Morgunblaðið - 25.03.2021, Qupperneq 34

Morgunblaðið - 25.03.2021, Qupperneq 34
34 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. MARS 2021 Frá tilnefningarnefnd vegna aðalfundar Haga hf. 2021 Aðalfundur Haga hf., kt. 670203-2120, verður haldinn fimmtudaginn 3. júní 2021. Þeim hluthöfum sem vilja eiga fund með tilnefningarnefnd eða koma skilaboðum á framfæri við nefndina í aðdraganda aðalfundar 2021 er bent á að hafa samband við tilnefningarnefnd eigi síðar en 14. apríl nk. á netfangið tilnefningarnefnd@hagar.is. Þeim sem vilja gefa kost á sér til setu í stjórn Haga hf. er bent á að tilkynna það skriflega til tilnefningarnefndar Haga hf. eigi síðar en 23. apríl 2021 á netfangið tilnefningarnefnd@hagar.is. Nauðsynlegt er að frambjóðendur notist við framboðseyðublað sem finna má á vefsíðu Haga en þar þarf meðal annars að upplýsa um bakgrunn og hæfi frambjóðanda, auk þess að gera grein fyrir hvernig fram- bjóðandi uppfyllir skilyrði sáttar Haga hf. við Samkeppniseftirlitið frá september 2018. Framboðseyðublað og nánari upplýsingar um viðmið tilnefningar- nefndar við mat á frambjóðendum má finna á vefsíðu Haga hf., www.hagar.is/fjarfestaupplysingar/adalfundur. Tillögur tilnefningarnefndar um frambjóðendur til stjórnar verða tilkynntar þann 12. maí nk. Tilnefningarnefnd Haga hf. 25. mars 2021 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 124.81 Sterlingspund 172.04 Kanadadalur 99.25 Dönsk króna 19.944 Norsk króna 14.57 Sænsk króna 14.566 Svissn. franki 134.02 Japanskt jen 1.1497 SDR 178.02 Evra 148.3 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 183.8691 Hrávöruverð Gull 1739.25 ($/únsa) Ál 2205.0 ($/tonn) LME Hráolía 64.3 ($/fatið) Brent « Úrvalsvísitala aðallista Kauphallar Ís- lands lækkaði um 0,68% í gær. Mest lækkuðu bréf Icelandair eða um 6,47% í 305 milljóna króna viðskiptum. Verð á hlutabréfum félagsins er nú 1,3 krónur á hvern hlut. Næstmesta lækkunin í gær varð á bréfum fasteignafélagsins Reita, en þau lækkuðu um 3,58% í 147 milljóna króna viðskiptum. Þá lækkuðu bréf Arion banka um 2,56% í 1.121 m.kr. viðskiptum. Mesta hækkun á markaðnum í gær varð á bréfum Haga, en þau hækkuðu um 1,04% í 100 m.kr. viðskiptum. Úrvalsvísitalan lækkaði um 0,68% í gær STUTT eigu Mjólkursamsölunnar, Kaup- félags Skagfirðinga og ÍSAM. Jón Viðar Stefánsson rekstrar- stjóri þjónustustöðva N1 segir að- spurður í samtali við Morgunblaðið að Festi ætli að opna staði úti á landsbyggðinni í sumar, en enginn Ísey-skyrbar er utan höfuðborg- arsvæðisins í dag. Horft sé til Suð- urlands og Vesturlands og að tengja reksturinn við þjónustunet félagsins. „Það eru klárlega sóknarfæri úti á landi fyrir Ísey-skyrbar og við viljum vera tilbúin þegar ferða- mennirnir fara að koma aftur. Þeir hafa tekið vel í íslenska skyrið,“ segir Jón Viðar. „Við erum að svara kalli markaðarins um hollari og ferskari valkosti í skyndibita.“ Hefur gengið mjög vel Jón Viðar segir að Ísey-skyrbar hafi gengið mjög vel síðan N1 fékk BAKSVIÐ Þóroddur Bjarnason tobj@mbl.is Í dag opnar Festi nýjan Ísey-skyr- bar við hliðina á bensínstöð N1 á Reykjavíkurvegi, þar sem áður var samlokustaðurinn Subway. Staður- inn verður áttundi Ísey-skyrbarinn á höfuðborgar- svæðinu og sá fimmti sem N1 sér um rekstur á. Hinir þrír staðirnir eru í verslunum Hagkaups í Skeifunni, Smáralind og Kringlunni. Rekstur þeirra er í höndum fyrrverandi sérleyfishafa Ísey- skyrbars, Skyrboozt ehf., félags sem meðal annars er í eigu Krist- ins Sigurjónssonar og fleiri aðila. Keyptu síðasta sumar Eins og fram kom í Morgun- blaðinu á sínum tíma festi N1 kaup á Ísey-skyrbörum á N1-stöðvunum á Ártúnshöfða, við Hringbraut, í Borgartúni og í Fossvogi síðasta sumar. Vörumerkið Ísey Skyr er í sérleyfið í hendur á síðasta ári. „Þetta er liður í okkar stefnu að vera með meira af hollum kostum og bjóða meira úrval fyrir græn- kera. Það er mjög mikil þróun á þessum markaði.“ Hann segir að N1 haldi áfram að selja annan skyndibita, eins og vin- sælustu köldu samlokuna á stöðv- unum, samloku með roastbeef. Hér sé einungis um viðbót að ræða. „Með því að bjóða þessar vörur fáum við til ookkar nýjan hóp sem var kannski ekki hjá okkur áður.“ Spurður um vinsælustu Ísey- skyrbarsstaðina segir Jón Viðar að mestur vöxtur sé hjá Ísey-skyrbar í Fossvogi. „Þar afgreiðum við í gegnum lúgu. Við opnuðum tveim- ur til þremur vikum eftir að samkomubann var sett á vorið 2020 og staðurinn hefur verið á miklu flugi síðan. Fólk sækir í snertilaus viðskipti vegna veirunn- ar. Staðurinn á Reykjavíkurvegi verður einnig með lúgu og við bindum miklar vonir við þá stað- setningu.“ Þúsund og ein nótt og hind- berja- og hnetusmjörsskálar Hvað vinsæla rétti varðar segir Jón Viðar að skyrskálarnar séu vinsælastar, en einnig er boðið upp á hristing og safa. „Langvinsæl- ustu skálarnar eru Þúsund og ein nótt og hindberja- og hnetusmjörs- skál.“ Biðraðir eiga það til að myndast við Ísey-skyrbarsstaðina og segir Jón Viðar að á því sé einföld skýr- ing. „Eðli vörunnar er þannig að hún afhendist fersk og það þarf alltaf að gera hana frá grunni fyrir hvern og einn viðskiptavin. Það er alltaf tímafrekara en að afgreiða vörur beint úr hillunni.“ Opna áttunda Ísey-skyrbarinn Morgunblaðið/Arnþór Birkisson Lúga Nýi Ísey-skyrbarinn við þjón- ustustöð N1 á Reykjavíkurvegi. - Stefna að nýjum stöðum á Suður- og Vesturlandi í sumar - Skyrskálarnar vinsælastar Jón Viðar Stefánsson Hagnaður af rekstri fjármálafyrir- tækisins Landsbréfa nam 768 millj- ónum króna eftir skatta á árinu 2020. Það er 36% lækkun hagnaðar milli ára, en hagnaður félagsins nam 489 milljónum króna árið 2019. Þetta kemur fram á heimasíðu Lands- bankans sem á 99,99% í fyrirtækinu á móti Bláma fjárfestingarfélagi sem á 0,01%. Eignir Landsbréfa jukust um 18% á milli ára. Þær voru 5,6 milljarðar króna í lok árs 2020 en 4,7 milljarðar í lok árs 2019. Eigið fé félagsins er rúmir fimm milljarðar króna og eig- infjárhlutfall var 91,47% í lok árs 2020. Hreinar rekstrartekjur Lands- bréfa námu 2,3 milljörðum króna á árinu samanborið við 1,7 milljarða árið 2019. Í lok tímabilsins voru eign- ir í sjóðastýringu rúmir 210 milljarð- ar króna samanborið við 180 millj- arða króna árið áður. Reksturinn gekk vel Helgi Þór Arason, framkvæmda- stjóri Landsbréfa, segir á heimasíð- unni að þrátt fyrir að veirufaraldur- inn hafi að mörgu leyti sett svip sinn á árið 2020 hafi rekstur Landsbréfa gengið vel á árinu. „Sjóðir Lands- bréfa skiluðu almennt góðri ávöxtun. Þessi velgengni endurspeglast öðr- um þræði í því að stöðugt fjölgar ein- staklingum og lögaðilum sem treysta Landsbréfum best fyrir fjármunum sínum,“ segir Helgi Þór Arason. Morgunblaðið/Kristinn Hagnaður Landsbréf eru í eigu Landsbankans. Hagnaður Lands- bréfa 768 m.kr. - Eiginfjárhlutfall er 91,47%
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.