Skessuhorn


Skessuhorn - 20.01.2021, Qupperneq 30

Skessuhorn - 20.01.2021, Qupperneq 30
MIÐVIKUDAGUR 20. jANúAR 202130 Hvað langar þig mest til að gera á þessu ári sem ekki var hægt á kovidárinu? Spurning vikunnar (Spurt á netinu) Hildigunnur Sif Aðalsteins- dóttir: Geta hitt fólk í stórum hópum, mætt í veislur og geta knúsað fólkið mitt og gleymt þessu co- vid RUSLI! Þórunn María Örnólfsdóttir: Bjóða í stóra veislu. Áslaug Jóna Rafnsdóttir: Það væri fínt að fá að mæta í skólann en svo væri ég líka til í að komast í góða sólarlanda- ferð. Ása Valgerður Eiríksdóttir: Að fara til Króatíu með stórfjöl- skyldunni. Ingunn Ríkharðsdóttir: Ég mun fagna þeim degi þeg- ar foreldrar mega aftur koma inn í leikskólana og skólastarfið verður eðlilegt á ný. Síðan væri dásamlegt að komast í golfferð í sólina. Í Kvarðanum, nýju fréttabréfi Landmælinga Íslands segir m.a. frá því að jarðskjálftinn sem varð á Reykjanesi 20. október síðastlinn hafi haft óvænt áhrif. „jörð hrist- ist hraustlega á Akranesi í jarð- skjálftanum þann 20. október síð- astliðinn. Að öllu jöfnu hafa slík- ar jarðskorpuhreyfingar mest áhrif á grunnmælikerfi landsins en að þessu sinni virðist sem nýlegur loft- myndaskanni stofnunarinnar hafi orðið verst úti. Skanninn, sem er af gerðinni Wehrli RM-6, er mjög nákvæmur og virðast grunnstilling- ar hans hafa breyst við hristinginn. Unnið hefur verið að því að end- urstilla skannann með hjálp tækni- manna í úkraínu til að tryggja þá miklu nákvæmni sem hann býður upp á. Allar rafrænar loftmyndir Landmælinga Íslands eru aðgengi- legar á vef stofnunarinnar,“ segir m.a. í Kvarðanum, en blaðið er að- gengilegt á lmi.is mm Áhrif kórónaveirunnar gætir víða og ekki síst í rekstri sveitarfélaga landsins. Ríkissjónvarpið tók nýver- ið saman upplýsingar um rekstur og horfur í afkomu tíu stærstu sveitar- félaga landsins. Þar kemur fram að árið 2019 var samanlagður rekstur þeirra jákvæður um 22,4 milljarða króna. Á síðasta ári varð algjör kú- vending og benda bráðabirgðanið- urstöður til að rekstur þeirra hafi verið neikvæður um 4,5 milljarða. Á þessu ári er áætlað að tap þeirra verði enn meira, eða 8 milljarðar króna. Af tíu stærstu sveitarfélög- unum er einungis áætlaður jákvæð- ur rekstur hjá tveimur þeirra. Gert er ráð fyrir 113 milljóna rekstraraf- gangi hjá Akraneskaupstað og 377 milljónum hjá Fjarðabyggð. Áætlað tap annarra sveitarfélaga er allt frá því að vera áætlað 35 milljónir hjá Garðabæ og upp í 2,7 milljarða hjá Reykjavíkurborg. mm Félagarnir Hafsteinn Mar Sigur- björnsson og Loftur Árni Björg- vinsson eru miklir áhugamenn um folf en það er skemmtileg stytting á orðinu frisbígolf. Folf er svipað og golf nema að leikmenn kasta svif- diskum í stað þess að slá golfkúl- um. Árið 2014 fóru þeir Haddi og Loftur af stað með hugmynd um að setja upp frisbígolfvöll í Grundar- firði. Þeir létu setja heimasmíðaða folfkörfu í Paimpolgarðinn þar sem fólk gat kastað svifdiskum í mark og spilað á eina holu. Eftir það lagðist málið í smá dvala þar til það komst aftur í umræðuna snemma á síð- asta ári. Íþrótta- og æskulýðsnefnd Grundarfjarðarbæjar tók frum- kvæðið og kallaði þá félaga til fund- ar í byrjun mars síðastliðnum. Þar fór málið af stað og þeir fóru í að safna styrkjum og huga að staðsetn- ingu fyrir níu holu folfvöll í Grund- arfirði. Nú er kominn góður skrið- ur á málið og starfsmenn áhalda- hússins eru búnir að setja upp 6 holur nálægt tjaldsvæði bæjarins. Haukur Árnason frá Discogolf kom og hitti þá Loft og Hadda í júní síð- astliðnum og þar var farið yfir stað- setningu og útfærslu á vellinum. Áætlað er að völlurinn verði fullbú- inn með 9 holur næsta vor. Það eru Ragnar og Ásgeir, GG-Lagn- ir, Guðmundur Runólfsson, Djúpi- klettur og Rúnar Magnússon sem styrkja verkefnið ásamt Grundar- fjarðarbæ. Það er því ljóst að þetta verður kærkomin viðbót við þá af- þreyingu sem hægt er að sækja hér í Grundarfirði og auka þjónustu við íbúa og gesti. tfk Haddi og Loftur við eina körfuna á vellinum. Uppsetning á frisbígolfvelli í Grundarfirði Ein af holunum sem búið er að stað- setja rétt fyrir ofan byggðina. Á Akranesi er gert ráð fyrir að bæjarsjóður verði gerður upp með 113 milljóna króna tekjuafgangi á yfirstandandi ári. Neikvæður viðsnúningur í rekstri tíu stærstu sveitarfélaganna Jarðskjálftinn truflaði loftmyndaskanna Svipmynd frá Akraneshöfn.

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.