Þróttur : félagsblað Knattspyrnufélagsins Þróttar - 05.08.1954, Page 10
E J' J Ó I. F U R I 6 S S v () ,\'
Aðdragandi að stofnun Þróttar og innganga
félagsins í Iþróttasamband Islands
Knattspyrnufélagið Þrótt-
ur var stofnað föstudaginn 5.
ágúst 1949 í skála Ungmenna-
félagsins á Grímsstaðaholti.
Á stofnfundi voru mættir
37 menn og teljast þeir stofn-
endur félagsins.
Aðdragandinn að stofnun
Þróttar nær töluvert lengra
en stofndagurinn gefur til
kynna og verður að fara all-
mörg ár aftur í tímann til þess
að gera honum einhver skil.
Á Grímsstaðaholti og í
Skerjafirði var snemma áhugi
fyrir knattspyrnu. Á árunum
1924—1925 mynduðu dreng-
irnir þar samtök. Ruddu vöil
og stofnuðu drengjafélag sem
þeir kölluðu „Baldur“. Völlur-
inn var tekinn af þeim eftir
stuttan tíma og dofnaði þá á-
huginn. Svo var það árið 1931
að Eðvarð Sigurðsson í Litlu
Brekku og Áki Jakobsson,
fyrrum ráðherra, gengust
fyrir stofnun drengjafélags er
þeir nefndu ,,Dögun“. Bloss-
aði þá áhuginn á ný. Ruddur
var völlur á Melunum og kom-
ið þar saman á kvöldin til
leikja.
Árið 1934 fóru yngri dreng-
irnir að mynda samtök sín á
milli. Kepptu þeir oft öin á
2 Afmœlisblað ÞRÓTTAR
milli, t. d. Vestur-Holt á móti
Austur-Holti eða Skerjaf jörð-
ur á móti Holtinu. Einnig
kepptu þeir við ýms drengja-
félög í bænum eða þá að skor-
Eyjólfur Jónsson
að var á yngri flokka knatt-
spyrnufélaganna. Líka minn-
ist ég þess að farin var keppn-
isför til Keflavíkur. í þessum
leikjum voru drengirnir jafn-
an í einum flokki og kölluðu
lið sitt „Knattspyrnufélagið
Þróttur“ til þess að gera ekki
upp á milli Grímsstaðaholts
og Skerjafjarðar. Varð því
Þróttarnafnið nokkurskonar
einingartákn hverfanna. Um
félagsstofnun var þó ekki að
ræða, og því gengu margir af
þessum drengjum í knatt-
spyrnufélögin f jögur í bænum
og áttu sumir eftir að verða
góðir og þekktir knattspyrnu-
menn.
Einkum gengu þeir í Val og
Fram. Til gamans má nefna
nokkra drengi, sem leikið
hafa í meistaraflokki eða
yngri flokkum félaganna. I
Val: Bræðurnir Einar og Öl-
afur Símonarsynir, Björn
Guðjónsson, Bjarnastöðum,
Gunnar Jónsson á Þrastar-
götunni og Þorkell Magnús-
son (síðar þekktur hnefa-
leikamaður í Ármanni, t. d.
verið íslandsmeistari í létt-
þungavigt). I Fram: Karl
Torfason, Jóhann Jónsson
(Dadó), Gísli Benjamínsson,
Hermann Guðmundsson, Eyj-
ólfur Ingjaldsson, bræðurnir
Haukur og Ragnar Bjarna-
synir, Þorvaldur I. Helgason,
Ölafur Jónsson og Ólafur Öl-
afsson. I KR: Guðbjartur
Stefánsson. Úr Skerjafirðin-
um fengu KR-ingar líka Isl.-
methafann í hástökki, Skúla
Guðmundsson og skauta-
hlauparinn Kristján Árnason
er af Grímsstaðaholti. Fjöldi