Þróttur : félagsblað Knattspyrnufélagsins Þróttar - 05.08.1954, Side 38
H E L G A E M I L S :
Fyrstu íslandsmeistararnir
Við byrjuðum að æfa hand-
bolta sumarið 1951. Fyrsti
þjálfari okkar var Ásgeir
Benediktsson, og kenndi hann
okkur í tæpt ár. Hjá honum
lærðum við öll undirstöðuat-
riði íþróttarinnar, en engin
okkar hafði æft handbolta áð-
ur, enda allar ungar. Ég held
að við eigum Ásgeiri mikið
að þakka getu okkar og
kunnáttu.
Mér er minnisstæður fyrsti
kappleikurinn, sem við háð-
um, en það var við Fram, og
töpuðum við þeim leik 4:0.
Fyrsta mótið, sem við tókum
þátt í var Reykjavíkurmótið
haustið 1951. Stóðum við okk-
ur framar öllum vonum og
fólk á Grímsstaðaholti og
Skerjaferði og skapa því skil-
yrði til aukins félagslegs
þroska.
Það var bjart yfir Gríms-
staðaholti og Skerjafirði þeg-
ar Knattspyrnufélagið Þrótt-
ur var stofnað, og ég vona,
að um langan aldur megi sá
félagsskapur stuðla að auk-
inni félagslegri og líkamlegri
vaxtarrækt félaga sinna og
færa hinni uppvaxandi kyn-
slóð bæði mörg og góð verk-
efni að vinna.
urðum jafnar Val að stigum.
Þetta haust sigldi Ásgeir og
tók þá Jón Guðmundsson við
og æfði okkur. Reyndist hann
góður þjálfari og áhugasam-
ur um gengi okkar.
Veturinn 1952 tókum við
þátt í Islandsmótinu og stóð-
um okkur vel miðað við þær
aðstæður, sem við höfðum til
æfinga, en þær fóru fram í
leikfimisal Austurbæjarskól-
ans. Þetta mót unnum við með
prýði, gerðum 9 mörk en
fengum eitt á okkur og færð-
um Þrótti þar með fyrsta ís-
landsmeistaratitilinn. Um
haustið tókum við þátt í
Reykjavíkurmótinu og töpuð-
um við í úrslitaleik við Ár-
mann. Fannst mér oftast nær
skemmtilegir leikir sem við
lékum við Ármann þó Ár-
mannsstúlkurnar væru okkur
alltaf erfiðastar viðureignar.
Árið 1953 tókum við þátt i
íslandsmótinu og Reykjavík-
urmótinu og unnum þá bæði
mótin. Á íslandsmótið 1954
sendum við í fyrsta sinn tvo
flokka, 2. flokk og meistara-
flokk, og stóðu báðir flokk-
arnir sig vel eftir atvikum.
Meistaraflokkur gerði fjögur
jafntefli og tapaði einum leik
og má það teljast góð frammi-
staða. Annar flokkur stóð sig
alveg prýðilega og varð jafn
Ármanni að stigum en Ár-
Fyrstu íslandsmeistarar Þróttar II. flokkur 1952. Efri röð frá vinstri: Ásgeir
Benediktsson, þjálfari, Helga Emils, Edda Baldursdóttir, Ólafía Lárusdóttir,
Aðalheiður Steingrímsdóttir. Fremri röð frá vinstri: Elín Guðmundsdóttir,
Ragnheiður Matthíasdóttir, Lára Hansdóttir.
30 AfmcelisblaS ÞRÓTTAR