Skessuhorn - 20.01.2021, Side 21
MIÐVIKUDAGUR 20. jANúAR 2021 21
Hafið samband í síma 788-8865
EB Flutningar
Vöruflutningar millli Akraness og
Höfuðborgarsvæðinsins! Tvær ferðir á dag
Ferðirnar eru kl. 10:00 og 14:00
Almenn sendibílaþjónusta öll kvöld og um helgar.
Tökum einnig að okkur búslóðaflutninga
Eigendur húss Kaupangs og Suð-
urkletts að Brákarbraut 11 í Borg-
arnesi hafa nú selt eignina og á
sama tíma hafa eigendur ákveð-
ið að hætta alfarið með gistiþjón-
ustuna Egils Guesthouse sem hef-
ur verið þar til húsa síðustu ár. Það
eru hjónin Helga Halldórsdótt-
ir og Gunnar jónsson sem loka
þarna kafla sínum í ferðaþjónust-
unni í Borgarnesi en þau byrjuðu
með útleigu á íbúðum á Egilsgötu
í Borgarnesi ásamt Finnboga jóns-
syni og Kristínu Ósk Halldórsdótt-
ur. Seinna bættu þau við Kaupangi
og um stund var rekið kaffihúsið
Kaffi Brák í sama húsi.
„Við höfum haft Kaupang á sölu
í töluverðan tíma og höfðum fyr-
ir upphaf Covid ákveðið að hætta
okkar þátttöku í ferðaþjónustu.
Það eru tíu ár síðan við fórum út
í þennan rekstur, eða vorið 2011,
og það var bara orðið gott,“ seg-
ir Helga aðspurð um Kaupangs-
húsið. „Aðaláhugamálið var alltaf
að gera upp hús og ferðaþjónustan
koma svona í kaupbæti hjá okkur.
Við gerðum húsin að Egilsgötu 8
og 6 upp í samvinnu við þáverandi
meðeigendur, Finnboga og Krist-
ínu, á árunum 2010-2013 en erum
búin að selja þau hús fyrir nokkrum
árum. Við keyptum Kaupang árið
2016. Ekki að það þyrfti að gera
Kaupang upp, því hafði verið virki-
lega vel við haldið, heldur vantaði
okkur sal til að geta boðið upp á
morgunmat fyrir gesti Egils Gu-
esthouse og Kaffi Brák varð svona
aukaafurð. Það er alltaf líf og fjör í
ferðaþjónustunni þegar vel gengur
og gaman var að umgangast gesti
frá öllum heimshornum. Sumir
komu til okkar nokkrum sinnum
og það var gaman. Við vorum líka
heppin með okkar starfsfólk og
reksturinn í heild sinni. Hafþór
sonur okkar hefur séð að mestu
um reksturinn síðustu ár en hann
hóf háskólanám í haust svo hann
hefur nóg við að vera. Við Gunn-
ar erum í fullu starfi annars staðar
og þar er nóg að gera. Við höfum
svo sem ýmislegt á prjónunum sem
sagt verður betur frá seinna,“ bætir
Helga við.
„Það var virkilega ánægjulegt að
hafa átt Kaupang, þetta sögufræga
og fallega hús. Við sjáum eftir því
að því leytinu en vitum að það er
í góðum höndum,“ segir Helga
að endingu en Kaupangur verður
nú íbúðarhús hjá nýjum eigendum
þessa sögufræga húss í Borgarnesi.
glh
Á miðvikudagskvöld í liðinni viku
var Facebook viðburðinum „Bring
back rúnturinn” á Akranesi hrund-
ið í framkvæmd. Það var Alexand-
er Aron Guðjónsson sem stofn-
aði til þessa framtaks og ætlað að
hvetja Skagamenn til að endur-
vekja hinn gamla rúnt um Skóla-
braut og nágrenni eða eins og sagði
í tilkynningu: „Endurvekjum rúnt-
menningu Skagamanna, fjölmenn-
um á göturnar og rúntum fram í
rauða nóttina. Alveg tilvalið í kóf-
inu! Svo er hægt að kíkja við í lúg-
unni í Shell, Orkunni, Skaganesti,
Kvikk on the go – og skoða mán-
aðartilboðin fyrir janúar.“ Óhætt
er að segja að þátttakan hafi farið
fram úr björtustu vonum, en götur
miðbæjarins bókstaflega stappfyllt-
ust af bílum sem á tímabili mjök-
uðust vart áfram. Er mál manna að
viðburðurinn hafi vakið upp mikla
fortíðarþrá en einnig ánægju meðal
þeirra Skagamanna sem tóku þátt.
frg
Snúið við framan við gamla pósthúsið á Akranesi. Ljósm. gbh
Rúnturinn endur-
vakinn á Akranesi
Í styttri útgáfunni af rúntinum var tekin u-beygja hjá Hinna rakara. Ljósm. frg
Snúið við hjá Hinna rakara. Ljósm. gbh
Kirkjubraut var full af bílum. Ljósm. gbh
Kaupangur í Borgarnesi.
Húsið Kaupangur í Borgarnesi selt