Skessuhorn


Skessuhorn - 20.01.2021, Side 6

Skessuhorn - 20.01.2021, Side 6
MIÐVIKUDAGUR 20. jANúAR 20216 Breytt áskriftarverð SKESSUHORN: Áskrift að Skessuhorni hækkar lítillega um næstu mánaðamót. Það er gert m.a. til að mæta launa- hækkunum síðan í fyrravor og hækkuðu dreifingarverði. Eftir hækkun verður almennt verð á blaðáskrift 3.877 krón- ur en elli- og örorkul.þ. greiða 3.348 kr. -mm Dópaður með þrjú börn í bílnum BORGARNES: Síðdegis á laugardag stöðvaði lögregla ökumann á leið norður Borg- arfjarðarbraut. Við athug- un reyndist ökumaður undir áhrifum kannabis og amfeta- míns og var hann handtek- inn. Þar sem þrjú börn voru í bílnum var málið tilkynnt til barnaverndaryfirvalda. -frg Kannabislykt í fjölbýlishúsi AKRANES: Á sunnudags- kvöld barst lögreglu tilkynn- ing um kannabislykt í fjölbýlis- húsi. Fundust leifar af kanna- bis í geymsluherbergi í húsinu og viðurkenndi umráðamaður geymslunnar að hafa verið að reykja efnin. Ennfremur fund- ust efnaleifar á vettvangi og var viðkomandi kynnt réttar- staða sakbornings. -frg Vanbúinn dráttur SNÆFELLSNES: Síðdegis á sunnudag stöðvaði lögregla för bíls með annan í drætti. Reyndist ljósabúnaði áfátt, taug milli bíla of löng og illa gengið frá flestu við dráttinn. Var bílunum fylgt að næstu gatnamótum og ökumönnum gert að skilja þá eftir þar. -frg Datt um göngu- staf samferðar- konu AKRANES: Á mánudags- morgun féll kona á göngu á Garðavegi við skógrækt- ina á Akranesi. Konan reynd- ist nokkuð slösuð í andliti, á hendi og á öxl. Konan hafði hnotið um göngustaf samferð- arkonu sinnar með þessum af- leiðingum. Konan var flutt á sjúkrahús til aðhlynningar. -frg Voru að opna bílskúr ömmu AKRANES: Um hádegisbil á mánudag barst lögreglu til- kynning um þrjá grunsam- lega menn, sem væru búnir að vera í 40 mínútur að bisa við að komast inn í bílskúr. Við athugun lögreglu reynd- ust mennirnir vera að reyna að opna bílskúr ömmu sinnar að hennar beiðni. -frg Hrútur á vappi í nýrækt SNÆFELLSNES: Síðastlið- inn miðvikudag barst Neyð- arlínu tilkynning um að hrút- ur væri á vappi í nýrækt. Vitað var hver átti hrútinn og þegar lögregla náði tali af eigandan- um lofaði hann að fanga hann hið snarasta. -frg Virti ekki rétt gangandi vegfarenda BORGARNES: Á fimmtu- dag sáu lögreglumenn hvar ökumaður við gangbraut á Borgarbraut við tónlistarskól- ann virti ekki rétt gangandi vegfarenda. Ökumaður játaði brotið og hlaut hann 20 þús- und krónur í sekt. -frg Röng skráning- armerki á eftir- vagni AKRANES: Á föstudaginn stöðvuðu lögreglumenn för ökumanns með eftirvagn. Auk þess að vera ljóslaus reyndist eftirvagninn vera með röng skráningarmerki. Var öku- maður kærður fyrir skjalafals og vanbúnað ökutækisins. -frg Lá við árekstri VESTURLAND: Síðdegis á föstudag barst lögreglu til- kynning um bíl sem rásaði á veginum við Esjurætur. Lá við árekstri í hvert sinn sem hann mætti bíl. Lögreglan stöðvaði för ökumanns við Hvalfjarðar- göng. Viðurkenndi ökumaður neyslu amfetamíns og kókaíns og var hann handtekinn. -frg Í liðinni viku birti skrifstofa Al- þingis rangar upplýsingar um akst- urskostnað þingmanna á síðasta ári og fór frétt þess efnis á flug í fjöl- miðlum, þar á meðal á vef Skessu- horns og í Kjarnanum. Samkvæmt upplýsingum Alþingis átti Guð- jón S Brjánsson alþingismaður Samfylkingar í Norðvesturkjör- dæmi að hafa verið sá þingmaður sem ók mest á síðasta ári í störfum sínum fyrir Alþingi. Hefði hann samkvæmt því átt að hafa fellt úr sessi ókrýndan konung þjóðveg- anna; Ásmund nokkurn Friðriks- son Sjálfstæðismann. Skrifstofa Alþingis sendi hins vegar frá sér leiðréttingu sem Kjarninn birtir. Samkvæmt frétt miðilsins höfðu komið í ljós mistök við útreikn- ing aksturskostnaðar Guðjóns sem fólust í því að þegar bílaleigubíll sem tekinn hafði verið á leigu fyr- ir Guðjón fyrir rúmum þremur árum var gerður upp þá reyndist hann hafa ekið aðeins meira á ári en gert hafði verið ráð fyrir í lang- tímaleigusamningnum. Þegar það hafði verið leiðrétt kemur í ljós að enn á ný er Ásmundur Friðriks- son konungur þjóðveganna. Guð- jón Brjánsson er hins vegar í öðru sæti. Þar sem Norðvesturkjördæmi er víðfeðmt komast fleiri þingmenn kjördæmisins á topp tíu listann. Þeir eru Sigurður Páll jónsson Miðflokki, Lilja Rafney Magnús- dóttir VG, Haraldur Benediktsson Sjálfstæðisflokki og Halla Signý Kristjánsdóttir Framsóknarflokki. Akstur ráðherra er ekki tilgreindur á listanum, enda fellur hann undir annan útgjaldalið í ríkisreikningi. mm Sérfræðingahópur verkalýðshreyf- ingarinnar hefur skilað af sér grein- argerð um áhrif Covid-19 og meðal annars áform fjármálaráðherra um sölu ríkisins á Íslandsbanka. „Rök- semdir og skýringar skortir fyr- ir þeirri ákvörðun að hefja sölu- ferli vegna Íslandsbanka á mikl- um óvissutímum. Enn er óljóst hversu stóran hlut stendur til að selja og ekki er skýrt til hvaða verk- efna áformað er að nýta fjármunina sem fást fyrir sölu á bankanum. Þá veldur fyrri reynsla af einkavæð- ingu fjármálastofnana á Íslandi tor- tryggni og því sérstaklega mikil- vægt að ítarleg samfélagsleg um- ræða skapist um kosti og galla slíkr- ar ráðstöfunar,“ segir í niðurstöðu hópsins. Auk megin niðurstöðu hópsins að skýringar og röksemdir skorti fyrir þeirri ákvörðun að hefja sölu bankans eru fjölmargar efnislegar athugasemdir gerðar við fyrirhug- aða sölu. Vakin er athygli á því að aðstæður séu nú allt aðrar en þeg- ar boðað var í stjórnarsáttmála árið 2017 að hlutur ríkisins í fjármála- kerfinu yrði minnkaður. Óvissa vegna Covid-faraldursins sé enn í algleymingi og upprisa ferðaþjón- ustu muni að öllum líkindum tefjast með tilheyrandi óvissu fyrir íslenskt efnahagslíf og bankakerfið þar með. Hópurinn gerir athugasemdir við þann hraða sem einkennir ferl- ið og telur röksemdir fyrir sölu eins og þær hafa verið kynntar af hálfu Bankasýslu ríkisins og stjórnvalda ófullnægjandi. Ástæða söluferlisins virðist öðru fremur vera að standa við gefin fyrirheit í stjórnarsáttmála og hraðinn skýrast af komandi al- þingiskosningum. Slíkar röksemdir nægja ekki til að einkavæða banka,“ segir í niðurstöðu hópsins. mm Ásmundur Friðriksson er áfram konungur þjóðveganna Þykir einkavæðing Íslandsbanka óskynsamleg á óvissutímum

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.