Skessuhorn - 21.04.2021, Blaðsíða 2
MiðVikudAGur 21. ApríL 20212
Sumardagurinn fyrsti er á morg-
un og þá er rétti tíminn til að
draga fram sólhattinn, stuttbux-
urnar og sólgleraugun og taka
kannski smá ferðalag út í garð.
Þetta er líka tíminn til að taka
nagladekkin undan bílunum og
hreinsa umhverfið í kringum sig
en Stóri plokkdagurinn er ein-
mitt á laugardaginn. Gleðilegt
sumar!
Á morgun, sumardaginn fyrsta,
á að vera suðaustlæg átt 5-13
m/s og rigning vestanlands,
en hægviðri og að mestu þurrt
austanlands. Hlýnandi veður. Á
föstudag er útlit fyrir suðlæga
átt 5-10 m/s og dálitla vætu,
en skýjað með köflum og þurrt
austantil á landinu. Hiti 5-14 stig.
Á laugardag er útlit fyrir frem-
ur hæga suðaustlæga átt, skýjað
með köflum og víða þurrt. Hiti
8-15 stig. Á sunnudag og mánu-
dag á að vera austlæg átt, skýjað
og sumsstaðar dálítil væta, eink-
um sunnantil á landinu. Kólnar
heldur.
Í síðustu viku var spurt á vef
Skessuhorns: „Skiptir það þig
máli hversu umhverfisvænar
umbúðir eru á vörum sem þú
kaupir?“ 63% svöruðu því að
það skipti miklu máli, 25% sögð-
ust vera sama um það og 12%
sögðust ekki hafa hugleitt það.
Í næstu viku er spurt:
Hvaða sóttvarnarráðstafanir
hlakkar þig mest til
að losna við?
Þóra Geirlaug Bjartmarsdóttir
er nú að þróa heildstæða kyn-
fræðslu fyrir alla nemendur í
Grunnskóla Borgarfjarðar, með
það markmið að gera öðrum
kleift að nýta sér þá vinnu líka.
Þóra Geirlaug er Vestlendingur
vikunnar
Spurning
vikunnar
Til minnis
Vestlendingur
vikunnar
Veðurhorfur
Eldur kom upp
í nýlegum bíl
AkrANES: Síðdegis á
fimmtudag í liðinni viku kom
upp eldur í mælaborði á ný-
legum kia bíl hvar hann stóð
í Flóahverfi á Akranesi. Eig-
andi bílsins hafði nýlega sest
upp í bíl sinn og sett í gang
þegar hann heyrði smell
og eldur gaus upp í mæla-
borði. Að sögn Jens Heiðars
ragnarssonar slökkviliðs-
stjóra fóru slökkviliðsmenn
á staðinn. Lögreglumenn
voru fyrstir á vettvang og
höfðu tæmt úr duftslökkvi-
tæki inn í bílinn og að mestu
slökkt eldinn þegar slökkvi-
liðsmenn mættu á vettvang.
Bíllinn er að sögn Jens Heið-
ars illa farinn ef ekki ónýtur.
-mm
Pfizer flýtir
afhendingu
bóluefna
Framkvæmdastjóri Evrópu-
sambandins tilkynnti í síð-
ustu viku að bóluefnafram-
leiðandinn pfizer muni af-
henda um 50 milljónum
fleiri bóluefnaskammta til
Evrópuþjóða en áður hafði
verið reiknað með á öðrum
ársfjórðungi. Þetta þýðir að
ísland mun fá samtals rúm-
lega 192 þúsund bóluefna-
skammta frá pfizer fyrir lok
júní sem dugir til að bólu-
setja um 96 þúsund einstak-
linga.
-mm
Grjóthrun varð í Búlandshöfða um liðna
helgi. Ekki féllu stór björg og náði skrið-
an því ekki inn á þjóðveginn. Spýjan fyllir
þó vel í rásina sem ætluð er til að taka við
hruni af þessu tagi og ískögglum. Hrun
eins og þetta gerist þegar vatn safnast fyrir
í berginu og svo frystir. reglulega hrynja
þó einstaka stærri steinar eða björg úr
fjallinu og má sjá þá í rásinni þegar ekið er
fyrir Búlandshöfðann. þa
Línubáturinn kristinn Hu, sem
rær frá Ólafsvík, lenti heldur bet-
ur í steinbítsmoki út af Blakknesi
á Barðaströnd í vikunni sem leið.
Aflinn var 29 tonn á 60 bala sem er
483 kíló á hvern bala. Bárður Guð-
mundsson útgerðarmaður segir í
samtali við fréttaritara Skessuhorns
að kristinn hafi verið ásamt öðr-
um bátum út af Látrabjargi þar sem
aflinn hafi farið minnkandi. Því
var ákveðið að prófa á nýjum stað.
Það bar sýnilegan árangur en veiði-
svæðið er á um 60 mílna siglingar-
leið frá Ólafsvík.
Allur þessi afli fór á markað og
segir Bárður að vegna mikils fram-
boðs á mörkuðum af steinbít hafi
verðið farið hríðlækkandi. Fengu
þeir því aðeins 115 krónur fyrir
kílóið af slægðum steinbít. kristinn
Hu hélt að löndun lokinni beint til
veiða á sama stað enda langt stím
fyrir höndum. af
Heimsmarkaðsverð á áli hefur
hækkað hratt á undanförnum mán-
uðum. Á meðfylgjandi grafi af lme.
com má sjá verðþróun heimsmark-
aðsverðs á áli frá 16. apríl 2020 til
Álverð hækkar mikið vegna aukinnar eftirspurnar
Steinbítsmok út af Blakknesi
Unnið við löndun á 29 tonnum af steinbít.
Grjóthrun úr
Búlandshöfða
sama dags í ár. Fyrir ári var tonn-
ið selt á 1.476 dollara en var komið
16. apríl síðastliðinn í 2.308 dollar-
ar. Sérfræðingar segja að rekja megi
þessa miklu hækkun til vaxandi eft-
irspurnar á áli í Asíu og aukinn-
ar bjartsýni um efnahagsuppgang
nú þegar sér fyrir endann á heims-
faraldrinum. Vaxandi eftirspurn
er eftir áli m.a. til framleiðslu raf-
tækja, flugvéla, bíla, rafstrengja og
drykkjarvöruumbúða.
mm
fæst í Hagkaup og á marr.is
Pantanir berast á landsbyggðina einum til tveimur virkum dögum eftir að pöntun berst
HJÁ MARR FÆRÐU FALLEGAR VÖRUR FYRIR HANDVERKIÐ
C
M
Y
CM
MY
CY
CMY
K
MARR_bladaaugl_255x100mm.pdf 1 13.4.2021 17:14:47