Morgunblaðið - 25.03.2021, Page 43

Morgunblaðið - 25.03.2021, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. MARS 2021 Aðhalds- sundbolirnir frá Lascana komnir Bláu húsin v/Faxafen • Sími 553 7355 Vefverslun selena.is Ferðalög á Páll Guðmundsson palli@fi.is Göngu- og skoðunarferð að gos- stöðvum í Geldingadölum skoðast sem dagsferð sem getur tekið allt að 5-8 klst. og gönguleiðin getur verið 8-12 km, allt eftir hvar fólk nær að leggja bílum sínum. Eftir að Suður- strandarvegur var opnaður og upp- hafsstaður göngu er austan við Festarfjall er heildarvegalengd að gosstöðvum styttri en engu að síður getur verið töluverður spotti frá þeim stað þar sem hægt er að leggja að gönguslóðinni. Gönguleiðin er að hluta til í úfnu hrauni og erfiðu landslagi og því afar mikilvægt að búa sig rétt til ferðarinnar. Lykilatriði eru að fylgja leiðbein- ingum almannavarna og björg- unarsveita, huga vel að veðri og bún- aði. Sérstaklega mikilvægt er huga vel að vindáttabreytingum vegna gasmengunar sem er á svæðinu. Rétt er að hafa í huga að hættulegar gastegundir geta verið lyktarlausar, margar gastegundir eru þyngri en andrúmsloftið og safnast fyrir í lægðum í landslaginu. Búnaður fyrir göngu að gosstöðvum Gönguferð að gosstöðvum er frá upphafsstað göngu ca 8-12 km löng ganga eftir því hvar hægt er að leggja bílnum. Björgunarsveitin Þorbjörn hefur nú stikað gönguleið- ina. Að hluta til er gengið um úfið hraun og krefjandi landslag. Allir sem leggja í slíka göngu þurfa að vera með allan réttan búnað og vera í góðu líkamlegu formi. Göngufatnaður - Góðir gönguskór og mjúkir göngusokkar - Nærföt, ull eða flís, eftir veðri - Peysa úr ull eða flís - Göngubuxur/hlífðarfatnaður í dagpokanum - Smurt nesti fyrir daginn - Göngunasl svo sem þurrkaðir ávextir, súkkulaði og hnetur - Vatnsbrúsi - Hitabrúsi með kakói, tei eða kaffi - Göngustafir - Myndavél og kíkir - Sólgleraugu - Sólarvörn og varasalvi - Hælsærisplástur, plástur, teygju- bindi og verkjalyf - Salernispappír, blautþurrkur og litlir plastpokar fyrir notaðan pappír - Húfa, vettlingar og buff um háls- inn - Vind- og vatnsþéttur hlífðarfatn- aður - Legghlífar, ef þurfa þykir Reykjanesskagi hefur löngum verið paradís útivistarfólks. Þar eru fjöl- margar góðar gönguleiðir og þekkt örnefni og stórbrotin náttúra sem gaman er að skoða. Í Árbók Ferða- félags Íslands 1984 um Reykjanes- skaga vestan Selvogsgötu er svo sagt um Fagradalsfjall: Fagradalsfjall Fagradalsfjall má með rétti telja kjarnann í þeim fjallaklasa sem tek- ur við af hraunasvæðinu sem rann fyrir þúsundum ára en út frá þeim ganga fjöll með ýmsum nöfnum og mismunandi útlits. Sum þeirra eru með grágrýtisþekju á kolli, önnur án hennar. Hin fyrrnefndu eru mó- bergsstapar sem hafa byggst upp við gos í jöklum. Gosin fyrir árþús- undum hafa smátt og smátt brætt sig upp í gegnum ísinn og þegar gos- ið náði upp úr ísnum myndaðist hraun eins og á íslausu landi sem náði þá jafnan að ísröndinni eða vatni sem meðfram henni kann að hafa verið. Þetta veldur því að eitt af því sem einkennir stapana eru þver- hníptir hamrar neðst. Sjálfur meg- ingígurinn á Fagradalsfjalli er nyrst á fjallinu í um 385 m hæð. Gígurinn er reglulegur og fallegur. Þegar gengið er að gosstöðvum inn Nátthaga eða eftir Nátthaga- krika kjósa margir að lokum að setj- ast í hlíðar Fagradalsfjalls og njóta þaðan stórbrotins sjónarspils eld- gossins. Margir kjósa að ganga um svæðið og sjá eldgosið fá ólíkum sjónarhornum. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Gönguferð að gosstöðvunum Allir sem leggja í slíka göngu þurfa að vera í með allan réttan búnað og vera í góðu líkamlegu formi. Gönguferð að gosstöðvum Gríðarlega mikill áhugi er á því að skoða eld- gosið í Geldingadölum. Frá því að gosið hófst hefur mikill fjöldi fólks lagt leið sína að gos- stöðvunum. Áður en fólk leggur af stað í slíka göngu- og skoðunarferð er rétt að huga vel að nokkrum mikilvægum atriðum. Krefjandi landslag Björg- unarsveitin Þorbjörn hefur nú stikað gönguleiðina.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.