Skessuhorn - 21.04.2021, Blaðsíða 12
MiðVikudAGur 21. ApríL 202112
Þríeykið; Víðir reynisson, Alma
Möller og Þórólfur Guðnason,
héldu upplýsingafund á mánu-
daginn þar sem fjallað var um það
bakslag sem varð í síðustu viku og
um helgina í útbreiðslu Covid-19.
Smitum hefur fjölgað mikið af svo-
kölluðu breska afbrigði veirunn-
ar og hlutfallslega margir hafa ver-
ið utan sóttkvíar. 27 ný smit voru
greind á mánudag og höfðu 25 af
þeim verið í sóttkví. Alma Möller
landlæknir sagði atburði helgarinn-
ar vonbrigði. „Breska afbrigðið er
til staðar í samfélaginu. Nú er mik-
ilvægt að láta ekki slá sig út af lag-
inu og fara í sýnatöku við minnstu
einkenni,“ sagði hún og nefndi ein-
kenni á borð við hósta, hita, and-
þyngsli, kvef, hálsbólgu, beinverki,
höfuðverk, slappleika, ógleði og
skert lyktar- og bragðskyn. „Svo
haldi fólk sig heima þar til það fær
niðurstöðu úr sýnatöku. Þetta er
mjög mikilvægt,“ sagði Alma Möll-
er.
Hópsmit undanfarinna daga
virðast eiga sér aðdraganda en eru
að hluta að minnsta kosti rakin til
einstaklings sem ekki hélt sóttkví.
Hópsmit má rekja til leikskólans
Jörva í reykjavík og fiskvinnslu-
fyrirtækis en mögulega með dreif-
ingu í gegnum veitingastað. Viða-
mikil smitrakning hefur farið fram
síðustu daga.
Þórólfur Guðnason sóttvarna-
læknir sagði á upplýsingafundinum
að ekki væri ljóst á þessari stundu
hvort gripið verði til hertra aðgerða
í ljósi þessara tíðinda en sýkingin
hafi komið upp áður en slakað var
á sóttvarnareglum í seinustu viku.
Ef smitum fjölgar enn frekar sagð-
ist hann munu leggja til hertar að-
gerðir að nýju en vildi þó ekki slá
því föstu á þessari stundu. mm
Lögreglan á Norðurlandi
eystra segir frá því á Facebo-
ok síðu sinni að tíu ára barn á
rafhlaupahjóli, frá hjólaleigunni
Hopp, hafi ekki valdið hjólinu að
fullu vegna stærðar og þyngd-
ar þess. dróst barnið með hjólinu
út á götuna og munaði hársbreidd
að barnið yrði fyrir bíl. Samkvæmt
reglum Hopp þurfa leigutakar að
vera 18 ára og eldri til að mega
leigja hjól hjá fyrirtækinu.
rafhlaupahjól verða æ vinsælli
í umferðinni og notendur þeirra
eru á öllum aldri. Með hækk-
andi sól birtast rafhlaupahjól-
in nú á götum bæja og víðar.
Þá verður sífellt algengara að
ökumenn slíkra rafhlaupa-
hjóla aki of hratt og virði
umferðarreglur að vett-
ugi. Lögreglan hvet-
ur foreldra til þess að
ræða þetta við börn
sín, brýna fyrir þeim
að þau megi ekki leigja
þessi hjól og eins að
gæta ávallt varúðar
við hjólreiðar og að
nota alltaf reiðhjóla-
hjálma.
Samgöngustofa hefur
tekið saman helstu atriði
varðandi notkun vélknú-
inna hlaupahjóla og öryggi.
Þar segir meðal annars: „Vél-
knúin hlaupahjól (oft kölluð
rafhlaupahjól, rafmagnshlaupa-
hjól, rafskútur) tilheyra
flokki reiðhjóla og eru
hönnuð
til aksturs á hraða frá 6 km á klst.
upp í 25 km á klst.“ Enn fremur
segir: „í umferðarlögum kemur
fram að slíkum farartækjum megi
þó ekki aka á akbraut en þau lúta
að öðru leyti sömu reglum og reið-
hjól t.d. hvað varðar öryggisbúnað
og mikilvæg atriði sem vert er að
hafa í huga þegar hjólað er á gang-
stígum.
Samkvæmt umferðarlögum er
ekkert aldurstakmark á vélknúin
hlaupahjól en ávallt skal fara eftir
þeim viðmiðum og leiðbeiningum
sem framleiðandi hjólsins leggur til.
Auk þess eru rafhlaupahjólaleigur
yfirleitt með aldurstakmark á notk-
un hjólanna. Þá ber að athuga
að börn og ungmenni undir
16 ára aldri eiga samkvæmt
lögum alltaf að nota hjálm
við hjólreiðar en mælt er með
að allir noti hjálm á rafhlaupa-
hjóli öryggisins vegna.
frg
Hróatildur ehf gerir út bátinn Birtu
SH 203 sem er á grásleppuveið-
um þessa dagana. Skipverjar voru
í óða önn að landa rúmlega þrem-
ur tonnum af afla þegar fréttaritari
Skessuhorns átti leið um Grundar-
fjarðarhöfn 14. apríl síðastliðinn. p.
Andri Þórðarson hjá löndunarþjón-
ustunni djúpakletti aðstoðaði skip-
verja, tók á móti bátnum og hífði
aflann upp á bryggju.
tfk
Starfsfólk heilsugæslustöðvar HVE
á Akranesi skerpti í síðustu viku á
nokkrum atriðum varðandi Co-
vid-19 og sýnatökur. í ljósi tilmæla
sóttvarnayfirvalda birtum við þess-
ar upplýsingar:
1. Allir, óháð aldri, sem hafa
einkenni covid er ráðlagt að fara
í skimun og vera í sóttkví þangað
til niðurstöður úr skimun berast
(hiti, hósti, beinverkir, hálssærindi,
höfuðverkur, kvef, niðurgangur,
ógleði, slappleiki, truflun á lyktar-/
bragðskyni, uppköst, nánd við ein-
stakling með Covid – 19 einkenni
(minna en 2 metrar í 15 mínútur).)
2. Skimun á Covid – 19 er bókuð
inn á heilsuvera.is, fólk gerir þetta
sjálft (með rafrænum skilríkjum) og
fær strikamerki sent í símann. Hægt
er að bóka sýnatöku í gegnum co-
vid síma 432-1000 á heilsugæslu ef
fólk getur ekki bókað sjálft. Ekki er
hægt að bóka fram í tímann, strika-
merki er gilt í 3 sólarhringa.
3. Sýnataka fer fram alla daga kl.
13.00 -13.20 á Akranesi (mæta með
grímu í sjúkrabílaskýlinu við hlið-
ina á lögreglustöðinni). Það þarf
að koma inn í skýlið með síma með
strikamerki.
4. Þeir sem þurfa covid vottorð
vegna ferðalaga er bent á að nota
travel.covid.is, ódýrasta leiðin til
að fá próf og vottorð. Sýnataka fer
fram í rvk.
5. Einungis þeir sem fá boðun
um að mæta í bólusetningu geta
mætt í bólusetningu. Ekki er hægt
að afgreiða alla í einu og fólk er
beðið um að sýna biðlund, verið er
að bólusetja eins hratt og örugglega
og hægt er.
6. Eins og staðan er núna er ekki
hægt að velja um hvaða bóluefni
er gefið, sóttvarnalæknir og land-
læknir eru ábyrgir fyrir því. Þeir
sem hafna bólusetningu þurfa að
bíða þar til búið er að bólusetja for-
gangshópa, ekki liggur fyrir dag-
setning á því.
mm
ísland varð síðastliðinn fimmtu-
dag aftur grænt á korti Sóttvarna-
stofnunar Evrópu, eitt Evrópu-
ríkja. Stofnunin uppfærir á hverj-
um fimmtudegi kort sem sýnir ný-
gengi COVid-19 smita í Evrópu.
Græni liturinn er til marks um að
14 daga nýgengi smita sé minna
en 25 smit á hverja 100.000 íbúa.
„Þetta er ánægjulegur vitnisburð-
ur um að sóttvarnaaðgerðir hér
á landi duga vel, við erum á réttri
leið og síðast en ekki síst fjölgar nú
jafnt og þétt í hópi bólusettra hér á
landi,“ sagði Svandís Svavarsdóttir
heilbrigðisráðherra. Eftir þetta tók
sig upp ný bylgja faraldursins hér á
landi og því óvíst hvort landið verði
áfram eina græna land Evrópu eins
og raunin var síðasta fimmtudag.
Alls höfðu rúmlega 95.000 ein-
staklingar fengið bólusetningu hér
á landi síðastliðinn fimmtudag og
þar af voru rúmlega 28.000 full-
bólusettir. mm
Þórólfur og Víðir. Ljósm. úr safni.
Bakslag í baráttuna við veiruna
Ísland grænt eitt Evrópuríkja
Barn dróst í veg fyrir bíl
með rafhlaupahjóli
Rafhlaupahjól. Ljósm. af Facebooksíðu
Lögreglunnar á Norðurlandi eystra.
Sýnataka á Akranesi. Ljósm. úr safni/kgk.
Upplýsingar vegna
sýnatöku
Birta SH 203
landar grásleppu