Morgunblaðið - 25.03.2021, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. MARS 2021
Þetta var frétt mbl.is af frétta-fundi ráðherra í gær:
- - -
Tekin hefurverið
ákvörðun um að
hefja bólusetn-
ingar með bólu-
efni AstraZeneca
á nýjan leik.
- - -
Þetta komfram í máli Svandísar Svav-
arsdóttur heilbrigðisráðherra á
blaðamannafundi ríkisstjórn-
arinnar í Hörpu.
- - -
Ráðgjafahópur Evrópusam-bandsins í málefnum bólusetn-
inga mun gefa það út á næstu dög-
um að mælt verði með notkun
bóluefnisins.
- - -
Hér á landi verða þeir sem eru70 ára og eldri bólusettir með
efninu.
- - -
Það hefur það í för með sér aðþeir bóluefnaskammtar sem
eru til og eru væntanlegir á næstu
tveimur vikum samkvæmt afhend-
ingaráætlunum munu duga fyrir
bæði heilbrigðisstarfsfólk og þá
sem eru 70 ára og eldri.
- - -
Svandís sagði það vera gleðifrétt-irnar á þessum „sérkennilega“
fundi“.
- - -
En þetta var varla hálf fréttin.Algjörlega vantaði afsökun til
almennings. Þögnin þar hrópaði á
hana. Jafnvel í þéttustu þoku á fjöll-
um forðast álfarnir slagtog við
tröllin. Í Evrópu settu sömu „vís-
indalegu“ dylgjur beyg í almenn-
ing. Líka hér. Engar skýringar eða
afsökun fyrir tjónið komu fram á
þessum „sérkennilega fundi“.
Sérkennilegur
fundur
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Nú þegar páskafrí alþingismanna er
að ganga í garð hefur Birgir Þór-
arinsson Miðflokki enn forystuna í
keppninni um ræðukóng Alþingis.
Fats á hæla honum kemur Guð-
mundur Ingi Kristinsson Flokki
fólksins og í þriðja sæti er Björn
Leví Gunnarsson Pírati.
Þegar staðan var tekin fyrir þing-
fundinn í gær hafði Birgir flutt 304
ræður og athugasemdir. Hann hafði
talað í samtals 1.053 mínútur, eða
rúmar 17 klukkustundir. Guðmund-
ur Ingi hafði flutt 277 ræður/athuga-
semdir, samtals 936 mínútur, og
Björn Leví 271 í samtals 902 mín-
útur.
Sá ráðherra sem mest hefur talað
er Bjarni Benediktsson fjármálaráð-
herra, eða í 763 mínútur.
Samkvæmt starfsáætlun Alþingis
fyrir 151. löggjafarþingið verður síð-
asti þingfundur fyrir páskahlé á
morgun, föstudag. Þing kemur sam-
an að nýju mánudaginn 12. apríl.
Ný þingmál, sem eiga að koma á
dagskrá fyrir sumarhlé, þurfa að
berast skrifstofu Alþingis fyrir lok
marsmánaðar. Síðasti þingfundar-
dagurinn er áætlaður 10. júní. Al-
mennar stjórnmálaumræður (eld-
húsdagur) verða mánudaginn 7. júní.
Nýtt Alþingi verður kjörið 25.
september í haust. sisi@mbl.is
Páskahlé að hefjast á Alþingi
- Birgir Þórarinsson og Guðmundur
Ingi Kristinsson oftast í ræðustólinn
Guðmundur Ingi
Kristinsson
Birgir
Þórarinsson
Baðinnréttingar
Fríform ehf.
Askalind 3,
201 Kópavogur.
562–1500
Friform.is.
Mán. – Fim. 10–18
Föstudaga 10–17
Laugardaga 11–15
2
0
0
0
—
2
0
2
0
Andrés Magnússon
andres@mbl.is
Samkeppniseftirlitið (SKE) hyggst
athuga hvort fyrirhuguð lokun dag-
vöruverslunar á Hellu feli í sér brot á
sátt Festar við SKE, en það gæti
leitt af sér fjársektir og afturköllun
heimildar þess fyrir samruna N1 og
Festar árið 2018.
Fyrir hefur SKE haft til rann-
sóknar hvort sáttin hafi verið brotin
á öðrum sviðum og voru tilgreindir
sjö liðir á mögulegum brotum.
Þetta kemur fram í langri yfirlýs-
ingu, sem Samkeppniseftirlitið sendi
frá sér í gær vegna opinberrar um-
fjöllunar á sölu Festar á verslun á
Hellu og störf kunnáttumanns í
tengslum við samrunann.
Málatilbúnaður og störf SKE voru
harðlega gagnrýnd í skýrslu stjórn-
ar á aðalfundi Festar á mánudag, en
af því hefur spunnist nokkur um-
ræða á opinberum vettvangi. Þar
hafa vinnubrögð SKE og Páls Gunn-
ars Pálssonar, forstjóra þess, sætt
aðfinnslum. Þar sem af sölu á dag-
vöruverslun félagsins á Hellu hafi
ekki orðið, m.a. fyrir tilhlutan SKE,
verður henni að óbreyttu lokað í apr-
íl, sem trauðla eykur samkeppni á
svæðinu. Á Hellu
búa 942 manns
samkvæmt Hag-
stofu, en á Hvols-
velli, næsta
byggðakjarna
með verslun, búa
1.024 manns, svo
þar er eftir tak-
mörkuðum mark-
aði að slægjast.
Í gagnrýni á
SKE vegna þessa hefur m.a. verið
fundið að því hve mikinn kostnað
Festi hafi þurft að bera vegna sölu
verslunarinnar, sem þó hefði ekki
tekist. Ekki er vikið að því í yfirlýs-
ingu SKE.
Einnig hefur skipan og kostnaður
vegna „óháðs kunnáttumanns“, sem
fylgjast á með efndum sáttarinnar,
vakið umræðu. Í yfirlýsingunni er
fjallað almennt um hlutverk kunn-
áttumannsins og sagt að Lúðvík
Bergvinsson hdl. hafi verið falið það,
en hann hafi verið einn þriggja
manna, sem Festi hefði sjálf stungið
upp á, en hinir tveir hefðu ekki þótt
uppfylla skilyrði um óhæði.
Ekki er fjallað sérstaklega um
kostnaðinn, en sagt að þekkt sé að
hann geti verið mismunandi.
Aðgerðir ef búð á
Hellu verður lokað
- Samkeppnisstofnun varar Festi við
Páll Gunnar
Pálsson