Morgunblaðið - 25.03.2021, Page 16
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. MARS 2021
Heimir Bergmann
Löggiltur fasteigna- og
skipasali og löggiltur
leigumiðlari.
Sími 630 9000
heimir@logheimili.is
Kristín
Skjaldardóttir
Löggiltur fasteignasali
Sími 824 4031
kristin@logheimili.is
Ásgeir þór
Ásgeirsson
Löggiltur fasteignasali og
lögfræðingur
Sími 772 0102
asgeir@logheimili.is
Guðmundur Ólafs
Kristjánsson
Löggiltur fasteigna-
og skipasali
Sími 847 0306
gudmundur@logheimili.is
Unnur Alexandra
Nemi til löggildingar
fasteignasala og
viðskiptalögfræðingur
Sími 788 8438
unnur@logheimili.is
Sólrún Aspar
Hefur lokið námi til
fasteignasala.
Sími 862 2531
solrun@logheimili.is
Jónas H. Jónasson
Nemi til löggildingar
fasteignasala
Sími 842 1520
jonas@logheimili.is
Skipholti 50d, 105 Reykjavík
Skólabraut 26, 300 Akranesi
530 9000 • www.logheimili.is
Ertu í sölu-
hugleiðingum?
Getum bætt
við eignum á
söluskrá
Fagmennska og traust
í meira en áratug
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Það hefur gengið mjög vel hjá okkur
og þótt við séum með gott úrval veit-
ingastaða hér finnum við að það er
hægt að bæta við,“ segir Sólveig And-
ersen, einn eigenda Mathallar Höfða.
Á næstunni verður ráðist í stækk-
un mathallarinnar. Tveir nýir mat-
sölustaðir munu bætast við þá átta
sem fyrir eru. Auk þess verður bætt
við lager, vörumóttöku og starfs-
mannaaðstöðu sem til þessa hefur
verið annars staðar á lóðinni. Til þess
að koma þessu fyrir tekur Mathöllin
yfir hluta þess rýmis sem heilsurækt-
in Sparta er með í dag.
Í vikunni fögnuðu Sólveig og fé-
lagar hennar því að tvö ár eru síðan
Mathöll Höfða var opnuð á Bílds-
höfða 9. Sólveig segir að vegna
ástandsins í þjóðfélaginu verði af-
mælisfögnuður að bíða betri tíma.
Hún segir að bjart sé þó fram undan í
rekstrinum og stækkunin sýni það.
„Hverfið er að fara að stækka mikið á
næstu árum og við teljum að þessi
stækkun muni halda okkur í foryst-
unni á þessu svæði með gott úrval
veitingastaða. Fyrirhuguð uppbygg-
ing í hverfinu gerir ráð fyrir álíka
mörgum íbúum og allur Grafarvogur
er í dag. Þetta ásamt borgarlínunni
sem kemur þarna rétt hjá gefur okk-
ur ástæðu til að stækka núna þegar
tækifæri gefst.“
Fjölbreytt úrval veitingastaða er í
Mathöll Höfða; Hipstur, Sætir snúð-
ar þar sem einnig eru seldar Maika’i-
skálar, Íslenska flatbakan, Culiacan,
Svangi Mangi, Wok on, Gastro Truck
og Indican. Sólveig segir að þegar
hafi verið gengið frá því að annar af
stöðunum sem bætast við verði nýr
og ferskur pastastaður en hinu rým-
inu hafi ekki verið ráðstafað. „Þessir
nýju staðir verða vonandi opnaðir í
byrjun maí,“ segir Sólveig og bendir
á að áhugasamir veitingamenn geti
sent umsókn á mathollhofda@mat-
hollhofda.is.
Morgunblaðið/Arnþór Birkisson
Vel sótt Mathöll Höfða hefur notið vinsælda á fyrstu tveimur starfsárunum.
Tveir nýir stað-
ir bætast við í
Mathöll Höfða
- Stækka til að mæta fjölgun í hverfinu
- Öðru plássinu þegar verið ráðstafað
Nýlega voru kynnt áform um að
breyta gamla Pósthúsinu í
miðbæ Reykjavíkur í mathöll.
Pósthús Mathöll verður opnuð í
lok árs gangi allt að óskum.
Sömuleiðis stendur til að hús-
næði Kaffis Reykjavíkur við
Vesturgötu verði mathöll. Þá á
ný mathöll að rísa í Borgartúni
og önnur í Hafnarfirði þar sem
Súfistinn hefur verið rekinn.
Í sumar stendur til að opna
mathöll með átta veitinga-
stöðum í endurreistu Mjólkur-
búi Flóamanna í miðbæ Selfoss.
Mathallir
spretta upp
VINSÆLT REKSTRARFORM
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
„Þetta er afskaplega þungbært í
þessu árferði,“ segir Hjörleifur
Björnsson, framkvæmdastjóri bíla-
leigunnar Icerrental 4x4 á Ásbrú í
Reykjanesbæ. Fyrirtæki hans hefur
ítrekað orðið fyrir miklu tjóni þegar
hvarfakútar hafa verið teknir undan
bílum þess. Nú síðast voru notaðar
öflugar vökvaklippur til að klippa
kútana undan nýjum bílum.
Nokkuð hefur verið um að hlutum
hafi verið stolið af bílaleigubílum á
geymslusvæðum á Suðurnesjum þar
sem stórir flotar standa og bíða betri
tíðar í ferðaþjónustunni. Í sumum
tilvikum hafa bílar nánast verið
strípaðir með því að tekin hafa verið
ljós, útvörp, felgur og jafnvel bíla-
tölvur.
Selja góðmálmana
Eitt stórtækasta innbrotið var á
Ásbrú í haust þegar hvarfakútar
voru teknir undan þrjátíu bíla-
leigubílum á svæði Icerrental 4x4.
Þjófarnir hafa ekki fundist, eftir
því sem næst verður komist. Hvarfa-
kútar eru mengunarvarnabúnaður
og í þeim eru nokkrar gerðir eðal-
málma sem talið er að þjófarnir hafi
tekið úr og komið í verð erlendis.
Hræ af kútum fundust síðar í fjöru á
Kjalarnesi og telur Hjörleifur víst að
þar á meðal hafi verið hlutir úr hans
bílum.
Bílaleigurnar reyna að verjast
þjófnaði af þessu tagi með ýmsum
hætti, girðingum, ljósum, mynda-
vélum og sum hafa samið við örygg-
isfyrirtæki eða starfsmenn um að
vakta svæðin.
Icerrental 4x4 varð fyrir því að
fyrir um þremur vikum komu þjófar
og klipptu hvarfakúta undan sautján
nýjum bílum. Bílunum hafði verið
lagt þétt saman til að síður væri
hægt að komast að þeim en þjófarnir
náðu aðallega að komast undir öft-
ustu röðina. Þeir voru með öflug og
dýr verkfæri, svokallaðar vökva-
klippur sem slökkvilið nota til að
klippa fólk út úr bílum eftir umferð-
arslys og einnig eru væntanlega til
hjá fyrirtækjum sem taka við bílum í
endurvinnslu.
Það er ekki aðeins að dýrir
hvarfakútar tapist heldur skemmist
pústkerfi bílanna og skynjarar.
Kostar hátt í hálfa milljón að koma
þessu í samt lag. Bílaleigan ber tjón-
ið ein og óstudd því tryggingar bæta
ekki slík tjón, auk þess sem sjálfs-
ábyrgð bílaleigubíla í kaskótrygg-
ingu er um hálf milljón.
Vandinn var nægur
Hjörleifur segir erfitt að lenda í
tjóni sem þessu í því ástandi sem
ríkir í ferðaþjónustunni. Fjárhags-
vandinn hafi verið nægur fyrir. Seg-
ir hann lítið upp úr því að hafa að til-
kynna þjófnaði til lögreglu, reynslan
sýni að hún hafi engan áhuga á þess-
um málum.
Haft var samband við nokkrar
aðrar bílaleigur á Suðurnesjum.
Sumir forsvarsmenn höfðu orðið fyr-
ir þjófnaði á hlutum úr bílum, en
ekki að undanförnu og ekki hafði
verið sóst sérstaklega eftir hvarfa-
kútum.
Morgunblaðið/Eggert
Bið Stórir flotar bílaleigubíla bíða verkefnalausir víða um Suðurnesin. Þjófar valda bílaleigunum miklu tjóni.
Tóku hvarfakúta und-
an með vökvaklippum
- Annar stórþjófnaðurinn frá sömu bílaleigunni