Morgunblaðið - 25.03.2021, Blaðsíða 1
GIRNILEG TILBOÐ Í NÆSTU NETTÓ!
Lægra verð - léttari innkaup Tilboðin gilda 25. mars – 5. apríl
Bláberjalambalæri
Stutt
1.295KR/KG
ÁÐUR: 2.159 KR/KG
Bæonne skinka
996KR/KG
ÁÐUR: 2.119 KR/KG
-53%-40% Lambahryggur
Heill
2.099KR/KG
ÁÐUR: 2.999 KR/KG
-30%
(227 (# *999 38..8.!"1;8
6 43)2% 42= *,/99' 0&2=8:<&8.!- %"&%#
$!%%
3$;75 0$# 6&8.!+!2$#8..8
REYNDI AÐ
STELA LOPA-
PEYSUNNI FULLKOMIÐ SKIP
NÝR VILHELM Á LEIÐ TIL LANDSINS, 30-32NORSKIR ÚLFAR 28
Andrés Magnússon
andres@mbl.is
Tekið er fyrir útflutning á bóluefni til Íslands
og margra annarra landa, samkvæmt nýrri
reglugerð Evrópusambandsins (ESB). Katrín
Jakobsdóttir forsætisráðherra sagði í samtali
við Morgunblaðið í gærkvöldi að hún hafi rætt
málið við Ursulu von der Leyen, forseta fram-
kvæmdastjórnar ESB, í gær, sem hafi fullviss-
að hana um að Ísland fengi undanþágu.
„Ég lýsti furðu minni á þessari reglugerð og
fékk þau skýru svör að nýju reglurnar myndu
ekki hafa áhrif á afhendingu bóluefna til Ís-
lands frá aðildarríkjum ESB. Hins vegar
ganga þessar boðuðu höml-
ur í berhögg við EES-samn-
inginn og við höfum komið
þeim skilaboðum mjög skýrt
á framfæri við fram-
kvæmdastjórnina og lagt
áherslu á að reglugerðinni
verði breytt og við formlega
undanþegin þessum höml-
um í samræmi við EES-
samninginn.“
Fyrrnefnd reglugerð er liður í vopnaskaki
ESB gagnvart Bretum vegna bóluefna. Þar
koma fram ný skilyrði fyrir útflutningi þeirra,
þar sem árangur Íslands í sóttvörnum, lág
smittíðni og skilvirk bólusetning vinnur gegn
landinu.
Sendiherra ESB kallaður í ráðuneytið
Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra
segir í samtali við Morgunblaðið að sendiherra
ESB á Íslandi hafi verið kallaður í ráðuneytið í
gær og sömuleiðs var mótmælum komið á
framfæri í Brussel. „Ég hef rætt við utanrík-
isráðherra Svíþjóðar og kom sjónarmiðum
okkar skýrt á framfæri. Þetta er einfaldlega
ekki boðlegt. Þetta gengur þvert á EES-samn-
inginn og sá samningur á að standa.“
Bóluefni frá ESB í uppnámi
- Útflutningshömlur á bóluefni frá ESB - Katrín fékk vilyrði von der Leyen fyrir undanþágu Íslands
Ný skilyrði ESB
» Gagnkvæmni – Setur viðtökulandið
hömlur á eigin bóluefnaútflutning eða
hráefni til bóluefnisgerðar?
» Aðstæður – Er staðan betri eða verri
en í ESB; faraldursfræðilega, hvað varðar
bólusetningu og aðgang að bóluefni?
» Gilda samkvæmt orðanna hljóðan um
öll lönd utan Evrópusambandsins.
MSkellt í lás í þrjár vikur »4, 8 og 38
Katrín
Jakobsdóttir
Morgunblaðið/Eggert
Geldingadyngja
að taka á sig mynd?
Margir hafa lagt fram tillögur að nafni á hrauninu og gosstöðv-
unum sem myndast hafa í Geldingadölum í Fagradalsfjalli. Hafa
margar uppástungur litið dagsins ljós. Þar á meðal eru Geld-
ingadalahraun, Geldingahraun, Dalshraun og Geldingadyngja,
svo dæmi séu nefnd. Þingmaðurinn Vilhjálmur Árnason stakk
enn fremur upp á nafninu Fagrahrauni í gær. Jarðvísindamenn
hallast sífellt meira að því að um dyngjugos sé að ræða. Vika er
í dag liðin frá því fjallað var um möguleikann á dyngjugosi á
mbl.is, degi áður en gosið hófst. »20-21, 39 og 43
.Stofnað 1913 . 71. tölublað . 109. árgangur .
F I M M T U D A G U R 2 5. M A R S 2 0 2 1