Þróttur : félagsblað Knattspyrnufélagsins Þróttar - 05.08.1954, Blaðsíða 36
Einnig urðu stúlkurnar
Islandsmeistarar í II. fl. 1953
og Reykjavíkurmeistarar
sama ár.
Veturinn 1953 sendi félagið
til keppni í alla flokka nema
meistaraflokk kvenna. Var
þetta góð þátttaka á öðru
starfsári. Má það eflaust
þakka því að æfingunum
fjölgaði, var þá eingöngu æft
í íþróttahúsinu að Háloga-
landi. Útkoman var ekki góð
nema í 2. fl. kvenna, er urðu
íslandsmeistarar í sínum
flokki og 1. flokki karla, er
léku úrslitleik við íslands-
meistarana í þeim flokki, Ár-
mann.
Ef við lítum á útkomu
flokkanna á s.l. keppnisári,
má segja að hún sýni góða
framför í flestum flokkum og
stendur lítt að baki hinum fé-
lögunum.
Kvennaflokkar félagsins
voru alltaf betri hliðin, einnig
meistaraflokkur, er sendur
var í fyrsta skipti með góðum
árangri, tapaði einum leik af
fimm. Þann flokk skipuðu
stúlkur sem unnu tvö undan-
farin ár Islandsmeistaramót í
2. fl. og er vonandi að stúlk-
ur-nar eigi eftir að sýna hvers
þær eru megnugar sem fyrr.
II. fl. kvenna tapaði Islands-
meistaramótinu á óhagstæðri
markatölu fyrir Ármanni.
Karlaflokkar félagsins
stóðu sig ekki eins vel, nema
hvað meistaraflokkur vann
sig úr B-deild upp í A-deild,
Fyrsta stjórn handknattleiksdeildar Þróttar 1951. Frernri röð frá vinstri: Jón
Guðmundsson gjaldkeri, Ásgeir Benediktsson formaður, Grétar Norðfjörð
ritari. Efri röð frá vinstri: Gunnar Pétursson varaformaður, Jón Ásgeirsson
meðstjórnandi.
Meistaraflokkur Þróttar í handknattleik er sigraði á B-móti meistarafiokks
innanhúss 1954. Efri röð frá vinstri: Einar Jónsson formaður, Magnús V.
Pétursson, Hörður Guðmundsson, Jón Guðmundsson, Jón Asgeirsson. Neðri
röð frá vinstri: Björn Árnason, Guðmundur Gústafsson, Guðm. Axelsson.
28 Afmœlisblað ÞRÓTTAR