Morgunblaðið - 25.03.2021, Page 60

Morgunblaðið - 25.03.2021, Page 60
60 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. MARS 2021 www.danco.is Heildsöludreifing yrirtæki og verslanir Sumarleikföng í úrvali Kynntu þér úrval á vefverslun www.danco.is Spaðasett Frozen m/Bolta Spiderman m/Bolta Hlaupahjól EVO - Inline ABEC Plop up fidget ainbow Pop-Up tjald PAW PATROL og Unicorn 85x85x95cm - Hoppubolti Frozen II - 50 cm Plop up fidget Lyklakippur Boltar FROZEN - 60 mm Peppa Pig Eldhús m/áhöldum 66x80 cm Þ að er erfitt að gera sér grein fyrir því hvort bókin Klón sé tragedía eða kóm- edía og líklega situr hún beggja vegna borðsins. Umfjöll- unarefnið er óvenjulegt en raun- verulegt; klónun hundsins Sáms og afurðin: Sam- son. Um er að ræða eins konar ljóðsögu sem sækir innblástur sinn í ákvörðun forsetahjónanna fyrrverandi, Ólafs Ragnars Grímssonar og Dorrit Moussaieff, um að klóna ástkæran hund sinn. Áður en Samson varð til var Sámur það sem Samson átti að verða síðar en ekki strax. Það var ekki eftirspurn eftir Samsoni þá. Samson varð til vegna eftirspurnarinnar og vegna framboðsins. En þótt Samson, og tilkoma hans, sé aðalumfjöllunarefni bók- arinnar leitar höfundurinn, Ingólfur Eiríksson, einnig skilnings á klónun yfir höfuð. Höfundur varpar óbeint fram spurningum um hlutverk mannsins í sköpunarverkinu og heimild hans, eða skort á heimild, til endurlífgunar, ef svo má að orði komast. Í bókinni er litið bæði aftur á bak og áfram í tíma, hvað varðar stöðu klóna í þessum heimi. Í því skyni er einræktaða kindin Dollý nefnd og saga hennar sögð stutt- lega í sorglegu ljósi. Að auki nefnir höfundur súrrealistann Salvador Dalí til sögunnar og varpar ljósi á það hvernig hann var, að mati höf- undar, óbeint klónaður með því að vera nefndur í höfuðið á látnum bróður sínum. Ef Salvador hefði ekki dáið þá hefði Salvador aldrei orðið Salvador En til þess að hann yrði Dalí var nauðsynlegt fyrir hann að vera Salvador fyrst. Það er kannski súrrealískt? Þessi túlkun höfundar á klónun Salvadors er vel rökstudd og raun- ar mjög framúrstefnuleg. Með henni tengjast þeir Samson sterk- um böndum, tvær eftirmyndir í heimi fullum af frummyndum. Einnig dregur samlíkingin fram þann súrrealisma sem felst í klón- un, en höfundur telur einmitt að meint klónun Salvadors hafi skapað súrrealismann. Salvador vildi vera barn En foreldrar hans neyddu hann til að vera Salvador. Þannig varð súrrealisminn til. Á sama tíma og samlíkingin er sorgleg er hún einnig býsna fyndin. Hið sama má segja um mörg ljóð bókarinnar, lesandinn veit ekki hvort hann á að hlæja eða gráta, þegar það væri líklega best fyrir hann að gera hvort tveggja. Myndskreytingar Elínar Eddu gæða bókina enn meira lífi og er túlkun hennar á Samsoni, sem lítur samtímis til framtíðar og fortíðar, eftirtektarverð. Samson lítur út fyrir að bera á herðum sér bæði fortíð Sáms og framtíð sín sjálfs. Þá virðist ásjóna hans fela í sér ljóð Ingólfs um Samson og þannig tengjast myndirnar og textinn sterkum böndum. Eins og áður segir vinnur ljóð- sagan einungis með eitt þema; klónun, og þótt af nægu sé að taka í þeim efnum verður sagan eilítið endurtekningasöm. Það er synd þar sem hæfileiki höfundar til að hrinda af stað nýjum vangaveltum er augljóslega fyrir hendi. Þetta dregur bókina þó ekki mikið niður og má jafnvel segja að frumlegheit og hnyttni nái nánast að breiða yfir endurtekningarnar. Heilt yfir er ljóðsagan, eða eftir- myndasagan, Klón frumlegt, ferskt og framúrstefnulegt eintak sem áhugafólk um íslenskar bókmenntir ætti ekki að láta fram hjá sér fara. Höfundarnir Klón eftir Ingólf Eiríksson og Elínu Eddu er sögð frumleg, fersk og framúrstefnuleg bók sem fólk ætti ekki að láta fram hjá sér fara. Að klóna, eða klóna ekki Ljóð Klón bbbbn Eftir Ingólf Eiríksson og Elínu Eddu. Mál og menning, 2021. Kilja, 80 bls. RAGNHILDUR ÞRASTARDÓTTIR BÆKUR Heimildamyndin Hækkum rána í leikstjórn Guðjóns Ragnarssonar hefur verið valin til þátttöku á heimilda- myndahátíðinni HotDocs sem haldin er í Toronto. Há- tíðin er ein stærsta sinnar tegundar í heiminum. Hækkum rána er ein finn mynda sem valdar eru inn í skóladagskrá hátíðarinnar, „Docs for Schools“, og verður hún því aðgengileg öllum grunnskólabörnum á aldrinum 13-18 ára í Kanada ásamt vönduðu kennslu- efni sem hefur verið útbúið. Heimildamyndin fjallar um réttindabaráttu 8-13 ára stúlkna sem vilja breyta viðmiðum í kvennakörfubolta á Íslandi. Þær eru þjálfaðar af óvenjulegum þjálfara, Brynjari Karli Sigurðssyni, sem hækkar í sífellu rána. Hefur myndin vakið athygli og umtal hér. Hækkum rána á hátíð í Kanada Atriði úr myndinni Hækkum rána. Þýski myndlistarmaðurinn Andr- eas Gursky kynnti í gær fyrir blaðamönnum viðamikla yfirlits- sýninguna á verkum hans sem verð- ur opnuð í dag í listasafninu Mus- eum der bildenden Künste í Leipzig. Gursky, sem fæddist árið 1956, er einn þekktasti myndlistar- maður samtímans, víðkunnur fyrir flennistór ljósmyndaverk sem hann fellir iðulega saman úr fjölmörgum myndrömmum. Meðal verka á sýn- ingunni er „Rhein II“ en fyrir tíu árum var eintak af verkinu, 360 cm breitt prent, selt á uppboði fyrir 4,3 milljónir dala sem var hæsta verð sem nokkru sinni hafði verið greitt fyrir ljósmyndaverk. Á sýningunni í Leipzig eru yfir 200 verka Gurskys frá öllum ferli hans en öll tengjast þau á einn eða annan hátt félagslegu athæfi manna, í viðskiptum, við vinnu, í leyfum eða til að mynda á fjár- málamörkuðum eða við bygging- arframkvæmdir. Verk hans þykja einstaklega hrífandi á formrænan hátt og iðulega afhjúpa hinn mann- gerða heim á upplýsandi hátt. AFP Dáður Listamaðurinn Andreas Gursky með nokkrum verkanna á sýningunni í Leipzig. Til hægri er „Rhein II“ sem fyrir tíu árum varð dýrasta ljósmyndaverk sögunnar þegar það var selt fyrir 4,3 milljónir dala á uppboði. Úrval verka Gurskys Viðskipti Blaðamaður rýnir í ljósmyndaverkið „Amazon“ (2016).

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.