil síðustu tutt- ugu árum. „Ég sest ekki niður til að yrkja, vísurnar koma bara þegar þær koma. Ég yrki mikið undir gömlu rímnaháttunum. Vísurnar fjalla um allt og ekkert og eru lang- flestar í gamansömum tón. Þarna er margt undir áhrifum 19. aldar skálda, brennivínsvísur, heims- ósómakvæði, sjálfsvorkunn og hæfileg bölsýni.“ Þórarinn segist aðspurður finna fyrir áhuga fólks á vísnagerð. „Áhuginn er meiri en margur heldur og fyrirfinnst vissulega hjá ungu fólki. Hann er kannski ekki gríðar- lega útbreiddur en er þarna samt. Þessi þráður er búinn að lifa með þjóðinni í mörg hundruð ár. Hefð- in að yrkja undir bragarháttum er að mínu mati ekki í stórkostlegri hættu. Menn kveða líka enn þá og þar hefur orðið nokkur vakning á eftir að Steindór Andersen varð áberandi og Kvæðamannafélagið er ennþá vel virkt. Já, það er vissu- lega áhugi.“ Vísurnar koma þegar þær koma Þórarinn Már Baldursson sendir frá sér fyrstu bók sína. Gamansamar vísur og kvæði. Byrjaði að yrkja barn að aldri. Þórarinn Már hefur sent frá sér fyrstu bók sína. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK Latskáldmælgi Ekki get ég eða nenni orð að setja í ljóð. Um æðanetið er sem renni eintómt letiblóð. Draumórar Það væri gott að vit’eitthvað og ver’eitthvað, og gaman væri að get’eitthvað og ger’eitthvað. ÞARNA ER MARGT UNDIR ÁHRIFUM 19. ALDAR SKÁLDA, BRENNIVÍNS- VÍSUR, HEIMSÓSÓMAKVÆÐI, SJÁLFSVORKUNN OG HÆFILEG BÖLSÝNI. ÞÓRUNN HARÐARDÓTTIR- STARFAR VIÐ TÓNLISTARSKÓLA REYKJANESBÆJAR. Sigtryggur Bald- ursson verður í Hannesarholti. Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 13M I Ð V I K U D A G U R 5 . M A Í 2 0 2 1

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.