Þróttur : félagsblað Knattspyrnufélagsins Þróttar - 05.08.1954, Síða 19

Þróttur : félagsblað Knattspyrnufélagsins Þróttar - 05.08.1954, Síða 19
/ / / Á þessum tímamótum í sögu félagsins flyt ég því beztu kveðjur og árnaðarósk- ir I.S.I., um leið og ég þakka Þrótti fyrir þróttmikið félags- starf. Tilraun félagsins að sameina alla drengi á Gríms- staðaholtinu og Skerjafirði, hefir tekizt giftusamlega. — Þótt knattspyrnufélögin í höfuðstaðnum væru fjögur fyrir, þá voru enn margir drengir á Grímsstaðaholtinu, í Skerjafirði og víðar, sem enn höfðu ekki kynnzt íþrótt- um eða skipulegu íþrótta- starfi. En ekkert veit ég betra og hollara fyrir unga og vaska drengi en íþróttaiðk- anir í tómstundum. Margir telja knattspyrnuna skemmti- (stóra kringlan), Tugþraut 5000 stig, á móti Tómasi Lárussyni í Afturelding. Einn af knatt- spyrnumönnum okkar, Sigurgeir Bjarnason, keppti á Víðavangs- hlaupi ÍR í fyrra. Hann náði þeim glæsilega árangri að hafna í 5. sæti, aðeins á eftir Sigurði Guðnasyni ÍR og vinna marga góða hlaupara, en keppendur voru 17. Vegna meiðsla gat hann ekki tekið þátt í hlaupinu í vor, eins og til stóð. legasta. Hún eflir góðan fé- lagsanda og samtakamátt. Hún er í senn karlmannleg og drengileg. Þar fær einstak- lingsframtakið og samvinnan að njóta sín á sérstæðan hátt. Það er einstaklingurinn sem skorar mark, eftir góða og nána samvinnu samherja sinna. Og má mikið af því læra í daglegu lífi. Höfuðborg vor stækkar óð- fluga. Með hverju ári sem líður eru ný borgarhverfi byggð. Ekkert er eðlilegra en að íþróttafélög séu stofnuð í þessum hverfum. Knatt- spyrnufélagið Þróttur hefir nú starfað í fimm ár í einu elzta borgarhverfinu, og sýnt og sannað tilverurétt sinn. Mættu önnur borgarhverfi fara að dæmi Þróttar og gera slíkt hið sama. — Þróttur hefir nú á þessu afmælisári sínu unnið sinn stærsta sigur í knattspyrnu. Sigrarnir eru ekki það mikilverðasta, þótt góðir séu, heldur hið farsæla félagsstarf, þar sem mest á- herzla er lögð á uppeldisgildí íþróttanna. Að hinir ungu og vösku menn séu réttilega þjálfaðir um lpið og þeir fá gott uppeldi. Viti skil á réttu Benedikt G. Waage og röngu. Hafi lært réttar leikreglur, sem þeir beita ekki aðeins á leikvanginum, heldur og á leikvelli lífsins, þegar þar að kemur og þar sem þeirra er mest þörf. Slíkir menn verða sterkir hlekkir í borg- aralegu lífi og starfi, sem hægt er að treysta 1 blíðu og stríðu. Að vísu geta einstaka afreksmenn ofmetnazt; en meirihluti íþróttamanna mun reynast farsæll í starfi, trúr og dyggur og kunna að beita leikreglum réttilega við með- bræður sína. Þróttur er nú að byrja sigurbraut sína Eg vona að Þróttarar ofmetnist ekki, en vaxi ásmegin í góðu starfi. Að þeir láti dáð og drengskap haldast í hendur. Þá mun þeim vel vegna, og þeir reynast manndómsmenn, — líka á leikvelli lífsins. 20. júní1954 Bennó. Afmœlisblað ÞRÓTTAR 11

x

Þróttur : félagsblað Knattspyrnufélagsins Þróttar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þróttur : félagsblað Knattspyrnufélagsins Þróttar
https://timarit.is/publication/1572

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.