Þróttur : félagsblað Knattspyrnufélagsins Þróttar - 05.08.1954, Side 43
M A (i N V S V I (i N I 1{ P k T V R S S O N :
ltri«lge- og tafldeilil Þróttar
Fyrsta veturinn sem félagið
starfaði, voru hafðar taflæf-
ingar tvisvar í viku í U.M.F.G
skálanum, sem félagið hafði
á leigu. Forvígismenn að þess-
um taflæfingum voru Aðal-
steinn Guðmundsson, Eyjólf-
ur Jónsson, Jens Tómasson og
Magnús Pétursson. Var til-
gangurinn sá, að fá félags-
menn saman til kynningar og
keppni í þessari skemmtilegu
og fáguðu íþróttagrein.
Einnig var markmið þessara
taflkvölda að gera styrktar-
félaga að þátttakendum í fé-
lagsstarfinu. Síðar meir varð
bridge snar þáttur í vetrar-
starfseminni. Taflæfingarnar
vöktu strax mikinn áhuga
meðal eldri og yngri meðlima.
Þarna gátu menn komið sam-
an, átt skemmtilega kvöld-
stund yfir tafli og út frá því
spunnust oft skemmtilegar
umræður um félagsmál og
önnur áhugamál eins og ger-
ist þegar ungir og gamlir
mætast. Til þess að hafa eitt-
hvert markmið á þessum tafl-
kvöldum var efnt til skák-
keppni á milli félagsmanna v'ir
Skerjafirði og Grímsstaða-
holti. Fyrsta keppnin fór
fram 24. nóv. 1949. Úrslit
urðu þau að Skerfirðingar
unnu með 5 vinningum gegnl.
Grímsstaðaholtsbúar undu
ekki vel úrslitunum og skor-
uðu á Skerfirðinga aftur til
leiks. Sú keppni fór fram 15.
des. 1949. Úrslit urðu þau að
Grimsstaðaholtsbúar sigruðu
óvænt með 5 vinningum
gegn 2. Þar sem almennt var
álitið að Skerfirðingar væru
sterkari skákmenn kom þessi
sigur Gh.-búa mjög á óvart.
Síðar var ákveðið að halda
skákmót meðal félagsmanna
og hófst það 12. janúar 1950.
Þátttakendur voi’u 14. Efstur
og þar með fyrsti skákmeist-
ari Þróttar var Grétar Jón-
son, fékk hann 13V2 vinn-
ing af 14 mögulegum. Er
þetta mjög góð frammistaða
því þarna voru saman komnir
margir góðir skákmenn. Ann-
ar varð Aðalsteinn Guð-
mundsson með 12 vinninga.
Þriðji varð Tómas Tómasson
með 10x/2 vinning. Þar sem
meðal keppenda voru nokkrir
starfsmenn Pósthússins í
Reykjavík, var ákveðin
keppni milli þeirra annarsveg-
ar og Þróttar hinsvegar.
Úrslit urðu þau að Þróttur
sigraði með 2 vinningum
gegn 1. Um haustið 1950 fór
fram skákkeppni milli Þrótt-
ar og KR. Keppt var í tvö-
faldri umferð á 12 borðum.
Magnús Vignir Péturssön
Úrslit urðu þau að Þróttverj-
ar sigruðu með 15 y2 vinning
gegn 814. Var þetta mjög
mikill sigur fyrir Þrótt, þar
sem við stærsta og fjölmenn-
asta knattspyrnufélag bæjar-
ins var að etja. Sigurvegari í
skákmóti Þróttar 1952 varð
Árni Jakobsson, aðeins 14
ára gamall, með 10 vinninga
af 11 mögulegum. 2. var Að-
alsteinn Guðmundsson með 9
vinninga, 3. varð Tómas Tóm-
asson með 81/í> vinning. Sigur
Árna kom mjög á óvart, þar
sem almennt var ekki reiknað
með honum svo sterkum, en
þrátt fyrir það vann hann
verðskuldaðan sigur.
Þegar fram í sótti átti
bridge-inn meiri og meiiú vin-
sældum að fagna hjá flestum,
enda fór það svo að taflið
varð útundan fyrir bridgein-
um. Mestan þátt í vinsældum
bridgeins átti Aðalsteinn
Afmcelisblad ÞRÓTTAR 35