Þróttur : félagsblað Knattspyrnufélagsins Þróttar - 05.08.1954, Síða 40

Þróttur : félagsblað Knattspyrnufélagsins Þróttar - 05.08.1954, Síða 40
Haraldur Snorrason. mig þó úr K.R. en mun hafa ,.týnzt“. — Hvernig stóð svo á kynnum þínum við Þrótt? — Fyrsta veturinn sem Þróttur starfaði, 1949—1950, voru tveir kunningjar mínir, Bjarni Bjarna- son og Gísli Benjamínsson, ný- gengnir í félagið, og voru alltaf að fræða mig um þetta merka fé- lag þegar við sátum að spilum og voru bjartsýnir á framtíð þess. Undir vorið vantaði Þrótt þjálf- ara. Bjarni vék þá að því við mig hvort ég gæti vísað þeim á nokk- urn. Ég benti þeim á að reyna við Skotann Willfam Shirreff, sem ég vissi að hafði lifandi á- huga á knattspyrnu og talsverða reynslu. Halldór Sigurðsson var viðstaddur og vildi tafarlaust sækja manninn. Drifu þeir mig inn í bíl og til Williams, sem tók þessu með stillingu, lofaði að at- huga málið. Hann tók svo að sér 32 Aftruelisblað ÞRÓTTAR 1. 2. og 4. flokk og voru allir ánægðir með starf hans. Hann gekk strax í félagið og er með beztu leikmönnum þess. — Svo hefur Þróttur tekið þig líka? -— Já, þeir töldu mig víst í íé- laginu upp frá því. Nokkru seinna var haldinn fundur til fjáröfl- unar, og var ég kosinn í fjáröfl- unarnefnd að mér fjarverandi og án þess að ég hefði sótt um inn- göngu. Við komum að stað happ- drætti. Það gekk allsæmilega, þó miðarnir seldust fremur illa, og hafði Þróttur ekki haft jafn- miklu fé úr að spila til þess tíma. Haustið 1950 var ég svo kosinn í stjórn félagsins. — Og úr því var engrar misk- unnar að vænta? — Nei! Eg var settur í bridge- nefnd, skemmtinefnd, ferðanefnd — og held að ekkert embætti hafi svo verið stofnað síðan að ég hafi ekki átt þess kost að komast í það- ef tími hefði leyft! — Og hvernig hefurðu tíma til þess alls? — Eftir vinnu hef ég alltaf tíma handa Þrótti Konunni hefur stundum þótt ég óþarflega oft úti á kvöldin, og það er verst við fé- lagsstarfsemi hvað hún bitnar á heimilislífinu. En félagsstarfið í íþróttahreyfingunni er ekki unn- ið fyrir gýg, með því er ungling- unum hjálpað til að hafa eitthvað hollt að hugsa um. — Síðast nokkrar samvizku- spurningar: Hvað finnst þér Þrótti hafa- tekizt bezt? — í knattspyrnunni sigurinn yfir Val í sumar. En ekki mætti síður nefna félagslífið, hvernig tekizt hefur með bridge, tafli og fleiru að auka kynni félagsmanna og draga að styrktarfélaga. Nú hafa Valur og K. R einnig tekið upp bridge. En tilfinnanleg er vöntun félagsins á samastað. Eins og einskonar uppbót fyrir félags- heimili hefur það orðið hefð að Þróttarfélagar hittast á kvöldin á Café Höll í Austurstr., eru þar stundum 5, 10, 20 í einu. Með þessum hætti hefur einnig auk- izt kynning félagsmanna og við samvistirnar þar hefur mörg góð hugmynd um félagsstarf orðið til. Ýmsum félögum hefur þótt þetta óviðkunnanlegt, en þörfin á stað þar sem félagarnir geta hitzt er svo brýn, að hana verður að leysa með einhverju móti. — Hvað vantar Þrótt mest? — Félagsheimili, félagsheimili! Þörfin á því er bezt sýnd með því sem ég sagði áðan um Höllina — Og betri starfskrafta í stjórn fé- lagsins, betra samstarf, meiri áhuga, einkum þeirra, sem taka að sér trúnaðarstörf. Það stendur ekki á drengjunum og þá ekki á stúlkunum ef forustan er traust og dugmikil. — Hver telurðu helztu verk- efni á næstunni? — Efling fjárhagsins er brýnt nauðsynjamál. Og við þurfum að efla og styrkja alla flokka, efla stjórnina eins og ég sagði áðan, koma skriði á félagsheimilismálið og halda áfram sem horfir um félagslíf og kynningu félags- manna. Annars verða verkefnin

x

Þróttur : félagsblað Knattspyrnufélagsins Þróttar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þróttur : félagsblað Knattspyrnufélagsins Þróttar
https://timarit.is/publication/1572

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.