Morgunblaðið - 25.03.2021, Page 2

Morgunblaðið - 25.03.2021, Page 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. MARS 2021 Millimál í fernu VÍTAMÍN &STEINEFNI PRÓTEIN GLÚTENS LAKTÓSAORKA ÁN ÁN Næring+ er á lista Sjúkratrygginga Íslands yfir niðurgreidd næringarefni fyrir þá sem eiga gilda innkaupaheimild. Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Baldur Arnarson baldura@mbl.is Íbúðum í byggingu fækkar um ríf- lega 1.100 milli ára. Þá er útlit fyrir að ríflega 400 færri íbúðir verði full- búnar eftir ár en áður var áætlað. Þetta má lesa úr íbúðatalningu Samtaka iðnaðarins. Heildarfjöldi íbúða í byggingu í marsmánuði 2018-2021 er sýndur á grafinu hér til hliðar. Eins og sjá má eru nú ríflega 2.000 færri íbúðir í byggingu en í mars 2019. Talningin fer fram á höfuðborgarsvæðinu, í ná- grenni þess og á Norðurlandi. Hægra megin á grafinu má svo sjá spá SI um fullbúnar íbúðir á næsta ári. Gangi spáin eftir verða 1.790 íbúðir fullbúnar á landinu öllu á næsta ári. Þar af 1.484 á höfuðborg- arsvæðinu og 306 í nágrenni þess. Til samanburðar var því spáð í mars í fyrra að ríflega 2.200 íbúðir yrðu fullbúnar í mars á næsta ári. Ing- ólfur Bender, aðalhagfræðingur Samtaka iðnaðarins, segir íbúðum í byggingu fækka á öllum byggingar- stigum milli talninga. Þá hafi lager- inn af fullbúnum íbúðum nær selst upp undanfarið en eins og Morgun- blaðið hefur rakið hefur spurn eftir fullbúnum íbúðum verið vaxandi. „Við höfum ekki séð færri íbúðir í byggingu í fjögur ár hér á höfuð- borgarsvæðinu. Þetta er mesta fækkun íbúða í byggingu milli ára frá upphafi mælinga hjá okkur sem var 2010,“ segir Ingólfur. Það sé áhyggjuefni að ekki skuli vera fleiri íbúðir á fyrstu bygging- arstigum. Það kalli á lítið framboð á fullbúnum íbúðum litið fram í tímann og ójafnvægi á markaðnum. Skilar sér í verðhækkunum „Skortur á fullbúnum íbúðum skil- ar sér þá í áframhaldandi hækkun húsnæðisverðs. Það sem stýrir þessu öðru fremur er lóðaframboðið og því er stýrt af sveitarfélögum,“ segir Ingólfur. Takmarkað framboð sé því afleiðing þeirrar stefnu að þétta byggð á kostnað þess að brjóta nýtt land undir byggð. „Það eru skýr skilaboð frá okkar félagsmönnum að lóðirnar eru flöskuhálsinn og það sem hefur komið í veg fyrir upp- byggingu hagkvæmra íbúða,“ segir Ingólfur. Með lágum vöxtum, kaup- máttaraukningu, mikilli eftirspurn og fólksfjölgun viðhaldi minna fram- boð að óbreyttu verðhækkunum. Íbúðum í byggingu fækkar milli ára - Aðalhagfræðingur SI segir þróunina afleiðingu þeirrar stefnu að þétta byggð á kostnað nýrra hverfa - Fyrirséð ójafnvægi á fasteignamarkaði muni að óbreyttu þrýsta upp húsnæðiverðinu á næstunni Íbúðir íbygginguáhöfuðborgarsvæðinu,í nágrenniþessogáNorðurlandi Heildarfjöldi íbúða í byggingu skv. talningu Samtaka iðnaðarins Spá SI um fullbúnar íbúðir árið 2022 7.000 6.000 5.000 4.000 3.000 2.000 1.000 0 3.500 3.000 2.500 2.000 1.500 1.000 500 0 Heimild: Samtök iðnaðarins Mars 2018 Mars 2019 Mars 2020 Mars 2021 Spá SI í mars 2020 Spá SI í mars 2021 5.335 6.474 5.741 4.610 2.216 1.790 Enn liggur ekki fyrir hve langa við- veru súrálsskipið Taurus Confidence mun hafa í Mjóeyrarhöfn á Reyðar- firði, en 10 af 19 í áhöfn þess eru veikir af Covid-19. Aðgerðastjórn og umdæmislæknir sóttvarna hafa í samvinnu við umboðsmann útgerð- arinnar og skipstjórann gefið leið- beiningar um hvernig sóttvörnum skuli háttað. Ástandið um borð er sagt stöðugt, fleiri hafa ekki veikst og greindir eru rólfærir. Eftirlit er samkvæmt fyrirliggjandi vinnu- reglum frá Covid-deildum Landspít- ala og Heilbrigðisstofnunar Austur- lands. Sýnataka og annað tengt þessu hefur gengið vel og aðgerða- stjórn telur ekki hættu á að smitið dreifi sér, skv. upplýsingum frá lög- reglunni á Austurlandi. „Áhöfnin verður um borð í skipinu uns heilbrigðisyfirvöld telja skip- verja orðna ferðafæra og geta haldið til hafs á ný,“ segir Garðar Jóhanns- son, framkvæmdastjóri Nesskipa. Fyrirtækið sér um þjónustu hér á landið við skipið, sem kom til Reyð- arfjarðar. Skipið lagði í haf frá Sao Luis í Brasilíu 15. mars og var siglt beint hingað til lands, án viðkomu í nokkurri höfn. Ætla verður því að sjómennirnir sýktu séu allir með brasilíska afbrigðið af kórónuveir- unni. Enn liggur ekki fyrir hvert skipið fari eftir losun á Reyðarfirði. „Umboðsþjónusta við erlend skip getur verið margþætt,“ segir Garð- ar. „Í fyrsta lagi eru þetta samskipti við til dæmis útgerð og leigutaka skips, farmeiganda, hafnaryfirvöld á hverjum stað, Landhelgisgæsluna og tollinn ásamt skjalagerð ýmiss konar. Einnig þarf að útvega kost, olíu, vatn og slíkt. Stundum þurfa skipverjar líka persónulega þjónustu og núna vegna Covid-19 hafa sam- skipti við heilbrigðisyfirvöld bæst við okkar þátt. Eins og staðan er núna er ástand skipverja stöðugt og hefur ekki versnað milli daga. Því verður vonandi ekki svo langt í að Taurus Confidence leggi aftur í haf,“ segir Garðar. sbs@mbl.is Áhöfnin rólfær - Súrálsskipið kom beint frá Brasilíu Ljósmynd/Gunnar Gunnarsson Reyðarfjörður Taurus Confidence er í álvershöfninni við Mjóeyri. Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is Mikil leynd hefur hvílt yfir upp- tökum á stórri tískusýningu franska tískurisans Yves Saint Laurent sem fram fór hér á landi í vikunni. Um 250 manns komu að tökunum, bæði Íslendingar og fólk sem kom hingað til lands á vegum tískuhússins. Erfitt hefur reynst fyrir stóru tískuhúsin úti í heimi að kynna nýjar tískulínar sínar á tímum kórónuveir- unnar. Hefðbundnar tískusýningar ganga illa upp og af þeim sökum hef- ur þurft að finna nýjar leiðir. Ein þeirra virðist vera að færa tískupall- ana út í íslenska náttúru eins og Yves Saint Laurent gerði. Yves Saint Laurent er eitt stærsta tísku- merki í heimi og framleiðir bæði fatnað og fylgihluti og húð- og snyrtivörur. Um eitt hundrað manns komu hingað til lands á vegum tískuhúss- ins og dvöldu hér í tvær vikur. Um var að ræða fyrirsætur, yfirmenn tískuhússins, tökulið, förðunarfræð- inga, fólk sem sá um búninga og svo mætti áfram telja. Þau nutu liðsinnis um 150 Íslendinga þegar mest lét. Heimildum blaðsins ber ekki saman um fjölda tökudaga, þeir voru sagðir vera allt frá þremur og upp í sex tals- ins. Erlendu gestirnir fóru í sóttkví við komuna hingað og var þeim svo dreift á fjölmörg hótel úti á landi. Tökur fóru meðal annars fram í Her- dísarvík, við Skógafoss, í Reyn- isfjöru og við Hjörleifshöfða. Sam- kvæmt upplýsingum blaðsins þurfti að breyta áformum um tökur á Reykjanesi þegar fréttir bárust af yfirvofandi eldgosi þar. Umhverfisstofnun veitti kvik- myndafyrirtækinu Pegasus leyfi til kvikmyndataka og aksturs utan vega á nokkrum stöðum vegna þessa verkefnis. Í leyfisbréfi frá stofn- uninni kemur fram að tökur fóru fram í Eldhrauni í Herdísarvík. Þar voru mottur lagðar yfir mosa til að hlífa honum. Ráðgert var að mynda á tveimur stöðum við Kleifarvatn og setja upp leikmyndir í fjöruborðinu. Við Skógafoss var ráðgert að tökur færu fram á áreyrum framan við fossinn. Áætlað var að færa til grjót. Til að framleiða rafmagn fyrir tækja- búnað óskaði kvikmyndafyrirtækið eftir leyfi til að fá að keyra sjö tonna trukk með rafstöð inn á áreyrarnar sem yrði staðsettur þar meðan tökur færu fram. Þeirri ósk var hafnað. Þess í stað var ákveðið að keyra með tvær 100 kg rafstöðvar á sexhjólum inn á áreyrarnar. Leyfi var veitt fyrir drónamynda- tökum og við Herdísarvík, Kleifar- vatn og Skógafoss fóru einnig fram ljósmyndatökur. Risastór tískusýning tekin upp í Reynisfjöru - 250 manna tökur hér á landi fyrir Yves Saint Laurent Morgunblaðið/Ómar Reynisfjara Um 250 manns voru í tökuliði á vegum franska tískurisans Yves Saint Laurent, innlendir sem erlendir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.