Morgunblaðið - 25.03.2021, Page 12

Morgunblaðið - 25.03.2021, Page 12
12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. MARS 2021 Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is S treitan safnast upp og fólk þarf að vera vakandi fyrir einkennunum kulnunar, sem eru mjög lúmsk,“ seg- ir Pétur Guðjónsson verkfræð- ingur. „Umræða síðustu missera hefur veitt okkur meiri þekkingu á því, hve alvarlegt er þegar fólk á besta aldri hreinlega brennur út, tapar starfsorku og áhuga á dag- legum viðfangsefnum sem áður veittu ánægju. Ég vænti að meiri og betri skilningur leiði af sér vit- undarvakningu, til dæmis í starfs- mannastjórn fyrirtækja því fyrir atvinnulífið er mjög dýrt að tapa góðu fólki sem hefur reynslu og mikilvæga þekkingu. En fyrst og síðast þarf hver og einn að hlúa að sjálfum sér og finna mörkin. Ella getur hætta verið á ferðum.“ Óskað ráða og viljað segja sögu sína Pétur Guðjónsson var meðal viðmælenda í bókinni Þegar karlar stranda – og leiðin í land sem út kom fyrir síðustu jól. Þar ræddi Sigríður Arnardóttir fjölmiðlakona við nokkra karla, menn á miðjum aldri, sem urðu að játa sig sigraða vegna mikils og langvarandi álags í starfi. Efni þetta hefur verið í deiglu og umræðu á síðustu árum, svo sem í atvinnulífinu og hjá sam- tökum og stofnunum vinnumark- aðarins. Mestu hefur þó sennilega skipt að þeir sem reynt hafa stíga fram og segja sögu sína, rétt eins og Pétur gerði. „Mér hefur fundist vænt um að geta miðlað af reynslu minni og eftir að bókin góða kom út í haust – sem aftur fylgdi umfjöllun í fjölmiðlum – hafa ýmsir sett sig í samband við mig. Óskað ráða og líka viljað segja mér sína sögu,“ segir Pétur sem var stjórnandi hjá Marel í 36 ár. Stýrði á árunum 1985-1991 fyrstu útrás fyrirtækisins og bjó þá með fjöl- skyldu sinni í Halifax í Kanada. Kom svo heim og stýrði sölu- og markaðsmálum fyrirtækisins, meðal annars sölu og þjónustu á starfs- stöðvum víða um heiminn. Utan- landsferðir með krefjandi fundum voru tíðar og á tímabili var Pétur með um 800 starfsmenn undir sinni stjórn í erilsömu starfi sem tók sinn toll. Listinn tæmdist aldrei „Áreitið í starfinu var mikið og langvarandi, verkefnalistinn tæmd- ist aldrei og alltaf kom upp eitthvað nýtt og spennandi. Staðreyndin var samt sú að álagið og vandinn jókst án þess að ég veitti því næga at- hygli,“ segir Pétur og heldur áfram: „Árið 2017 sem í minn hlut kom að þurfa að segja upp fram- kvæmdastjóra okkar í Rússlandi, frábærum manni sem hafði starfað hjá okkur lengi og gert allt upp á 10. Vegna skipulagsbreytinga var uppsögn óhjákvæmileg. Þetta tók á mig og klukkustund eftir að ég sagði manninum upp símleiðis leið yfir mig og ég féll í gólfið. Fór með sjúkrabíl á bráðamóttöku, þar sem læknar greindu mig með gáttatif sem streitan fyrr um daginn hafði framkallað.“ Árið 2017 gerði Pétur sér grein fyrir að í óefni stefndi, var með sterk streitu- og kvíðaeinkenni. Eft- ir að hafa ráðfært sig við geðlækni var niðurstaðan að fara í tveggja til þriggja mánaða pásu. Fljótt kom þó í ljós að meira þurfti. Kvíði, hjart- sláttaróregla, erfiðleikar með rök- hugsun og skammtímaminni, skert úthald og þunglyndi. Allt þetta var í pakka Péturs sem einnig átti erfitt með að höndla áreiti. Hann var því áfram frá vinnu. Ætlaði að koma aftur til starfa vorið 2019 en fann sig ekki. Pétur segist því hafa gert sér ljóst að hann ætti ekki aft- urkvæmt og lét endanlega af störf- um hjá Marel fyrir ári. Vel mér hófleg viðfangsefni „Síðustu mánuðir hafa verið frábærir. Streitan er minni og ég get valið mér viðfangsefni, eins og ég hef fjárhagslegt svigrúm til. Fjölskyldan á sitt annað heimili í Kjósinni og þar hef ég verið að að- stoða sveitunga mína við að koma upp hitaveitu og ljósleiðara á sveitabæi og sumarhús. Það er verkefni sem dugar mér og er hóf- legt. Í dag finn ég til dæmis gleðina aftur í því að grípa í gítarinn, vinna við smíðar og útiverkefni. Áhuga- málin eru endalaus. Þetta eru póst- ar sem ég hafði meira og minna misst áhugann á þegar kulnunar- einkennin kikkuðu inn. Í dag tel ég mig vera kominn með 80-90% af þeirri orku andlegri og líkamlegri sem kulnunin tók af mér. Aldurinn ræður því að ég kem aldrei 100% til baka og ekkert við því að segja nema brosa framan í veröldina.“ Tvíbent heimavinna Aðstæður á vinnumarkaði hafa breyst mikið á síðasta árinu vegna kórónuveirunnar. Æ fleiri starfa að einhverju leyti heima. „Heimavinna getur verið tvíbent, sbr. að skil milli einkalífs og starfs þurfa að vera til staðar. Sumir eru háðir símum og þurfa bókstaflega alltaf að vera í sambandi við netheima sem getur verið hættulegt. Því er mikilvægt að einkenni kulnunar og hvort fólk sé hreinlega að brenna út vegna álags sé öllum ljóst,“ segir Pétur Guð- jónsson að síðustu. Morgunblaðið/Sigurður Bogi Tilvera Háð síma og þurfa bókstaflega alltaf að vera í sambandi sem getur verið hættulegt, segir Pétur Guðjónsson um streituvalda nútímans. Hann telur þörf á vitundarvakningu um og að hver og einn þekki sín eigin takmörk. Kulnun er dýr og einkennin lúmsk Streita í starfi tók sinn toll. Þörf er á vitund- arvakningu um hættuna á því að fólk bókstaflega brenni út, segir Pétur Guðjónsson verkfræð- ingur. Hver og einn þarf að hlúa að sjálfum sér og finna mörkin. Í dag tel ég mig vera kominn með 80-90% af þeirri orku andlegri og líkamlegri sem kulnunin tók af mér. Aldurinn ræður því að ég kem aldrei 100% til baka Hleypt hefur verið af stokkunum verk- efninu Brottfluttir Hólmarar – vel- komnir heim sem miðar að því að fá fólk sem á rætur í Stykkishólmi til þess að hverfa aft- ur til búsetu og starfa í heimahögum. Þessu tengist að fyrirtækið Suðureyjar ehf. mun leigja út skrifstofuaðstöðu til fólks og fyr- irtækja að Aðalgötu 10, þar sem útibú Arion-banka og forvera hans hafa lengi verið. Skrifstofusetrið verður opnað í maí nk. „Við viljum hvetja fólk úr Stykk- ishólmi, á aldrinum 25-40 ára, til þess að skoða með opnum huga að koma aftur vestur og setjast þar að. Ég áætla að þetta séu nálægt 200 manns,“ segir Halldór Árnason, talsmaður verkefnisins. Starf þetta hefur fengið 500 þúsund króna styrk frá atvinnu- og nýsköpunarráðuneytinu og fyrir þá fjármuni verður blásið til sóknar. „Margt af þessu unga fólki, sem við viljum ná til, fór að heiman til náms, til dæmis á Reykjavíkursvæðinu. Þegar skóla lauk réð það sig í vinnu syðra, enda ekki komnar aðstæður til að sinna sínum skyldum í fjarvinnu eins og svo margir hafa gert á tímum kórónuveirunnar. Núna eru miklu betri möguleikar til þess. Fyrirtæki og stofnanir auglýsa í ríkari mæli en áður störf án staðsetningar. Þar með gefst tækifæri til þess að flytja út á land, svo sem í Stykkishólm,“ segir Halldór Árnason. Stykkishólmsbær hefur látið útbúa myndband fyrir vefmiðla þar sem kynnt verður fjölbreytt þjónusta í Stykkishólmi, afþreying og vistvænt umhverfi og fleira sem gerir Stykk- ishólm að eftirsóttum stað til að búa og starfa, að mati Halldórs. Reynt verður að hafa persónulegt samband við brottflutta Hólmara og þeir hvattir til að flytja í Stykkishólm í krafti verkefnisins. Alls búa í dag um 1.200 manns í Stykkishólmi, um 100 fleiri en fyrir tíu árum. Stykkishólmur Fallegur bær og römm er taug margra föðurtúna til. Halldór Árnason Hólmarar komi aftur heim ER PLANIÐ SKÍTUGT? Fáðu tilboð í s: 577 5757 GÖTUSÓPUN ÞVOTTUR MÁLUN www.gamafelagid.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.