Skessuhorn - 21.04.2021, Blaðsíða 20
MiðVikudAGur 21. ApríL 202120
Frá því eldgos hófst á reykja-
nesskaga föstudagskvöldið 19.
mars síðastliðinn hafa landsmenn
flykkst að gosstöðvunum til að
berja sjónarspilið augum. um er
að ræða nokkuð merkilegt gos en
kvikan sem streymir upp úr jörð-
inni kemur beint úr möttli jarðar,
af meira dýpi en flest önnur eld-
gos í seinni tíð. En það er ekki
hættulaust að fara að gosinu til að
sjá það með eigin augum. Engin
afmörkuð gönguleið var til stað-
ar þegar gosið hófst, veður hefur
verið bæði gott og slæmt þennan
tíma sem gosið hefur staðið yfir og
gas sem kemur upp á yfirborðið
getur verið lúmskt og hættulegt.
Það er því margt sem ber að var-
ast. Til að fólk geti komist öruggt
að gosinu hafa björgunarsveit-
ir um land allt staðið þar vaktina,
afmarkað gönguleiðir, fylgst með
gasmengun og verið fólki innan
handar sem meiðist eða ræður illa
við gönguna.
Rólegur dagur
Björgunarsveitarfólk á Vestur-
landi hefur verið duglegt að leggja
leið sína á reykjanesið til að að-
stoða við gæslu á svæðinu. Blaða-
maður Skessuhorns fékk að fylgja
fjórum meðlimum í Björgunar-
félagi Akraness að gosinu síðast-
liðinn föstudag og fylgjast með
störfum sveitarinnar á svæðinu.
Við hittum þá Sigurð Axel Axels-
son, Björn Torfa Axelsson, Ágúst
Heimisson og Sölva Má Hjalta-
son í húsnæði sveitarinnar á Akra-
nesi þar sem þeir voru að undir-
búa brottför. Þeir gættu að því að
allur nauðsynlegur búnaður væri
með í för; GpS tæki, gasgrímur,
hlý föt, sjúkratöskur og fleira. Að
því loknu héldu þeir af stað með
tvö sexhjól á kerru. Fyrsta stopp
var í húsnæði Björgunarsveitar-
innar Þorbjörns í Grindavík. Þar
beið þeirra hlaðborð til að fylla á
tankinn fyrir komandi vakt. Málin
voru rædd við heimamenn og far-
ið var yfir stöðuna við gosið þann
daginn. Þetta hafði verið held-
ur rólegur dagur. Veður var frek-
ar leiðinlegt og því fáir sem höfðu
lagt leið sína að gosstöðvunum
þennan dag.
Ekið að gosinu
Björgunarfélag Akraness var með
kvöldvakt þennan dag og eftir að
hafa skipulagt hana og verkefnum
raðað niður var lagt af stað að gos-
svæðinu. Þegar þangað var kom-
ið var éljagangur og frekar hvasst.
Þó var fólk að leggja af stað gang-
andi að gosinu en allir virtust
nokkuð vel búnir fyrir kvöldið. Á
þessum tímapunkti skiptu björg-
unarsveitamenn frá Björgunar-
félagi Akraness sér niður. Sigurð-
ur Axel og Ágúst ætluðu að fylgj-
ast með gönguleiðinni á sexhjól-
um og vera til taks fyrir fólk á leið-
inni til og frá gosinu. Björn Torfi
og Sölvi Már ætluðu saman á bíl
upp að gosinu til að standa vakt-
ina þar og blaðamaður slóst í för
með þeim. Fyrst var ekið að gos-
stöðvunum austan megin þar sem
Ferð með Björgunarfélagi Akraness að
eldgosinu á Reykjanesskaga
Sigurður Axel Axelsson, Björn Torfi Axelsson, Ágúst Heimisson og Sölva Már Hjaltason stóðu vaktina fyrir Björgunarfélag
Akraness síðastliðinn föstudag.
Sölvi Már setur nauðsynlegan búnað í tösku fyrir brottför frá Akranesi.
Mikilvægt er að hafa gasgrímur með á vakt við eldgosið.
Í Grindavík var veglegt hlaðborð svo björgunarsveitafólk gat fyllt á tankinn fyrir
vakt.
Komið að bílastæðinu þar sem gangan að gosinu hefst. Haglég og rok tók á móti
fólki þennan föstudaginn en inn á milli sást sólinni bregða fyrir.
Sölvi keyrir af stað að eldgosinu.
Björgunarfélag Akraness var komið að eldgosinu þegar sólin var um það bil að
setjast.