Morgunblaðið - 25.03.2021, Side 50

Morgunblaðið - 25.03.2021, Side 50
50 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. MARS 2021 ✝ G. Auður Krist- jánsdóttir fæddist í Reykjavík 13. október 1937. Hún lést á Hrafn- istu á Sléttuvegi þann 7. mars 2021. Foreldrar Auðar voru Kristján G. Kristjánsson, fædd- ur á Sveinseyri í Dýrafirði 15. júlí 1912, d. 31. maí 2003, og Halldóra Guðmunds- dóttir, fædd í Skorhaga í Brynjudal í Kjósarhreppi 11. jan. 1903, d. 8. feb 1993. Systkini Auðar eru; Kristján Bigir, fæddur 30. júní 1935, og Ása María, fædd 13. júlí 1945. Auður giftist hinn 17. febrúar 1957 eftirlifandi eiginmanni sínum Vilhelm Ingólfs- syni, f. 13. mars 1933 Börn Auðar og Vilhelms eru; 1) Dóra, f. 19. feb. 1958. Börn hennar eru; Vilhelm Gauti, Hákon og Auður Guðbjörg 2) Ingólfur, f. 19. júní 1961. Synir hans eru; Tryggvi og Sebastían Máni 3) Kristján Pétur, f. 8. sept 1969. Dætur hans eru; Katla og Glóey. Það er með trega i hjarta sem við í dag kveðjum kæra vinkonu, Guðmundu Auði Kristjánsdóttur, er fengið hef- ur hvíld frá erfiðum kafla ævi sinnar. Fráfall hennar vekur margar ljúfar minningar en samskiptin við hana spanna ríf- lega sjö áratugi. Rætur þeirra má rekja allt frá Melaskólanum og til Kvennaskólans í Reykja- vík. Við skólaútskrift úr Kvenna- skólanum vorið 1954 höfðu þeg- ar mótast sterk vináttubönd. Saumaklúbbur varð til sem styrkti og efldi vináttuna enn frekar. Árin liðu fljótt. Við tók lífsins gangur, haldið út á vinnumarkaðinn eða til frekara náms, hjónabönd og barneignir tóku við. Já, fyrr en varði hafði myndast stór vinahópur sem haldið hefur saman fram á þennan dag. Samveru- og gleði- stundir hafa verið margar sem og ferðalög, bæði innanlands og utan. Auður og Vilhelm, eig- inmaður hennar, voru traustir félagar í þessum hópi. Þau kynntust ung og saman hafa þau gengið veginn síðan. Komu sér upp hlýlegu og fallegu heimili, eignuðust þrjú börn og í tímans rás hefur afkomenda- hópur þeirra vaxið ört. Sum- arbústað áttu þau við Þing- vallavatn þar sem þau undu sér löngum. Auður var góðum kost- um búin. Gott var að vera í ná- vist hennar. Hún var fé- lagslynd, glöð í viðmóti, góðviljuð og trygglynd, orðvör og hreinskiptin en gat verð föst fyrir ef henni þótti svo þurfa. Samhliða heimilisstörfum stundaði Auður skrifstofustörf, lengst af hjá kvennadeild Reykjavíkurdeildar Rauða krossins. Þar ávann hún sér traust og virðingu sem starfs- maður og sjálfboðaliði og gegndi þar ýmsum trúnaðar- störfum. Á kveðjustundu þökkum við Auði gefandi samfylgd, vinátt- una og gleðistundirnar allar. Hugur okkar er hjá Vilhelm og börnum þeirra, Ingólfi, Dóru og Kristjáni, sem nú eiga um sárt að binda. Við sendum þeim hugheilar samúðarkveðjur sem og öllum öðrum ástvinum henn- ar. Megi minningar um góða konu veita birtu og yl. Blessuð sé minning Auðar. F.h. saumaklúbbsins og maka, Elín og Guðlaug. Elskuleg nafna mín og hjart- kær vinkona er fallin frá. Kynni okkar hófust í apríl 2007, er ég hóf störf hjá kvennadeild Reykjavíkurdeildar Rauða krossins. Auður var að fara á eftirlaun eftir afar farsælt starf sem skrifstofustjóri og ég var að taka við „búinu“. Hún tók mér af einstakri hlýju og kær- leika þannig að mér fannst ég hafa þekkt hana alla ævi. Að- alstarfið var bókhald, innkaup fyrir verslanir sem deildin rek- ur á sjúkrahúsunum, samskipti við sjálfboðaliða deildarinnar og skipulagning á viðburðum deildarinnar. Það var alveg meira en að segja það að feta eða reyna að feta í fótspor hennar og greini- lega mikil eftirsjá að henni. Það heyrði ég á þeim fjölmörgu að- ilum sem ég hafði samskipti við. En hún setti mig afar vel inn í starfið og ég gat alltaf hringt í hana og hún leysti öll mál af vandvirkni. Margir starfsmenn fyrirtækja sögðu við mig þegar ég hafði kynnt mig: „Þið eruð svo sniðug hjá Rauða krossinum að vera ekk- ert að skipta um nafn á starfs- mönnum!“ Til að aðgreina okk- ur var ein af okkar frábæru samstarfskonum með farsæla lausn á þessu og nafna mín var því kölluð Auður „fyrrverandi“. En þótt nafna mín væri hætt á launaskrá dró hún hvergi af sér í sjálfboðaliðastarfi fyrir deild- ina. Hún var í forsvari fyrir bókasafn á Sjúkrahóteli ásamt því að sinna öðrum tímafrekum nefndarstörfum. Hún var sann- arlega vakin og sofin yfir vel- ferð deildarinnar. Þá sat hún í stjórn deildarinnar um árabil. Auður var afar mikil fjöl- skyldukona og sinnti barna- börnum sínum af ást og alúð. Allt var fallegt í kringum hana og smekkvísi ráðandi. Mér er minnisstæð heimsókn til henn- ar og Villa í afar fallegan sum- arbústað sem þau áttu á Þing- völlum. Öllu svo vel fyrir komið og hlýlegt. Að lokum vil ég þakka elsku- legri nöfnu minni fyrir ómæld- an stuðning og elskusemi sem hún ætíð veitti mér. Þá votta ég fjölskyldu hennar innilega samúð. Takk fyrir allt elsku Auður mín. Þín Auður. Það er sorglegt að missa góða vini en slíkur er gangur lífsins þegar fólk er komið á efri ár. Vinátta okkar Auðar hófst fyrir um 60 árum síðan, þegar við fluttum inn í sama stiga- gang í Vesturbænum. Við Auð- ur, ásamt eiginmönnum okkar, og hjónunum Maggý og Björg- vini, vorum meðal barnafjöl- skyldna sem fluttu inn í ný- byggt fjölbýli við Kaplaskjólsveg árið 1962. Bundumst við fjölskyldurnar þrjár þá strax miklum vina- böndum. Öll vorum við á líkum aldri og það sama átti við um börn okkar. Stigagangurinn ið- aði af lífi enda var þar mikið af börnum á sama aldri. Eftir nokkur ár flutti hver fjölskylda um sig annað á höf- uðborgarsvæðinu en áfram hélst vináttan óbreytt. Sam- gangur var milli fjölskyldnanna þegar haldnar voru afmælis- veislur, fermingar eða aðrir stórir viðburðir. Síðustu 10-15 árin höfðum við það fyrir sið vinkonurnar, ég Auður og Maggý, að borða saman í hádeginu á veitinga- húsum. Helst aldrei sama veit- ingahúsinu, enda höfðum við þörf fyrir að kanna matar- menningu borgarinnar til hlít- ar. Því miður lést Maggý fyrir tveimur árum og ætluðum við Auður sannarlega að halda þessum sið áfram en það fór ekki eins og áætlað var. Ekki löngu eftir að Maggý féll frá veiktist Auður skyndi- lega og þurfti að dveljast var- anlega á sjúkrahúsi og hjúkr- unardeild. Síðast á hjúkrunarheimili Hrafnistu þar sem hún dvaldist í rúmt ár. Það var sorglegt að geta lítið heim- sótt hana vegna veirunnar vondu, en við ræddum saman í síma öðru hvoru síðustu miss- erin. Auður vinkona mín var glæsileg kona, vinaföst og trygglynd. Hún var mikill list- unnandi. Þau hjónin létu ófáar óperu- og leiksýningar fram hjá sér fara. Einnig var hún unn- andi góðra bóka. Um áravís sinnti hún sjálfboðastörfum hjá Rauða krossinum sem bóka- vörður. Við hjónin sendum okkar kæra vini Villa og fjölskyldu hans okkar innilegustu samúð- arkveðjur. Minning um góða vinkonu mun lifa. Guðbjörg Aradóttir. Í dag kveðjum við kæra vin- konu og samstarfskonu í félags- málanefnd Kvennadeildar Rauða krossins í Reykjavík. Það var ánægjulegt að vera þar sem Auður var með sinn smitandi hlátur, gleði og hlýju. Gott var að treysta á hana í fé- lagsmálanefndinni og var hún alltaf tilbúin að taka til hend- inni. Nú þegar komið er að kveðjustund langar okkur í nefndinni að þakka henni vin- áttu og tryggð um árabil. Það að vinna með góðu fólki að mik- ilvægum málefnum undir merki Rauða krossins, gefur starfinu mikið gildi. Þær stundir sem við áttum með Auði munu lifa í hjarta okkar. Við sendum eig- inmanni, börnum og fjölskyldu innilegar samúðarkveðjur og biðjum Guð að varðveita þau og styrkja í sorginni. Lifðu ljóss í heimi, Guði fal- in. Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinirnir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. Grátnir til grafar göngum vér nú héðan, fylgjum þér, vinur. Far vel á braut. Guð oss það gefi, glaðir vér megum þér síðar fylgja’ í friðarskaut. (Valdimar Briem) Jóhanna Jónsdóttir, Guðrún Jósafatsdóttir, Sigríður María Sigurjónsdóttir, Vala Rós Ingvarsdóttir. Guðmunda Auður Kristjánsdóttir Elsku amma. Þú áttir gott líf. Ég elskaði þig svo mik- ið. Ég veit að nú ferð þú á góðan stað til afa. Ég mun alltaf hugsa til þín. Þú gerðir allt fyrir mig. Ég veit þú vildir að ég héldi áfram með líf- ið. Þú fórst heldur snemma. Ég mun aldrei gleyma þér. Þú náðir Unnur Ágústsdóttir ✝ Unnur Ágústs- dóttir fæddist 11. júlí 1927. Hún lést 26. febrúar 2021. Útför Unnar var gerð 11. mars 2021. góðum aldri. Vildi að þú gætir verið hér en þú gerðir alla svo glaða í kringum þig. Við spjölluðum mikið saman. Ég veit að þetta var fyrir bestu en hugsaðu vel um Brynjar litla og afa. Þú munt alltaf vera í hjarta mínu. Við hlógum mikið saman elsku besta amma, langamma og allt. Þú fékkst að sjá börnin þín vaxa úr grasi og einnig litlu ömmubörnin þín. Ég mun aldrei gleyma þér. Þitt besta ömmubarn, Rakel Rán. Það var sannar- lega okkar net- kvenna auður að eiga Auði að vin- konu. Fyrirmynd okkar að reisn, gleði og gefandi samveru. Margt höfum við brall- að saman á langri ævi. Oft kom hún okkur á óvart með nýrri, frumlegri og gáfulegri nálgun á málefnin. Alltaf var spurt: „Kem- ur Auður ekki örugglega?“ Hún AuðurHalldórsdóttir ✝ Auður Hall- dórsdóttir fæddist 5. nóv- ember 1927. Hún lést 6. mars 2021. Útförin fór fram 15. mars 2021. lét enga ellikellingu stoppa sig, mætti á allflesta fundi og ferðir. Átti fasta miða í leikhúsunum, en þar hittumst við síðast 28 febrúar sl. og áttum saman skemmtilegt spjall. Síst hefði hvarflað að mér að fimm dög- um síðar yrði hún öll. Eitt er víst að við myndum fagna því að fá að eldast eins fallega og okkar elsk- aða Auður, sem verður sárt sakn- að úr okkar hópi. Sendi sonum Auðar og fjöl- skyldum samúðarkveðjur. Ína Gissurardóttir. Harpa Heimisdóttir s. 842 0204 Brynja Gunnarsdóttir s. 821 2045 Kirkjulundur 19 | 210 Garðabær s. 842 0204 | www.harpautfor.is Þökkum öllum þeim sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát eiginmanns, föður, tengdaföður, afa, langafa okkar og bróður, JÓNS BREIÐFJÖRÐS HÖSKULDSSONAR, Litlabæjarvör 15, Álftanesi. Sérstakar þakkir fær starfsfólk Vífilsstaða fyrir hlýja og einstaka umönnun. Elín Jóhannsdóttir Margrét Jónsdóttir Einar S. Helgason Kristinn G. Jónsson Teresita Jónsson Jóhann Jónsson Jóna Konráðsdóttir barnabörn og langafabörn Dagbjört Höskuldsdóttir Innilegar þakkir til þeirra fjölmörgu sem sýndu fjölskyldunni samúð, vinarhug og virðingu við andlát og útför okkar yndislega HELGA V. JÓNSSONAR, hæstaréttarlögmanns og lögg. endurskoðanda. Sérstakar þakkir viljum við færa því ágæta starfsfólki sem veitti honum kærleiksríka umönnun í Maríuhúsi, Landakoti og Sólteigi, Hrafnistu. Ingibjörg Jóhannsdóttir Hanna Lára Helgadóttir Jónas Reynisson Anna Dóra Helgadóttir Halldór Jónsson Jón Sigurður Helgason Erla Guðrún Emilsdóttir Halla María Helgadóttir Ólafur Þór Guðbjörnsson barnabörn og barnabarnabarn Við þökkum öllum sem sýndu okkur samúð, hlýju og vinarhug við fráfall og útför BJÖRNS KRISTINSSONAR Starfsfólki á 4. hæð Droplaugarstaða sendum við þakkir og kærar kveðjur. Guðrún Hallgrímsdóttir Elísabet og Ásta Kristinsdætur Inga, Ásta, Margrét, Helga, Jón, Hildur og Guðrún Björnsbörn og fjölskyldur Morgunblaðið birtir minn- ingargreinar endurgjalds- laust alla útgáfudaga. Óheimilt er að taka efni úr minningargreinum til birt- ingar í öðrum miðlum nema að fengnu samþykki. Skil | Þeir sem vilja senda Morg- unblaðinu greinar eru vinsam- lega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðs- lógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felli- glugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/ sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dög- um fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað get- ur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skilafrestur rennur út. Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri greinar eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda ör- stutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síð- una. Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem nánustu að- standendur senda inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hvenær sá sem fjallað er um fæddist, hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og klukkan hvað útförin fer fram. Þar mega einnig koma fram upplýsingar um foreldra, systkini, maka og börn. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í formálanum, sem er feitletraður, en ekki í minning- argreinunum. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.