Þróttur : félagsblað Knattspyrnufélagsins Þróttar - 05.08.1954, Page 34
Halldór SigurÓsson, fyrsti
formaSur Þróttar
Halldór Sigurðsson fisksali var
fyrsti formaður Knattspyrnufé-
lagsins Þróttar og einn aðalhvata-
maður að stofnun þess.
Halldór er fæddur 22. sept 1897
á Isafirði og voru foreldrar hans
Sigurður Jónasson fiskimatsmað-
ur og Ingibjörg ívarsdóttir Voru
börnin átta. Sex ára missti Hall-
dór móður sína og tvístraðist þá
heimilið. Var hann þá hjá föður
sínum til átta ára aldurs. Þá flutti
faðir hans til Hnífsdals og Hall-
dór réðist sem snúningadrengur
hjá Hálfdani Hálfdanarsyni frá
Búð í Hnífsdal. Var hann þar
til tólf ára aldurs. en fór þá til
föður síns aftur og stundaði sjó-
af kennslu hans farið að gæta
með auknum samleik liðsins
seinni hluta sumars í fyrra, og
það ber að harma að KRR skyldi
taka sér það vald þá að meina
Þrótti þátttöku í haustmótinu.
Bróðir Óla B., Guðbjörn Jónsson
úr KR tók við af bróður sínum
og mun hann æfa meistaraflokk
í sumar.
Einstakir leikir afmælismótsins
fóru þannig:
Fyrri dagur:
Valur A — Þróttur B .. .. 5—2
Fram A — KR B .......... 5—4
Víkingur A — Valur B .. . . 3—2
Þróttur A — Víkingur B .. 7—0
KR A — Fram B .......... 6—4
26 Afnuelisblað ÞRÓTTAR
vinnu. Fimmtán ára réðst Halldór
á skútu frá Reykjavík og upp úr
því fór hann í siglingar og varð sú
,,ferð“ löng, sjö ár, og meðal
þeirra voru öll stríðsárin fyrri.
Fór hann víða um höf. Þrisvar
var skipi, sem hann var á, sökkt
af kafbátum og eitt strandaði í
Portúgal. Árið 1922 kom Halldór
til Reykjavíkur alkominn, starf-
aði fyrst í verzluninni Edinborg,
en fór svo að verzla með fisk,
gera út fiskibát og hóf loks fisk-
sölu fyrir Fiskhöllina. Fór hann
með fisksölukerru langar leiðir
um úthverfin og síðar sömu leiðir
á bíl, og stundar þá atvinnu enn.
Halldór er kvæntur Jósefínu Eyj-
Auk þess fóru þá fram auka-
leikir milli KR og Þróttar í 4.
flokki og sigruðu hinir fyrr-
nefndu með 7:0.
Síðari dagur:
Fram A — Víkingur A .... 7—3
Þróttur A — Valur A ... . 3—2
KR A — Fram A............ 6—2
Þróttur A — KR A ........ 5—5
KR A — Þróttur A......... 2—0
(framlengdur leikur).
Aukaleikir: 3. fl.: Valur —
Þróttur 3—2; 2. fl.: Fram — Þrótt-
ur 4—1.
Knattspyrnuunnandi
(Grein úr Íþróttasíðu Þjóð-
viljans, 25. febr. 1954).
Halldór Sigurðsson
ólfsdóttur og hafa þau alið upp
sex börn.
Iþróttaáhuga sinn telur Halldór
vaknað hafa snemma. I Hnífsdal
kenndi skólastjóri barnaskólans
glímu, og skíðaíþrótt var mikið
iðkuð á Vestfjörðum í ungdæmi
hans Líka var reynt að sparka
heimatilbúnum fótbolta á velli
með tveimur mörkum. Skipt var
!iði, en engir kunnu leikreglur. í
siglingunum kynntist Halldór
knattspyrnu og fékk mikinn á-
huga á henni og lék talsvert sjálf-
ur. Eftir að til Reykjavíkur kom
fylgdist hann með knattspyrn-
unni af lífi og sál og þá er komið
að þætti hans í stofnun og starfi
Knattspyrnufélagsins Þróttar, en
sá þáttur hefur verið ýtarlega
rakinn af Eyjólfi Jónssyni og
fleirum hér í blaðinu.
Halldór leggur áherzlu á að
völlurinn á Grímstaðaholti og
gott samkomulag við U. M. F. G.