Morgunblaðið - 25.03.2021, Side 48

Morgunblaðið - 25.03.2021, Side 48
48 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. MARS 2021 ✝ Fanney Ófeigs- dóttir fæddist í Reykjavík 2. ágúst 1920. Hún lést á hjúkrunarheim- ilinu Seltjörn á Sel- tjarnarnesi 16. mars 2021. Foreldrar henn- ar voru Sigurveig Jónsdóttir hús- móðir, fædd 22. júlí 1896, og Ófeigur Eyjólfsson sjómaður, f. 8. sept- ember 1899. Hálfsystir hennar var Edda Ófeigsdóttir. Fanney giftist 10. júní 1943 Geirmundi Sigurðssyni, renni- smið frá Eyrarbakka, f. 22. sept- börn Fanneyjar og Geirmundar eru 32 og barnabarnabörn eru 64 og barnabarnabarnabarn er eitt. Þau hjónin hófu búskap á Klapparstíg en bjuggu lengst af á Nesvegi 68 í Reykjavík. Þar bjuggu þau í tæpa hálfa öld, en fluttu á Austurströnd á Seltjarn- arnesi árið 1997. Fanney hélt heimili þar til fyrir tveimur ár- um er hún flutti á Hjúkr- unarheimilið Seltjörn. Fanney ólst upp í Reykjavík. Hún fór í Kvennaskólann og lærði síðar hattasaum í Iðnskól- anum í Reykjavík og lauk sveinsprófi í þeirri grein. Hún var heimavinnandi til ársins 1970 er hún hóf störf í mötu- neyti Borgarspítalans og starf- aði þar til hún var 68 ára gömul eða í 18 ár. Útför Fanneyjar fer fram frá Seltjarnarneskirkju í dag, 25. mars 2021, kl. 13. ember 1918, d. 6. október 2005. Þau eignuðust sjö börn sem eru: Ófeigur, f. 1943, maki Anna M. Ög- mundsdóttir, f. 1944, Baldur, f. 1945, maki Anne B. Hansen, f. 1958, Birna, f. 1946, maki Ólafur Þ. Bjarna- son, f. 1943, Sig- urður, f. 1948, Sverrir, f. 1952, maki Arndís S. Jósefsdóttir, f. 1958, Geirmundur, f. 1955, maki Jóna Stefánsdóttir, f. 1956, og Haukur, f. 1959, maki Guðrún B. Vilhjálmsdóttir, f. 1958. Barna- Langri ævi er lokið. Fanney Ófeigsdóttir, tengdamóðir okk- ar, hefur kvatt þetta líf, rúm- lega 100 ára. Hún kveið því ekki, heldur var hún sátt við sitt og tilbúin í það sem tæki við, enda mikill dugnaðarfork- ur. Nú er hún búin að hitta Geira sinn á ný, sem hún hefur saknað í mörg ár. Við ferðalok langar okkur, tengdabörn Fanneyjar, að minnast einstakrar konu, en mikinn lærdóm má draga af hennar lífshlaupi. Hún tók okk- ur öllum opnum örmum og reyndist okkur alltaf svo vel. Fanney var svo ljúf og hlý og mikil fjölskyldukona. Afkom- endur Fanneyjar telja 104 og stórfjölskyldan 147. Hún setti fjölskylduna alltaf í fyrsta sæti og var alltaf til staðar fyrir fólkið sitt, og ávallt boðin og búin að rétta fram hjálparhönd í hverju sem var. Fanney fylgd- ist með öllu fólkinu sínu af miklum áhuga fram á síðasta dag, hvort sem það var í námi, starfi eða hverju sem það tók sér fyrir hendur. Hún var einn- ig eldklár, fylgdist vel með tíð- arandanum, las blöðin, sér í lagi Moggann, tók eftir öllu sem fór fram í þjóðfélaginu og hafði skoðanir þar á. Það verður tómlegt að geta ekki hitt okkar yndislegu tengdamóður og spjallað um gamla og nýja tíma. Hún skilur eftir sig margar fallegar og góðar minningar sem sitja í hjarta okkar og munu ylja okk- ur um ókomna tíð. Elsku Fanney, við kveðjum þig með miklu þakklæti fyrir allar góðu stundirnar sem við höfum átt saman í gegnum tíð- ina, kærleikann og hlýjuna sem þú hefur veitt okkur öllum. Þín tengdabörn, Anna Margrét, Anne Biehl, Arndís, Guðrún Brynja, Jóna og Ólafur. Í dag kveðjum við ömmu okkar. Við eigum margar skemmti- legar minningar af heimsóknum okkar til þín og afa, en til ykkar var alltaf gott að koma. Reisn og virðing eru orð sem lýsa ömmu vel og alltaf var hún tilbúin að gefa okkur knús. Við erum þakklátar fyrir öll árin sem við fengum með þér elsku amma. Þín verður sárt saknað. Við viljum kveðja þig með þessu ljóði: Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (Valdimar Briem) Anna Fanney, Íris, Sólveig og Ólöf. Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinirnir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Héðan skal halda heimili sitt kveður heimilisprýðin í hinsta sinn. Síðasta sinni sárt er að skilja, en heimvon góð í himininn. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. Grátnir til grafar göngum vér nú héðan, fylgjum þér, vinur. Far vel á braut. Guð oss það gefi, glaðir vér megum þér síðar fylgja’ í friðarskaut. (Valdimar Briem) Takk fyrir allt elsku amma. Bryndís, Hanna Birna og Stefán Snær. Elsku amma mín, nú er kom- ið að kveðjustund. Þótt ég kveðji þig með miklum söknuði þá er þakklæti fyrir heimsins bestu ömmu og vinkonu mér efst í huga. Þú hefur alltaf verið til staðar fyrir mig og verið mér svo kær. Nærvera þín var ein- stök og ég naut þess alltaf að vera í kringum þig. Þú fylgdist áhugasöm með öllu því sem ég tók mér fyrir hendur, hvort sem það var í námi, vinnu, íþróttum eða einhverju öðru. Þú beiðst alltaf frétta þegar eitthvað var um að vera og varst ein af þeim fyrstu að fá símtal. Við systkinin vorum heppin að búa nálægt ykkur afa og heimsóknir til ykkar voru hluti af daglegu lífi. Það var gott að stoppa við hjá ykkur eftir skóla, fá sér snarl og taka einn Ólsen. Þið afi sátuð líka oft úti á svöl- um á Austurströndinni og ég gat veifað ykkur úr frímínútum. Við höfum eytt ansi mörgum stundum saman síðustu ár og varla liðið vika án þess að við hittumst eða heyrðumst. Nota- legar stundir á Austurströnd- inni og síðar á Seltjörn. Það var alltaf svo gaman að koma til þín, þú varst alltaf svo glöð og þakklát. Þú sagðir manni fréttir af öllu fólkinu þínu, ásamt því að rifja upp gamla tíma og hvernig lífið var í gamla daga. Ég fékk til dæmis aldrei nóg af því að heyra söguna af ferðinni þinni heim með Gullfossi frá Danmörku í seinni heimsstyrj- öldinni. Þú vildir aldrei að mað- ur hefði nokkuð fyrir þér og sagðir alltaf „bara þegar þú mátt vera að“. Þú hafðir svo gaman af því að hafa þig til og varst alltaf svo glæsileg. Rúllur í hárið, perlufesti og naglalakk var eins og þú vildir hafa það. Með aldr- inum gafstu það ekkert eftir og varst glæsileg fram á síðasta dag. Þér fannst svo spennandi þegar ég fór að fljúga fyrir Ice- landair. Þú vildir alltaf vita hvert ég var að fara og hvenær ég kæmi heim, og mundir það yfirleitt betur en ég. Þú hafðir svo gaman af því þegar ég kom við hjá þér fyrir flug í bún- ingnum, eins og þú kallaðir hann. Hattinum veittir þú svo alltaf sérstaka athygli, enda lærður hattasaumari. Svo varstu alltaf jafn hissa á hvern- ig hægt væri að fljúga til Evr- ópu og aftur heim á einum degi, og drekka síðan kaffi með þér seinni partinn. Þér leist ekki alveg á blikuna þegar ég byrjaði í kraftlyfting- um. Þér fannst ekki alveg passa að ung kona eins og ég færi að lyfta lóðum. Þú sást fyrir þér að ég fengi allt of stóra vöðva of fannst erfitt að hugsa til þess að ég lægi undir þungri stöng, en þrátt fyrir það fylgdistu stolt með hverju skrefi, en sagðir stundum: „Fanney, er þetta ekki komið gott“. Ég hringdi svo alltaf til þín þegar ég hafði lokið keppni og þá spurðir þú alltaf með eftirvænt- ingu „var bæting?“ Amma, þú kenndir okkur svo margt og þú lifir áfram í okkur öllum. Ég kveð þig með hlýju í hjarta yfir öllum fallegu minn- ingunum sem ég á, en líka því ég veit að þú varst sátt við allt þitt og tilbúin að kveðja. Ég veit að þú heldur áfram að fylgjast með okkur og svo hitt- umst við aftur seinna í sum- arlandinu. Elsku amma, takk fyrir allt! Þín Fanney Hauksdóttir. „Myndir þú svo vilja setja á mig smá lit, nei, bara þegar þú hefur tíma,“ sagði amma mín reglulega við mig í seinni tíð okkar saman. Amma gaf öllum sitt hlutverk, jafn misjöfn og þau voru mörg. Mitt hlutverk síðastliðin ár var meðal annars að lita á henni augabrúnirnar. Á sama tíma var hún með ann- an fjölskyldumeðlim sem trekkti stofuklukkuna, annar lagaði á henni hárið, hinn lakk- aði á henni neglurnar, næsti passaði upp á að alltaf væri til eitthvert gotterí í skápum á meðan þar næsti sá til þess að gotteríið var borðað. Amma mín var engri lík. Hún var við stjórn á flestu í kringum sig án þess að maður tæki sér- staklega eftir því. Hún var reglusöm og tilfinninganæm, og það hugulsöm að hún vissi í smáatriðum hvað gekk á í lífi allra afkomenda sinna. Eflaust hafa þessir eiginleik- ar í fari hennar mótast snemma og þá í kjölfar þess að koma upp sjö börnum og einum eig- inmanni. Eins og sjá má á þeim hlut- verkum sem hún meðal annars útdeildi þá var það henni afar mikilvægt að vera ávallt vel til höfð, vani sem hún tileinkaði sér alveg upp á síðasta dag. Enda væri synd ef svo glæsileg kona hefði ekki undirstrikað það sem hún þegar hafði. Ömmu var líka mikið um að hennar fólki vegnaði vel í lífinu og helst vildi hún að farið væri eftir hefðbundnum leiðum. Hún var því heldur betur óhress með mig þegar ég var kær- astalaus um nokkurra ára skeið og hamaðist í mér með hvort ég ætlaði nú ekki að fara að finna mér einhvern „vin“. Eftir að hafa rökrætt hlutina fram og til baka gerðum við samkomulag um að ég myndi í hið minnsta finna mér slíkan vin og eignast með honum fyrsta barn áður en hún yfirgæfi þessa jörð. Hvort þetta samkomulag okkar skák- aði örlögunum eða ekki þá náð- um við allavegana að standa við það, og er ég svo afskaplega þakklát fyrir að Jakob minn hafi fengið að eiga með þér stund. Líkt áliti hennar á vinaleysi mínu var amma lítið hrifin af þeirri ákvörðun minni um árið að fara á flakk um heiminn. Á endanum sætti hún sig þó við hlutina þegar ég fullvissaði hana um að ég myndi sækja mér frekari menntun í leiðinni og að heimferðirnar yrðu reglu- legar. Í hvert skipti sem ég yfirgaf landið eftir slíka heimsókn var alltaf jafn erfitt að kveðja ömmu, því hún kvaddi mig allt- af eins og það væri okkar síð- asta stund saman. Í síðustu heimsókn minni var þar engin undantekning á, nema ég trúði því af öllu hjarta að stundirnar yrðu fleiri. Ég get hins vegar ekki verið neitt annað en þakk- lát fyrir allar þær yndislegu minningar sem eftir standa, það er sérstaklega dýrmætt að geta gripið í þær til að fylla upp í tómarúmið sem þú skilur eftir þig, elsku amma mín. Ég veit að afi hefur tekið vel á móti þér og ef til vill hverfið þið saman aftur til tíma þar sem við stórfjölskyldan sitjum saman í sólríku veðri á svöl- unum á Nesveginum. Ég elska þig amma mín, þín Harpa. Þegar elsku amma Fanney er fallin frá er gott að eiga góð- ar minningar. Hún amma Fanney var ein- stök. Hún var ljúf og góð og mikil fjölskyldukona. Hún var ávallt til staðar fyrir okkur og gott var að leita til hennar til að fá huggun eða góð ráð í erfiðum aðstæðum. Amma stóð alltaf þétt við bakið á okkur og hvatti okkur áfram, í hennar augum gátum við hreinlega ekki gert neitt rangt. Amma var fróðleiksfús og fylgdist ávallt vel með fréttum líðandi stundar og las morg- unblaðið spjaldanna á milli alla tíð. Einnig fylgdist hún vel með öllum afkomendum sínum og alltaf var hægt að treysta á að fá fréttir af stórfjölskyldunni hjá henni. Amma Fanney hefur alla tíð verið mikilvægur hluti af lífi okkar. Við vorum svo heppin að alast upp í næsta nágrenni við ömmu afa á Nesinu og höfum alla tíð verið mikið hjá þeim. Við eigum margar góðar minn- ingar af Nesveginum, Austur- ströndinni og svo seinna Sel- tjörn. Þar má nefna hádegismat á Nesveginum á sunnudögum þar sem hlustað var á messuna og svo boðið upp á lambakjöt með brúnni sósu og rabarbar- asultu og ís með ískexi í eft- irrétt. Jóladagur á Nesveginum er eftirminnilegur þar sem öll- um börnum og barnabörnum var boðið í tilheyrandi kræs- ingar og skemmtun fyrir okkur krakkana. Einnig gamlárs- kvöld, þar sem við krakkarnir fengum að leika okkur úti fram- eftir kvöldi. Minnisstæðar eru næturgistingar í brakandi silkidamaski þar sem við feng- um að sofa á milli þeirra afa og fá morgunmat í rúmið. Enn fleiri dásamlegar minningar eigum við frá seinni tíð á Aust- urströndinni. Þar var svo oft setið við eldhúsborðið, blaðað í Húsum og híbýlum, rætt um líf- ið, tilveruna og fréttir dagsins yfir kaffibolla og bakkelsi. Stundum náðum við í KFC, sem ömmu þótti svo gott að smakka, og líka smurbrauð frá Jóm- frúnni þegar við vildum gera vel við okkur. Einnig var ómet- anlegt að koma með litlu barna- börnin til ömmu því hún naut þess sannarlega að fá að fylgj- ast með þeim vaxa og dafna. Á kveðjustund er þakklæti okkur efst í huga. Við erum þakklát fyrir góðar minningar og við erum þakklát fyrir að hafa átt yndislega ömmu sem var ávallt til staðar fyrir okkur og gaf okkur svo margt. Margrét Aðalheiður, Arna Dröfn og Vilhjálmur Geir. Fanney Ófeigsdóttir Nanna frænka mín var á margan hátt einstök kona. Hún tilheyrði stórri ætt en frá barnsaldri minnist ég þess að hún skar sig úr á ýmsan hátt. Nanna frænka hafði upp- lifað ótrúleg ævintýri, farið víða um heim og búið í Bandaríkj- unum þar sem hún tók að sér mörg óvenjuleg störf. Hún hafði upplifað margt sem hefði verið efni í góða skáldsögu nema hvað atburðarásin hefði ef til vill tal- ist of ólíkindaleg. Þegar Nanna flutti heim frá Ameríku hafði hún með sér Camaro-sportbíl sem vakti tals- verða athygli hvert sem hann fór. Þá var hún um sextugt og þegar maður er á barnsaldri þykir manni sextugt fólk vera nokkuð fullorðið en hvíti Cam- aroinn átti vel við Nönnu. Hún geislaði alltaf af orku og virtist áratugum yngri en hún var. Nanna eignaðist marga af- komendur, afkomendurnir eru Nanna Hálfdánardóttir ✝ Nanna Hálf- dánardóttir fæddist 28. maí 1933. Hún lést 7. mars 2021. Nanna var jarð- sungin 22. mars 2021. reyndar orðnir 76. Þegar hún varð langalangamma hefði hún getað haldið því fram að hún væri nýorðin amma og það jafn- vel verið talið merkilegt að svo ungleg kona ætti barnabörn. Þrátt fyrir stóra ætt og marga af- komendur gat Nanna endalaust gefið af sér til þeirra sem urðu á vegi hennar. Hún var oft stjórn- söm, jafnvel ráðrík, en ég fyllt- ist orku í hvert sinn sem ég hitti Nönnu og naut samvista við hana. Hún var alltaf hressa unga stelpan í fjölskyldu ömmu minnar og sannaði betur en nokkur annar að aldur væri af- stæður. Eftir að Nanna fluttist heim til Íslands vann hún ýmis störf af sinni einstöku eljusemi. Um leið var frumkvöðulseðlið ríkt í henni. Hún leitaði stöðugt nýrra tækifæra og kom ítrekað á óvart með framtakssemi sinni. Þegar Nanna var komin á þann aldur þegar flestir hætta að vinna stofnaði hún kaffihúsið Nönnu- kot í Hafnarfirði. Kaffihúsið var, eins og margt sem Nanna talaði um eða framkvæmdi, undanfari þess sem koma skyldi og um árabil var Nönnukot rómað sem einstakur staður til að hittast og njóta góðra veitinga í bænum. Ég kynntist Nönnu frænku upp á nýtt þegar hún varð virk- ur þátttakandi í stjórnmála- starfi með mér. Þegar hún mætti fór það ekki fram hjá neinum. Hún fyllti hvern sal orku, gekk í hvert verk, dreif hluti áfram og hvatti alla til dáða. Fyrir vikið varð hún fljótt þekkt meðal flokksfólks og vel liðin af öllum sem kynntust henni. Nanna hafði sterkar og rök- studdar skoðanir á stjórnmálum og því sem betur mætti fara. Hún þreyttist aldrei á að benda á hvað þyrfti að laga og hvernig ætti að gera það, meðal annars með mörgum viðtölum í útvarpi. Nanna hafði mikinn áhuga á heilbrigðiskerfinu og reyndi með öllum ráðum að benda á að þar væri úrbóta þörf. Þegar hún veiktist sjálf leitaði hún lengi lækningar þar til loks uppgötv- aðist að hún væri með krabba- mein. Þá var það svo langt geng- ið að hún dó örfáum dögum seinna. Ég var á leið til Reykja- víkur til að heimsækja Nönnu frænku þegar ég frétti að hún væri fallin frá. Það er margt sem ég hefði viljað þakka frænku minni fyrir en þrautseigja hennar, útsjón- arsemi og ábendingar verða mér og öðrum sem kynntust henni hvatning um ókomna tíð. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.