Morgunblaðið - 25.03.2021, Side 44
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. MARS 2021
Verð: 27.995.-
Stærðir: 39 - 46
Vnr. E-83642401001
Verð: 27.995.-
Stærðir: 39 - 48
Vnr. E-83642401053
Verð: 19.995.-
Stærðir: 41 - 46
Vnr. E-83725402112
Verð: 21.995.-
Stærðir: 40 - 48
Vnr. E-83739401001
KRINGLAN - SMÁRALIND - SKÓR.IS
ECCO ST.1
LÉTTIR, STERKIR OG ÞÆGILEGIR HERRASKÓR
Sjálf segir Berglind að hún hafi lengi ætlað að prófa að gera gra-
nóla heima en einhverra hluta vegna ekki látið verða af því fyrr
en nú. „Núna skil ég auðvitað ekki af hverju, því þetta er svo
brjálæðislega gott að ég get ekki beðið eftir því að fara niður á
morgnana og fá mér skál með AB-mjólk og þessu granóla,“ segir
Berglind og ekki annað að sjá en granólað hafi heppnast full-
komlega.
Heimagert granóla
2 þroskaðir bananar
3 msk. hlynsíróp
2 msk. brædd kókosolía
1 tsk. vanilludropar
450 g Til hamingju-tröllahafrar
40 g Til hamingju-kókosflögur
60 g Til hamingju-pekanhnetur (saxaðar gróft)
60 g Til hamingju-heslihnetur heilar
1 tsk. kanill
½ tsk. sjávarsalt
50 g 70% súkkulaði
Aðferð: Hitið ofninn í 175°C.
Setjið banana, síróp, olíu og vanilludropa í blandarann og
blandið í mauk.
Hrærið öllum öðrum hráefnum nema súkkulaðinu saman í
stóra skál.
Hellið bananamaukinu yfir og blandið vel saman.
Skiptið niður á tvær bökunarplötur, íklæddar bökunarpappír,
og dreifið vel úr.
Bakið í um 35 mínútur en hrærið í blöndunni 4-5 sinnum á
tímabilinu.
Kælið alveg og saxið þá súkkulaðið niður og blandið saman við.
Heimagert
granóla
Það er auðveldara en margur heldur að
búa til granóla heima en gott granóla
byggist á vandlega samansettri blöndu af
höfrum og öðru fíneríi. Nauðsynlegt er að
sætan sé góð – og náttúruleg svo að hita-
einingafjöldinn fari ekki fram úr hófi. Hér
er uppskrift úr smiðju Berglindar Hreið-
arsdóttur á Gotteri.is sem hittir í mark.
Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir
Vinsælasta pítsa á mat-
seðli Domino’s er Meat
and Cheese-pítsan og
hefur hún verið það
síðan hún var fyrst sett
á matseðilinn fyrir 11
árum. Nú verður hægt
að fá Meat and Cheese-
meðlæti sem er að upp-
lagi það sama og píts-
an. Meat and Cheese-
gott er nýbakað mjúkt
pítsudeig toppað með
osti, sterku pepperoni,
piparosti, beikonkurli
og svörtum pipar.
Nýtt meðlæti hjá Domino’s
Vinsælust Meat and Cheese-pítsan hjá Dominós er
sú vinsælasta og nú er komið samnefnt meðlæti.
Múmínaðdáendur hérlendis bíða
spenntir ár hvert fyrir nýj-
ungum ársins og nú hefur því
verið ljóstrað upp að sumarlínan
í ár beri heitið Together.
Vörur úr línunni koma í versl-
anir hérlendis hinn 25. maí en
vörulínan inniheldur krús, disk
og tvær skeiðar og kemur, líkt
og vanalega, í takmörkuðu upp-
lagi.
Sumarævintýri Múmínálfanna
á ströndinni heldur áfram, en
myndefni bollans byggist á sög-
unni Moomin on the Riviera eftir
Tove Jansson.
Samvera í sumarlínu Moomin
Eftirvænting Aðdáendur Moomin bíða spenntir eftir sumarlínunni.