Þróttur : félagsblað Knattspyrnufélagsins Þróttar - 05.08.1954, Síða 11
Frumherjarnir. Drengirnir sem kepptu við starfsmannafélögin 1949. Fremsta
röð frá vinstri: Haukur Hallvarðsson, Björn Arnason, Grétar Norðfjörð, Ög-
mundur H. Stephensen, Haraldur Eyjólfsson, Matthías Eyjólfsson. Miðröð frá
vinstri: Emil Emils, Gunnar Pétursson, Sigurjón Sigurðsson, Halldór Sigurðs-
son formaður, Hermann Guðmundsson, Olafur Ólafsson, Tómas Sturlaugsson
Einar Asgeirsson. Efsta röð frá vinstri: Ari Jónsson, Jón Guðmundsson,
l'oikclI Magnússon, Gunnar Jónsson, Tryggvi Eyjólfsson, Magnús Vignir
Pétursson, Ólafur Jónsson, Óli Long, Skúli Magnússon, Eyjólfur Jónsson.
■t’" Hhk Einu af
frumlieijuuum:
■H, V ffllS Einar
I Símonarson
annarra drengja hafa leikið
með þessum félögum.
Kappleikirnir sem getið
var um héldust allt til ársins
1940 er ísland var hernumið
af Bretum. En þá reisti her-
inn sér tjaldbúðir á Melunum
og tók þar athafnasvæðið af
drengjunum. Þó fengum við
að halda eftir vellinum okkar
en það var ekki nema skamma
hríð, því að brátt fór herinn
að byggja bragga og girti svo
af ,,kampinn“. Misstum við
þar með völlinn. Allt knatt-
spyrnulíf lagðist niður þar
suður frá.
Næstu árin var alloft keppt
í knattspyrnu við brezka her-
menn og unnum við jafn-
an þá leiki. Það voru ekki sízt
þessir leikir við herinn sem
vöktu hjá okkur Halldóri
áhuga fyrir stofnun félags
fyrir Grímsstaðaholt og
Skerjafjörð, sem varð síðar
meir aðdragandinn að stofn-
un Þróttar. Ekki get ég hætt
þessu rabbi mínu án þess
að minnast á nokkra af þeim
drengjum, sem stærstan þátt
áttu í sigrunum yfir brezka
hernum.
Bræðurnir Einar og Ólafur
Símonarsynir, Arnargötu 12
sköruðu langt fram úr. Knatt-
spyrnugeta þeirra var aðdá-
unarverð og alltaf voru þeir
beztu einstaklingarnir á vell-
inum. Englendingarnir voru
mjög hrifnir af þeim og sögðu
að í Englandi gætu þeir orðið
frægir knattspyrnumenn. Eg
harma það, og svo munu
fleiri knattspyrnuunendur
gera, að þeir skyldu hætta
svo snemma knattspyrnunni.
Þeir fóru báðir til sjós, eins
og svo margir af drengjunum
og hurfu úr íþróttalífinu. Plin-
ar missti heilsuna fyrir fáum
árum og hefur legið rúmfast-
ur síðan á Landsspítalanum.
Einnig má nefna Karl Torfa-
son, Jóhann Jónsson (Dadó),
Gísla Benjamínsson, Eyjólf
Ingjaldsson og Hermann Guð-
mundsson, sem allir hafa
leikið í meistaraflokki Fram
meira og minna, Þorvald I.
Helgason, Björn Guðjónsson,
Bjarnastöðum, bræðurna
Svein og Kristján Kristjáns-
Bergþór Viktor
Ingjaldsson Sigurbjörnsson
Afmœlisblað ÞRÓTTAR 3