Fréttablaðið - 05.05.2021, Page 40

Fréttablaðið - 05.05.2021, Page 40
RITSTJÓRN ritstjorn@frettabladid.is AUGLÝSINGADEILD auglysingar@frettabladid.is PRENTUN Torg ehf. DREIFING Póstdreifing ehf. dreifing@postdreifing.is 550 5000 Árna Helgasonar BAKÞANKAR Verslaðu á 66north.is Fylgdu okkur á Instagram @66north Komum út! Ég var staddur á bílasölu um daginn þegar ég heyrði nýtt hugtak. Drægnikvíði. Þetta lýsir þeim ótta sem eigendur raf- bíla finna fyrir um að ná ekki á leiðarenda. Það sem mér fannst samt aðallega athyglisvert er hvað við erum orðin f link í að orða alls konar áhyggjur okkar með fínum og gáfulegum hugtökum. Ég veit ekki hvað veldur. Þykir virðulegra og jafnvel faglegra að tala í hugtökum heldur en í ein- hverju almennu stressi og sam- viskubiti? Í stað þess að segjast vilja taka strangheiðarlega all-inclusive-sólbaðs-sullferð til Tene þá tala þessar nýju, fag- legu útgáfur af okkur um aukinn ferðavilja, í bland við mikinn far- sóttarleiða og mikilvægi þess að taka þátt í endurreisn ferðaþjón- ustunnar. Á sama tíma og maður er meðvitaður um að f lugferðin er kolefnislosandi, sem eykur á loftslagskvíða og visthryggð, þá er hægt að slá á f lugskömmina með kolefnisbindingu, til dæmis með því að gróðursetja tré í gegnum app, en þó verður maður að gæta að því að verða snjall- símafíkninni ekki að bráð. Nú þegar vorar dæmist á mann að setja upp trampólín fyrir börnin. Í þessum anda hef ég loksins áttað mig á því að það er ekki letin í mér sem er vanda- málið, ég þjáist af verulegum uppsetningarótta. Þetta blandast saman við nánast stöðuga pressu á þessum örfáu íslensku sólardögum að vera stöðugt úti við að gera eitt- hvað stórkostlegt og leiða hjá sér að lofthitinn er á pari við hita- stig í meðalísskáp. Með öðrum orðum: Sólartengd upplifunar- spenna. Allt þetta hefur svo leitt til þess að ég er farinn að upplifa veru- legan hugtakakvíða. Hugtakaveislan FRÉTTIR, FÓLK & MENNING á Hringbraut

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.