Skessuhorn - 21.04.2021, Blaðsíða 28
MiðVikudAGur 21. ApríL 202128
Vörur og þjónusta
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
H P Pípulagnir ehf.
Alhliða pípulagnaþjónusta
Hilmir 820-3722
Páll 699-4067
hppipulagnir@gmail.com
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
01
8
Fyrir alla vigtun
Húsarafmagn
Töflusmíði
Iðnaðarrafmagn
Bátarafmagn
Bílarafmagn
RAFMAGN
vogir@vogir.is Sími 433-2202
VOGIR
Bílavogir
Kranavogir
Skeifuvogir
Pallvogir
Aflestrarhausar
Hönnun prentgripa
& alhliða prentþjónusta
Drei bréf - Boðsbréf
Ritgerðir - Skýrslur
Reikningar - Eyðublöð
Umslög - Bréfsefni
Fjölritunar- og
útgáfuþjónustan
Getum við
aðstoðað þig?
sími: 437 2360
olgeirhelgi@islandia.is
• Bílasprautun • Bílaréttingar • Framrúðuskipti
BÍLASPRAUTUN VESTURLANDS
S: 860-0708 • Smiðjuvellir 7, Akranesi • bv.sprautun@gmail.com
Vinnum fyrir öll tryggingafélög
Pennagrein
Bæjarstjórn Akraness samþykkti ný-
lega breytingar á reglum um niður-
greiðslur vegna dvalar barna hjá dag-
foreldrum. Foreldrar með lögheimili
og fasta búsetu á Akranesi eiga rétt á
niðurgreiðslum samkvæmt þessum
reglum ef þeir eru með gildan dval-
arsamning við dagforeldri. dagfor-
eldri skal hafa leyfi til daggæslu frá
sveitarfélaginu. rétt til greiðslna
eiga foreldrar í sambúð frá níu mán-
aða aldri barns en einstæðir foreldr-
ar frá sex mánaða aldri barns.
Helstu breytingar og viðbætur
við áður gildandi reglur eru þær
að greiddar eru viðbótar niður-
greiðslur til þeirra foreldra sem eru
með samning við dagforeldri og
kaupa vistun í 4 – 8 klukkustundir
vegna barna sem náð hafa tveggja
ára aldri þar til leikskólapláss hef-
ur verið tryggt. Viðbótar niður-
greiðslur nema 3.750 krónum fyr-
ir hverja klukkustund að hámarki
30.000 kr. á mánuði. Greiðslur
koma til framkvæmda í næsta mán-
uði eftir að barnið nær tveggja ára
aldri. Greitt er eftirá, fyrsta hvers
mánaðar.
Foreldra þurfa ekki að sækja um
þessar viðbótar niðurgreiðslur og
munu þær bætast við þær niður-
greiðslur sem fyrir eru til for-
eldra.
frg
Frumvarp Samfylkingarinnar um
breytingum á sóttvarnarlögum sem
heimilar heilbrigðisráðherra að
skylda komufólk til dvalar í sótt-
varnarhúsi var dreift á Alþingi í gær.
Logi Einarsson er fyrsti flutnings-
maður frumvarpsins. Þingflokks-
formaður Samfylkingarinnar hafði
þá farið fram á það við forseta Al-
þingis að málið verði tekið fyrir sem
allra fyrst enda um brýnt Covid-
mál að ræða. Aðspurður hvort Logi
teldi líklegt að þingmeirihluti væri
fyrir frumvarpinu í kvöldfréttum á
mánudaginn, kvaðst hann bjartsýnn
á það, enda væri málið mjög aðkall-
andi.
„Lagabreytingin sem við leggj-
um til er einföld. Fjölmargir þing-
menn stjórnar og stjórnarandstöðu
hafa frá því í gær [sunnudag, innsk.
blm] tekið undir með okkur í Sam-
fylkingunni um nauðsyn frumvarps
sem heimilar heilbrigðisráðherra
að skylda komufólk á sóttvarna-
hótel á grundvelli reglugerðar og
heilbrigðisráðherra opnaði á það
líka þegar hún var innt eftir svör-
um í gærkvöldi. Frumvarp Samfylk-
ingarinnar er fullklárað og verð-
ur dreift nú við upphaf þingfundar
svo við getum klárað málið strax sé
pólitískur vilji til þess,“ sagði Logi í
kvöldfréttum rÚV á mánudaginn.
í greinargerð með frumvarpinu
stendur m.a. „Flutningsmenn frum-
varpsins telja mikilvægt að sótt-
varnayfirvöldum verði veitt heim-
ild í lögum til að gefa út reglugerð
er skylda ferðamenn til sóttkvíar
eða einangrunar í sóttvarnahúsi á
vegum stjórnvalda ef vísbendingar
eru um að lýðheilsa sé í yfirvofandi
hættu. Telja flutningsmenn að kom-
ið hafi í ljós að bregðast þurfi hratt
við í hættuástandi og þar sem sú
lagaskylda hvílir á stjórnvöldum að
gæta meðalhófs við ákvarðanatöku
þykir flutningsmönnum einsýnt að
ekki komi til þess að ákvæðinu verði
beitt án ríkrar ástæðu.“ mm
Norðvesturkjördæmið hefur verið
að eflast mikið síðustu ár og tæki-
færin þar til áframhaldandi uppbygg-
ingar eru óþrjótandi. Ég býð mig
áfram fram til forystu í 1. sæti í for-
vali VG sem nú stendur yfir í Norð-
vesturkjördæmi til að fylgja fast eft-
ir hagsmunabaráttu þessa landshluta
til sjávar og sveita. Það er nauð-
synlegt að skapa áfram þann jarð-
veg að ungt fólk leiti eftir búsetu út
um land og stuðli þannig að vexti og
viðgangi landshlutans. Þó kjördæm-
ið sé að mörgu leyti ólíkt innbyrðis
þá eru þar sameiginlegir hagsmun-
ir hvort sem fólk býr í þéttbýli eða
í dreifbýli. Við höfum þrjá öfluga
háskóla og háskólasetur sem brýnt
er að tryggja áfram góðan rekstrar-
grundvöll. Möguleikar til fjarnáms
og fjölgunar starfa án staðsetningar
í fjarvinnslu eru miklir eins og dæm-
in sanna í kjördæminu þar sem mjög
vel hefur tekist til og síðasta ár hef-
ur sýnt okkur það að fjarvinnsla og
fjarfundir eru komnir til að vera sem
gefur möguleika á ótal atvinnutæki-
færum víða um land.
Á þessu kjörtímabili hefur okk-
ur tekist undir forystu ríkisstjórnar
katrínar Jakobsdóttur að stórauka
fjárframlög til innviðauppbyggingar,
samgöngumála, tengivega, ljósleið-
aravæðingar og jöfnun orkuverðs
svo eitthvað sé nefnt. Einnig höfum
við sett aukna fjármuni í heilbrigðis-
stofnanir og fjölgun hjúkrunarrýma
og niðurgreitt heilbrigðiskostnað
til almennings sem er mikilvægt og
verið er að styrkja ennfrekar aðgengi
fólks út um land að sérfræðilæknum
og geðheilbrigðisþjónustu.
Við höfum lagt mikla áherslu á
að auka fjármagn til nýsköpunar og
hafa framlög aukist um 70% á kjör-
tímabilinu. Nýbúið er að samþykkja
frumvarp um opinberan stuðning
við nýsköpun þar sem ég var fram-
sögumaður á málinu í atvinnuvega-
nefnd en þar tók málið mjög jákvæð-
um breytingum til hagsbóta fyr-
ir landsbyggðirnar sem allur þing-
heimur samþykkti. Þar var m.a. sett
á fót „Nýsköpunargátt“ sem býður
uppá ókeypis ráðgjöf og stuðning
fyrir frumkvöðla á landinu öllu sem
er nýjung. Ég hef leitt vinnu um svo-
kölluð „Hlutdeildarlán“ í velferðar-
nefnd þar sem ríkið greiðir 20%
mótframlag í fyrstu íbúðarkaupum
fyrir tekjulága sem styður mjög við
möguleika ungs
fólks. Þar lagði ég
til að 20% af þess-
um stuðningi ríkisins væri eyrna-
merktur landsbyggðunum sem var
samþykkt. Barátta mín inn á þingi
hefur snúist um breytingar á fisk-
veiðistjórnarkerfinu og þar hef ég
náð fram dagakerfi í strandveið-
um. unnið að innviðauppbyggingu
á landsbyggðunum, jöfnun orku-
verðs, eflingu fjölbreytts landbúnað-
ar, auknu jafnrétti til náms, náttúru-
vernd og endurreisn heilbrigðis og
velferðarkerfisins þar sem hagsmun-
ir aldraðra, öryrkja og unga fólksins
eru tryggðir. Ferðaþjónustan mun
rísa á ný og þar eru möguleikarnir á
áframhaldandi uppbyggingu miklir
og stofnun Hálendisþjóðgarðs mun
efla þá grein sbr. aðdráttarafls þjóð-
garðsins á Snæfellsnesi.
Ég hef verið formaður atvinnu-
veganefndar sl. fjögur ár þar sem
unnið hefur verið með fjölda mála
á sviði sjávarútvegs, landbúnaðar,
ferðaþjónustu, orkumál, skapandi
greina og nýsköpunarmála. Mikil
samvinna hefur verið í nefndinni og
hef ég lagt mig í líma við að vinna
sem best í samstöðu að úrlausn mála
sem hefur borið góðan árangur.
Mótuð hefur verið landbúnaðar-
stefna fyrir ísland og við höfum sam-
þykkt aðgerðaáætlun í matvælaör-
yggi og vernd búfjárstofna og stofn-
að Matvælasjóð. Allt eru þetta að-
gerðir sem eru jákvæðar fyrir tæki-
færi og möguleika á að efla íslenskan
landbúnað til framtíðar. Mjólkur-
iðnaðurinn þarf að halda áfram að
auka nýsköpun en gott dæmi um
slíkt er úr Skagafirði þar sem mys-
an er fullnýtt sem afurð. innlendur
landbúnaður er í góðri stöðu til að
draga úr kolefnisspori og takast á við
orkuskipti og sú vinna er þegar haf-
in hjá greininni með stuðningi í bú-
vörusamningum.
Ég býð áfram krafta mína og
reynslu til að vinna að réttlátu sam-
félagi og þjóðfélagsbreytingum með
sjálfbærni að leiðarljósi þar sem við
byggjum á fjölbreyttu atvinnulífi og
góðu aðgengi að menntun og heil-
brigðiskerfi fyrir alla.
Lilja Rafney Magnúsdóttir
Höf. er alþingismaður og formaður
atvinnuveganefndar og frambjóðandi
í forvali VG 23. til 25. apríl.
Grípum tækifærin
- verkin tala
Breyttar reglur um niðurgreiðslur
gjalda hjá dagforeldrum á Akranesi
Leggja fram frumvarp sem skyldar
komufarþega til dvalar í sóttvarnahúsi
Þingflokkur Samfylkingarinnar.