Þróttur : félagsblað Knattspyrnufélagsins Þróttar - 05.08.1954, Qupperneq 42
stæður og veðurskilyrði hafa
leyft, og hefur það oft verið
erfitt og vanþakklátt verk.
íþróttabandalag Reykjavíkur
hefur séð um ísinn núna tvö
undanfarin ár í samráði við
Skautafélagið og var þá reynt
að fá upp svell á Iþróttavell-
inum. Það tókst fyrsta árið
og var þar haldið Islandsmót,
það sögulegasta sem haldið
hefur verið. Því lauk með
sigri Kristjáns Árnasonar
(KR), annar varð Þorsteinn
Steingrímsson (Þrótti), en
síðan komu Akureyringar.
Þetta mót var kært, til sárra
leiðinda og engum til gagns,
og spunnust út úr þessu leið-
inleg blaðaskrif um það hvort
það hefði verið rétt eða rangt
að kæra málið, síðan um það
hvort það ætti að viðurkenna
þau met sem Islandsmet, er
sett voru í öðrum löndum. Um
slík og þvílík atriði má að
sjálfsögðu deila en það eru
ekki deilur sem okkur vantar,
því þær eyðileggja bæði sam-
starfið og íþróttina. En við
þurfum að fá reglur sem
sniðnar eru eftir alþjóða-
skautareglum, en samt mið-
aðar við staðhætti hér hjá
okkur.
Annars má segja að sam-
starfið hafi verið gott og öll-
um til gagns og gleði og vil
ég í því sambandi minnast á
ferð okkar Sunnlendinganna
norður á Akureyri á íslands-
mótið sem haldið var þar vet-
u'rinn 1951. Var það mjög
ánægjuleg ferð og móttökur
allar hinar beztu og Akur-
eyringum til hins mesta sóma
í öllu, þó svo að þeir ættu við
erfiðleika að etja í sambandi
við svellið. Bjuggum við þar
á heimilum í nokkra daga, eða
meðan mótið stóð yfir, og urð-
um svo veðurtepptir og vor-
um því lengur en til stóð, en
ferðin var hin skemmtilegasta
í alla staði.
Þróttur hefur á að skipa
nokkrum skautamönnum og
er einn þeirra Þorsteinn
Steingrímsson, sem hefur ver-
ið annar á þeim mótum sem
hann hefur tekið þátt í, og
einu sinni Reykjavíkurmeist-
ari. Þróttur hefur átt kepp-
endur í öllum skautamótum
sem haldin hafa verið nema
fyrsta Islandsmótinu og Is-
landsmótinu sem haldið var á
Akureyri 1 fyrra. Þar keppti
enginn Reykvíkingur, var
ekki hægt að komast norður
í tæka tíð vegna óhagstæðs
veðurs.
Þróttur er ungt félag, en
hefur samt náð góðum á-
rangri í þeim greinum sem
það hefur lagt stund á. Tel ég
það mest að þakka því góða
samstarfi og mikla og fjöl-
breytta félagslífi sem ríkt
hefur í félaginu allt frá byrj-
un. Iþróttafélögin eru unga
fólkinu mikils virði og ætti
ungt fólk að styðja þau sjálfs
sín vegna og þeirra sem á eft-
ir koma, en hinir fullorðnu
vegna æskunnar sem á að
erfa landið. Það skiptir að
sjálfsögðu ekki svo miklu
máli hvað félagið heitir, að-
eins að það hefur heilbrigða
stefnuskrá og góðan félags-
anda. Þá verða félagarnir líka
góðir og nýtir, hvar sem er og
til hvers sem er.
34 Afmœlisblad ÞRÓTTAR