Morgunblaðið - 25.03.2021, Page 24
24 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. MARS 2021
BÍLABÚÐ BENNA
KOLEFNISJAFNAR SSANGYONG benni.is
Bílasala Suðurnesja
Reykjanesbæ
Njarðarbraut 9
Sími: 420 3330
Ib bílar
Selfoss
Fossnes A
Sími: 480 8080
Bílaríkið
Akureyri
Lónsbakka
Sími: 461 3636
Bílabúð Benna
Reykjavík
Krókháls 9
Sími: 590 2020
B
ir
t
m
e
ð
fy
ri
rv
a
ra
u
m
t
e
x
t
a
-
o
g
m
y
n
d
a
b
re
n
g
l.
Elskar íslenskar aðstæður
Komdu og sjáðu Korando. Hér er á ferðinni
ótrúlega vel heppnaður sportjeppi sem er
eins og sérhannaður fyrir Ísland.
+ 163 hestöfl / 280 Nm
+ 2WD eða 4WD
+ Hægt að læsa millikassa í 4WD
Verð: 4.390.000 kr.
Fimm ára
ábyrgð
BAKSVIÐ
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Borgarráð hefur samþykkt leigu-
samning vegna húsnæðis fyrir leik-
skóla á jarðhæð fjölbýlishússins
Bríetartúns 11. Bríetartún 9-11 er 94
íbúða fjölbýlishús á sjö og tólf hæð-
um. Íbúðum hefur fjölgað á svæðinu
á undanförnum árum og telja borg-
aryfirvöld eðlilegt að leikskóli sé í
þessu hverfi borgarinnar. 60 börn
verða tekin inn í leikskólann. Skóla-
og frístundaráð samþykkti á fundi
sínum sl. þriðjudag að hefja form-
legan undirbúning að starfsemi skól-
ans.
Reykjavíkurborg rekur nú 63 leik-
skóla þar sem dvelja 5.395 börn. Að
auki eru 1.260 börn í sjálfstætt starf-
andi leikskólum í borginni. Það eru
engin nýmæli að leikskóli sé starf-
ræktur í fjölbýlishúsum upplýsir Sig-
rún Björnsdóttir, upplýsingafulltrúi
skóla- og frístundasviðs Reykjavík-
urborgar. Má til dæmis benda á leik-
skólann Klambra í stúdentagörðum
við Háteigsveg og leikskóla stúdenta
við Eggertsgötu á svæði Háskóla Ís-
lands. Þá mun ný leikskóli á Hall-
gerðargötu 1 á Kirkjusandi verða
með sama sniði. Algengast er þó að
leikskólarnir séu starfræktir í sér-
byggingum.
Fjölmargar ungbarnadeilir
Enginn svokallaður ungbarna-
leikskóli er rekinn af hálfu Reykja-
víkurborgar, en á þriðja tug leikskóla
er með svokallaðar ungbarnadeildir,
segir Sigrún. Leikskólinn í Bríetar-
túni verður fyrsti leikskóli borg-
arinnar sem alfarið er ætlaður ung-
um börnum. Dæmi eru hins vegar
um einkarekna ungbarnaleikskóla í
borginni. Börn, sem hefja dvöl á ung-
barnadeildum, geta hafið leikskóla-
dvöl allt frá 12-24 mánaða aldri og er
miðað við að þau flytjist á deild fyrir
eldri börn þriggja ára. Börn innritast
á ungbarnadeildir eftir kennitölu,
þau elstu fyrst, enda uppfylli þau ald-
ursviðmið.
Sigrún segir að ungbarnaleikskól-
inn við Bríetartún verði opnaður í lok
þessa árs í björtu og nútímalegu hús-
næði sem verður innréttað sérstak-
lega fyrir yngstu leikskólabörnin. Þá
verður annar leikskóli opnaður við
Kleppsveg og í Safamýri í byrjun
næsta árs, og sá fjórði á Kirkjusandi
um mitt næsta ár. Einnig stendur til
að stækka leikskólana Hof og Lauga-
sól í Laugardal og Kvistaborg í Foss-
vogi.
Jafnan er efnt til samkeppni um
nafn á leikskólum meðal barna, for-
eldra og starfsfólks. Væntanlega
verður það gert um leið og leikskól-
inn tekur til starfa, segir Sigrún.
Miðað við nafnahefð leikskóla í
borginni ætti nafnið Bríetarborg að
koma sterklega til greina.
Fram kemur í greinargerð fjár-
mála- og áhættustýringarsviðs-
Reykjavíkurborgar, sem lögð var
fram í borgarráði, að borgin hafi aug-
lýsti eftir húsnæði og lóð á leigu fyrir
leikskóla í lok október. Tvær um-
sóknir bárust og uppfyllti umsókn
Íþöku fasteignafélags ehf. skilyrði
auglýsingar en hin umsóknin ekki.
Gengið var til samninga við Íþöku og
var leigusamningur undirritaður
hinn 12. mars sl. með fyrirvara um
samþykki borgarráðs. Samkvæmt
honum skal Íþaka afhenda Reykja-
víkurborg fullbúið leikskólahúsnæði
með sérútbúnu afgirtu útileiksvæði
án lauss búnaðar hinn 1. nóvember
nk. Um er að ræða leigu á 676 fer-
metra húsnæði á 1. hæð. Leigusamn-
ingurinn er tímabundinn og gildir í
10 ár frá afhendingu húsnæðisins.
Reykjavíkurborg hefur þó forleigu-
rétt við lok leigutímans. Leigugjald
greiðist frá afhendingu húsnæðisins
og er það krónur 2.666.000 á mánuði.
Útileiksvæði verður útbúið
Að auki mun Íþaka útbúa 520-530
fermetra afgirt útileiksvæði áfast við
húsið sunnan- og austanvert. Einnig
mun leikskólinn hafa aðgang að 300
fermetra útileiksvæði hússins á þjón-
ustutíma leikskólans. Þá mun leik-
skólinn hafa aðgang að innisvæði
Höfðatorgs, þar sem útbúið verður
250 fermetra leiksvæði fyrir börn,
eigi síðar en 2023.
Leikskólinn verður í fjölbýlishúsi
- Fyrsti ungbarna-
leikskóli Reykjavík-
urborgar opnaður í
Bríetartúni 11
Morgunblaðið/sisi
Bríetartún Leikskólinn verður á jarðhæðinni og útileiksvæði þar fyrir framan. Þar verður tekið á móti 60 börnum á aldrinum frá 12 mánaða til þriggja ára.
Ljósmynd/Reykjavíkurborg